Tíminn - 18.09.1993, Page 9
Laugardagur 18. september 1993
Tfminn 9
uð beggja blands. frak er því fjand-
samlegt, Egyptaland á hinn bóginn
vinsamlegt, enda má segja að Sadat
Egyptaforseti hafi rutt brautina að
því með því að semja frið við ísrael
1979. Önnur arabaríki eru enn
formlega í stríði við ísrael, en reikn-
að er með að Marokkó og Jórdanía
muni innan skamms fylgja fordæmi
Sadats og Arafats. Sagt er raunar að
friðarsamningur milli ísraels og
Jórdaníu hafi legið fyrir nokkum-
veginn tilbúinn frá því snemma á
áttunda áratugi, en að Hússein kon-
ungur hafi ekki þorað hingað til að
staðfesta þá friðargerð af ótta við
önnur arabaríki og eigin þegna.
Hússein og Assad
uggandi
Hussein er sagður móðgaður við
bæði PLO og ísrael út af því að þess-
ir aðilar sömdu án þess að hafa hann
með í ráðum og kannski án þess að
hann hefði hugmynd um. Hann
kann að vera órólegur með hliðsjón
af því, að 40% þegna hans eru Pal-
estínumenn (eins og það er látið
heita í blöðum), auk þess sem engar
skarpar markalínur mun vera hægt
að draga á milli Palestínumanna og
Jórdana. Sá möguleiki er því varla
útilokaður að margir af íbúum Jórd-
aníu yrðu hollari einskonar palest-
ínskri ríkisstjóm í Jeríkó, steinsnar
frá Jórdaná og þar með vesturlanda-
mæmm Jórdaníu, en ætt Hússeins.
Assad Sýrlandsforseti setti sig ekki
beint upp á móti samkomulaginu,
en tók því kuldalega. Hann hefur
gert sér far um að hafa Sýrland í for-
ustu meðal araba og er líklega líkt
og Hússein móðgaður yfir því að
friðurinn skyldi vera saminn án þess
að hann væri hafður með í ráðum.
Hann hefur lengi haldið hlífiskildi
yfir palestínskum hópum, sem and-
stæðir em Arafat (sem Assad er ofan
á annað sagður hafa persónulega
andstyggð á) og lætur gott heita að
bókstafsflokkurinn Hizbollah herji á
ísrael frá Líbanon, sem nú er sýr-
lenskt leppríki. Assad kann að vera
hikandi við að ganga gegn vilja írans
í þessu máli, af ótta við íranir spani
þá bókstafssamtök, þ. á m. sýrlensk
og líbönsk, gegn honum. Fjandskap-
urinn við Israel hefúr þar að auki
lengi komið Assad að góðu haldi við
að halda hollustu landa sinna, sem
flestir em súnnamúslímar og hafa
takmarkaðan þokka á stjóm hans.
Það stafar af því að Assad og margir
aðrir helstu ráðamenn Sýrlands em
Alavítar. Þeir em trúflokkur (og
þjóðflokkur að sumra mati) sem að
vísu telst opinberlega til íslams, en
er sérstæður um margt og af „sann-
trúuðum" múslímum talinn til frá-
villinga.
Vesturlönd og arabísk olfuríki hafa
heitið PLO ríkulegum fjárhags-
stuðningi við að koma samtökunum
á laggimar á fyrirhuguðum sjálf-
stjómarsvæðum. Ekki mun af veita.
Fréttaskýrendur telja að því aðeins
hafi PLO- fomstan einhverja fram-
tíðarmöguleika á svæðum þessum
að hagur íbúa þar verði bættur að
talsverðum mun undir hennar
stjóm.
Kennarasamband íslands
Auglýsing um námslaun
Stjóm Verkefna- og námsstyrkjasjóðs Kennarasambands
íslands auglýsir eftir umsóknum um námslaun til félags-
manna sem hyggjast stunda framhaldsnám skólaárið
1994-1995. Væntanlegir styrkþegar munu fá greidd laun á
námsleyfistíma í allt að 12 mánuði eftir lengd náms.
Umsóknum ber að skila á skrifstofu Kennarasambands ís-
lands, Kennarahúsinu, Laufásvegi 81,101 Reykjavík.
Eyðublöð liggja frammi á skrifstofu Kennarasambandsins,
fræðsluskrifstofum og hjá trúnaðarmönnum í skólum.
Umsóknarfrestur rennur út 1. október 1993.
Verkefna- og námsstyrkjasjóöur Kennarasambands fslands
PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN
UMSÝSLUSVIÐ
Fasteignadeild
Útboð
Tilboð óskast í smíði viðbyggingar við póst- og símahús
á Selfossi. Viðbyggingin afhendist fokheld að innan og
fullfrágengin að utan.
Stærð hússins er 212.6 m2 og 777.1 m3.
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu fasteignadeildar
Pósts og síma í Reykjavík, Pósthússtræti 5, 3. hæð, og
hjá stöðvarstjóra Pósts og síma á Selfossi gegn skila-
tryggingu kr. 20.000,-.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu fasteignadeildar þriðju-
daginn 5. október kl. 14 siðdegis.
Póst- og símamálastofnunin.
Uthlutun
úr Kvikmyndasjóði
íslands 1994
Kvikmyndasjóður íslands auglýsir eftir umsóknum
um framlög til kvikmyndagerðar.
Umsóknir skulu sendar Kvikmyndasjóði fýrir 16.
nóvember 1993, á umsóknareyðublöðum sjóðsins
ásamt handriti, kostnaðaráætlun, fjármögnunar-
áætlun og greiðsluáætlun.
Ef sótt er um framleiðslustyrk, skal fullunnið hand-
rit fylgja umsókn ásamt kostnaðaráætlun, fjár-
mögnunaráætlun og greiðsluáætlun.
Ekki er tekið við umsóknum, sem afhentar eða
póstlagðar eru eftir að umsóknarfrestur rennur út.
Öll umsóknargögn skulu berast í Ijórum eintökum.
Sjóðurinn heldur eftir einu eintaki af umsóknar-
gögnum. Umsækjendur eru beðnir að sækja
aukaeintök á skrifstofu sjóðsins frá 15. janúar-15.
febrúar 1994.
Hafi umsækjandi áður fengið úthlutað úr sjóðnum
eða fyrirtæki, sem hann hefur átt aðild að, og verki
ekki lokið, skal fullnægjandi greinargerð að mati
úthlutunarnefndar, um það verk fylgja og uppgjör
áritað af löggiltum endurskoðanda. Úthlutunar-
nefnd áskilur sér rétt til að óska eftir endurskoðuð-
um ársreikningi vegna viðkomandi verks, ef þörf
þykir.
Umsóknareyðublöð verða afgreidd á skrifstofu
Kvikmyndasjóðs, Laugavegi 24,101 Reykjavík,
frá og með 21. september.
Athygli umsækjanda er vakin á því að ný um-
sóknareyðublöð hafa verið tekin í notkun. Allar
nánari upplýsingar eru veittar á sama stað.