Tíminn - 18.09.1993, Side 13
Laugardagur 18. september 1993
Tíminn 13
lífi og sál."
Hamborg er ekki bara verslunar-
og hafnarborg, heldur einnig þekkt
fyrir mikið og fjölskrúðugt skemmt-
ana- og menningarlíf. í Óperuhúsi
Hamborgar er nú verið að sýna
söngleikinn „Cats“, en hann hefur
verið þar á fjölunum síðan vorið
1986. Þegar hafa yfir 2,5 milljónir
gesta séð sýninguna og búist er við
að sýningum verði haldið áfram
næstu tvö til þrjú árin til þess að
anna eftirspum. í stærstu listamið-
stöð borgarinnar er að ljúka stórri
yfirlitssýningu á verkum meistarans
Picasso og svo mætti áfram telja.
Hægt að hríngja út og
panta miða
Þeim, sem hafa áhuga á að bregða
sér í leikhús, sjá söngleiki eða óper-
ur eða heimsækja söfn og sýningar,
skal bent á að hægt er að hafa sam-
band við upplýsingaskrifstofu ferða-
mála í Burchardstrasse 14, en þegar
hringt er beint frá íslandi er númer-
ið 90 49 40 300 510. Þar er hægt að
panta fyrirfram miða á sýningar og
viðburði, en á skrifstoftmni talar
fólk þýsku, ensku og Norðurlanda-
mál, þó ekki íslensku. Veitingamað-
urinn í sjónvarpsturninum, sem er
hæsta bygging í Hamborg, talar hins
vegar nokkrar setningar á íslensku
og hann hefur lagt metnað sinn í að
kenna þjónustufólkinu að segja
„góðan daginn“ og „þakka þér fyrir".
Verslunargatan breyt-
ist í gleðihverfi
Næturlífið í Hamborg er fjölskrúð-
ugt. Helsta gleðihverfi borgarinnar
er St. Pauli (þaðan þekkja eflaust
sumir mergjaðar sögur úr bókum
rithöfundarins Svens Hassel) og
þekktasta gleðigatan innan St. Pauli
er Reeperbahn. Reeperbahn lítur út
á daginn eins og ósköp venjuleg
verslunargata — þar er þó e.t.v.
áberandi mikið af kynlífsbúðum, en
annars er þetta sakleysisleg gata. Á
kvöldin liftiar hins vegar Reeper-
bahn við og glaumur og skemmtan
taka við og stendur yfir frá kvöldi til
morguns. Stemninguna verða menn
eiginlega að upplife sjálfir til þess að
vita hvað um er rætt, en það er viss-
ara fyrir ókunnuga að vera ekki ein-
ir á ferð, heldur halda hópinn á Ree-
perbahn, ef verið er að skemmta sér
íslaug Aðalsteinsdóttir hjá Ferðaskrifstofu
Reykjavíkur:
Breytt viðhorf
í borgarferðum
„Ég held að borgarferðimar séu
komnar til að vera,“ segir íslaug,
„en ég held að það geti breyst hvað
fólk gerir í þessum ferðum. Ég held
að það fari ekki áfram bara til þess
að kaupa inn, ekki ef okkur tekst
hér á landi að vinna bug á þeirri
dýrtíð sem búin er að vera hér frá
stríðslokum. Við emm að borga
hátt verð fyrir mat og miklu hærra
verð fyrir fatnað en annars staðar.
Ef þetta hjaðnar hér held ég að fólk
hætti að ganga sig upp að hqjám við
að kaupa inn frá morgni til kvölds.
Fólk heldur samt sem áður áfram
að fara þessar stuttu ferðir. Þjóðfé-
lagið hér hjá okkur er dálítið þröngt
og þess vegna þarf fólk að „fá loft“.
Fólk hvflir sig í tvær til þrjár vikur í
sumarfríinu en tekur síðan hluta af
því í svona helgarferð. Það er í vax-
andi mæli að njóta þess að skoða
fagrar borgir og það sem þær hafa
upp á að bjóða, fara út að borða og
dekstra dálítið við sjálft sig og kynn-
ast lífinu í staðinn fyrir verslanirn-
ar.“
íslaug rekur Ferðaskrifstofu
Reykjavíkur, en hún hefur starfað á
þessum vettvangi í um 40 ár. Hún
segir Ferðaskrifstofu Reykjavíkur
skera sig úr að því leyti að hún leggi
ríka áherslu á persónulega þjónustu
við viðskiptavini, jafht einstaklinga
Mikil eftirspurn fyrirfram eftir ferðum til New-
castle á Bretlandi:
Yfir þúsund
ferðir seldar
Ferðaskrifstofan Alís í Hafnarfirði
er nú þegar búin að selja á annað
þúsund ferðir til borgarinnar Newc-
astle á austurströnd Bretlands.
Þetta er þriðja haustið sem boðið er
upp á þessar ferðir, en þær em fyrst
og fremst hugsaðar fyrir fólk sem
sækist eftir stuttum borgarferðum,
til þess að njóta lífsins og kaupa
inn.
Alís hefur sérhæft sig í verslunar-
ferðum og ferðum til Billund á Jót-
landi ásamt borgarferðunum til
Newcastle. Flogið verður tvisvar í
viku, á sunnudögum og miðviku-
dögum, en samið var um að Flug-
leiðir önnuðust leigufugið. Verðið á
Newcastle-ferðunum er nokkuð
hagstætt, eða frá 27 þúsund krónum
fyrir þriggja nátta helgarferð frá
sunnudegi til miðvikudags. Innifalið
er flug, gisting, flutningur til og frá
flugvelli í Newcastle, íslensk farar-
stjórn og fleira.
Ferðaskrifstofan Ratvís
X
Odýrt til
þriggja borga
Ferðaskrifstofan Ratvís í Kópavogi
mun dagana 28. og 29. október
bjóða upp á fimm daga ferðir til
þriggja borga í Evrópu. Um er að
ræða ferðir tU Hamborgar, London
og Amsterdam.
Gist er í fjórar nætur og er verðið á
þessum ferðum á bilinu 32.900
krónur fyrir manninn í tvíbýli og
upp í 35.650 krónur. Á þessu verði er
aðeins um eina brottför að ræða, til
London og Hamborgar er farið 28.
október, en þann 29. til Amsterdam.
Innifalið er í verðinu flug, gisting,
morgunmatur og flugvallarskattur.
Það þarf nú vart að fara mörgum
orðum um hvað þessar þrjár borgir
hafa upp á að bjóða, því allar eru þær
þekktar fyrir verslunar- og afþrey-
ingarmöguleika sfna. Fred Schalk,
markaðasstjóri Ratvís, sagði að ekki
væri síðra að versla í borgum eins og
Utrecht og Haag sem væru nálægt
Amsterdam. -PS
Nýr áfangastaður
í Bandaríkjunum
Flugleiðir hófu í mánuðinum áætlunarfiug til Fort Lauderdale á Atlants-
hafsstönd Florida í Bandaríkjunum. Þetta er þriðji nýi viðkomustaðurinn í
leiðakerfi félagsins á þessu ári.
þar á nóttunni.
Hamborg er önnur stærsta borg
Þýskalands á eftir höfuðborginni
Berlín, með 1,6 milljónir íbúa. Þetta
er rík borg, meira að segja á þýskan
mælikvarða, enda sér ferðamaður-
inn mörg merki þess. Þetta á bæði
við um fagrar og íburðarmiklar
byggingar, skrautlega almennings-
garða og ekki hvað síst stór og mikil
vöruhús þar sem hægt er að kaupa
nánast allt milli himins og jarðar. Sé
verðlag borið saman við t.d.
Glasgow, Edinborg eða aðrar enskar
borgir, er það reynsla undirritaðs að
Hamborg og reyndar Þýskaland al-
mennt hefur vinninginn. Frá þessu
eru að sjálfsögðu til undantekning-
ar, en þó er óhætt að fullyrða að
vöruúrval og verð á vandaðri vöru,
hvort sem um er að ræða fatnað,
heimilistæki, leðurvörur eða eitt-
hvað annað, gerist vart betra.
Árni Gunnarsson
Flugvélar á leið vestur um haf
leggja af stað frá Keflavík skömmu
eftir að vélar frá áætlunarstöðum í
Evrópu koma til Keflavíkur. Með
þessum hætti getur félagið boðið
viðskiptavinum víðs vegar á meg-
inlandinu Fort Lauderdale-ferðir
með tengiflugi um Keflavík með
sama hætti og til annarra við-
komustaða í Bandaríkjunum, sem
eru New York, BaltimoreAVash-
ington og Orlando.
Fyrstu vikumar verður flogið til
Fort Lauderdale einu sinni í viku,
en í vetur verður þeim ljölgað í tvö
skipti. Flugleiðir nota Boeing 757-
200 þotur á þessari flugleið, en
þær bera 189 farþega í ferð.
Verðið á 1. flokks
lambakjöti í
hálfum
skrokkum
lækkar um heil
20%. Fáðu þér
ljúffengt lambakjöt í
næstu verslun á
frábæru verði, aðeins
398 krónur kílóið.
398
Bestu kaupin í lambakjöti á aðeins 398kr./kg.
ínœstuvershm
*Leiðbeinandi smásöluverð
/ /
HVERT KILQ flf
LfllflBflKJOTI
LfEKKflR UIQ
HEILAR
KR0IIUR