Tíminn - 18.09.1993, Qupperneq 12
12 Tíminn
Laugardagur 18. september 1993
Höfnin í Hamborg er önnur stærsta inn- og útflutningshöfn I Evrópu.
Reeperbahn lltur út eins og venjuleg
verslunargata á daginn, en kynlífs-
búöirnar eru þar á ööru hverju horni.
Feröamannastraumurinn þangaö hef-
ur aukist, aö sögn borgaryfirvalda.
Hafnarborgin, verslunarborgin og gleðiborgin Hamborg sótt heim:
/
slóðum Hansa-
kaupmanna
Útsýni af Lombardsbrúnni. Turn St. Nikolai kirkjunnar til vinstri, en til hægri er
turninn á ráöhúsi Hamborgar.
Stuttar haust- og vetrarferðir til erlendra stórborga eru ný tegund
ferðamennsku, sem hefur rutt sér til rúms undanfarin ár. Til að
byrja með gengu þessar ferðir undir samheitinu innkaupaferðir, en
orðið borgarferðir á eiginiega betur við, því markmiðin eru aðallega
þrenns konan Innkaup, afþreying og stutt hvfld frá daglegu amstri
hér heima.
íslenskir kaupmenn hafa brugðist
illa við borgarferðunum. Sumir hafa
brugðist við með vörulækkunum,
sem kemur öllum til góða, en það
eitt dugir ekki til og hætt er við að
hér sé um þróun að ræða sem ekki
verður ráðið við. Skýringin á vin-
sældum borgarferðanna er ekki bara
sú að hægt er að fjármagna flug og
gistingu yfir eina helgi með því að
fata upp flögurra manna fjölskyldu.
Ódýrir afþreyingarmöguleikar, leik-
hús, tónleikar, sýningar og skemmt-
an, sem oft á tíðum er ekki boðið
upp á hér heima, eiga þar einnig
stóran hlut að máli.
Beint flug tvisvar
á dag
Einn af nýjum áfangastöðum út í
heim á þessu ári er Hamborg í
Þýskalandi, en þaðan er boðið upp á
beint flug héðan í gegnum Kaup-
mannahöfn. Þó millilent sé á Kastr-
up, þarf ekki að skipta um vél, því
samkvæmt samstarfssamningi við
SAS fljúga Flugleiðir tvisvar á dag á
milli Hamborgar og Kaupmanna-
hafnar, en sömu vélar eru nýttar
áfram í áætluninni á milli íslands og
Kaupmannahafnar. M.a. vegna þessa
samnings er hægt að bjóða jafn hag-
KANARÍEYJAR, verö frá 54.510.
Gisting í KOALA-snraáhýsi. Brottför 5.
janúar í 3 vikur. Innifaliö flug, gisting, flug-
vallargjöld. Miðaö er við 2 saman (fbúö.
FORT LAUDERDALE, verö frá
49.980. Gisting á Holiday Inn hótel-
inu. Brottför 8. september f 8 nætur. Innifal-
iö flug, gisting, flugvallargjöld. Miöaö er viö
2 saman f herbergi.
AGADIR í MAROKKÓ, verö 75.820.
Gisting á Sud Bahia hótelinu.
Brottför 29. nóvember. Innif. flug til Kaup-
mannahafnar, ferö meö Spies til Marokkó 2
vikur, gisting 2 nætur f Kaupmannahöfn,
morgunveröur, öll flugvallargjöld, miöaö er
viö 2 saman f herbergi.
Ballett í Kaupmannahöfn, verö
37.900. Gisting á Sheraton hótelinu.
Brottför 16. desember. Innifaliö flug, miöi á
frumsýningu á Þyrnirósu f uppfærslu Helga
Tómassonar f Konunglega leikhúsinu f
Kaupmannahöfn. Gisting 3 nætur, morgun-
veröur og öll flugvallagjöld.
Newcastle United heimaleikir.
16. og 30. október eru heimaleikir hjá New-
castle United. Miöar á leikina fást hjá okkur.
Komdu f fótboltaferö til Newcastle.
Helgarferðir og vikuferöir til
Newcastle. Verö frá 25.300.
1 brottför á sunnudegi. Innif. flug, gisting,
morgunverður, öll flugvallargjöld. Miöaö viö
2 f herbergi. Brottfarir frá 13. október. Ein-
stakt tækifæri á skemmtilegri helgarferð til
glæsiborgarinnar Newcastle.
Enskunám í Newcastle, verö 82.200.
4 vikna enskuskóli f Newcastle.
Brottför 17. eöa 23. október. Innifaliö flug,
kennsla, gisting m. hálfu fæði, kennslugjöld,
flugvallagjöld.
FERÐASKRIFSTOFAN
SÍMI 652266
Fiskmarkaðurinn. Þangaö flykkjast tugþúsundir manna á góðum sunnudags-
morgni.
stætt verð á Hamborgarferðunum
og raun ber vitni. Sem dæmi má
nefna að þriggja daga ferð, með
tveimur gistinóttum á góðu hóteli,
kostar um 27 þúsund krónur. Milli-
lendingin er að mörgu leyti ágæt.
Farþegar, sem halda áfram til ís-
lands, hafa um hálftíma til þess að
teygja úr sér, skoða sig um eða fá sér
snarl og reykingafólk getur kveikt
sér í sígarettu, en reykingar eru illu
heilli alfarið bannaðar í Evrópuflug-
inu um borð í vélum Flugleiða og
SAS.
Gömul og gróin
verslunarborg
Hamborg á sér langa og merkilega
sögu. Borgin er sjálfstætt sam-
bandsríki innan Þýskalands. Áður en
Þýskaland varð til í þeirri mynd sem
við þekkjum það núna, var Ham-
borg sérstakt lýðveldi. „Die Freie
und Hansestadt Hamburg" (sem út-
leggst í lauslegri þýðingu sjálfstæða
verslunarborgin Hamborg) er eitt af
fyrstu lýðveldunum sem stofnuð
voru á meginlandi Evrópu. Ham-
borg hefur lengi verið þekkt fyrir að
vera stærsta hafnarborg Þýskalands
og jafnframt ein mesta verslunar-
borgin.
Meira að segja verslunarsaga ís-
lendinga tengist þessari merku borg
nokkuð, en „Hansakaupmennimir",
sem lögðu að hluta undir sig versl-
un í Noregi á öldum áður, komu frá
Hamborg. Eins og flestir þekkja,
versluðu Hansakaupmenn við ls-
lendinga á tímabili í gegnum Noreg
við litla hrifningu danskra kaup-
manna.
Það var einmitt í kringum sigling-
ar sem Hamborg byggðist upp sem
verslunarstaður og á þeim grunni er
enn byggt í dag. Höfnin er önnur
stærsta inn- og útflutningshöfn á
meginlandi Evrópu, en þar hafa ár-
lega viðkomu um 13 þúsund skip frá
öllum heimshomum.
Skandinavamir harðir
í skemmtanalífinu
Þama mætist oft á tíðum afar fjöl-
skrúðugt mannlíf og stemningin
getur orðið mjög lífleg, sér í lagi í
kringum hina þekktu fiskmarkaði.
Fiskmarkaðurinn er í reynd al-
mennur matvælamarkaður þar sem
boðið er upp snemma á sunnudags-
morgnum grænmeti, fiskur, ávextir
og allt þar á milli. Þangað flykkjast á
góðum degi tugir þúsunda manna
og sumir gestanna eru svefnvana,
því það er ekki óalgengt að menn
skemmti sér frá laugardagskvöldi
fram á sunnudagsmorgun, fari beint
úr St. Pauli á fiskmarkaðinn og þá
fyrst þegar hann er búinn heim að
sofa. Reiner Buchtmann hjá upplýs-
ingastofu ferðamála í Hamborg seg-
ir að þetta eigi ekki hvað síst við um
ferðamenn og viðskiptafólk frá
Skandinavíu. Reiner segir að Skand-
inavamir séu skemmtilegir túristar
og sjaldan nokkur vandræði eðaves-
en í kringum þá, „en þegar þeir eru
að skemmta sér, skemmta þeir sér af