Tíminn - 18.09.1993, Síða 15

Tíminn - 18.09.1993, Síða 15
Laugardagur 18. september 1993 Tíminn 15 Tórínó hefur byrjað tímabilið af miklum krafti og sigraði Lilleström í Noregi á miðvikudag. Andrea Si- lenzi og Robert Jarni, sem skoruðu mörk liðsins, meiddust lítillega en búist er við að þeir verði búnir að ná sér fyrir leikinn á morgun. Líklegt byijunarlið: Galli, Mussi, Jarni, Fortunato, Gregucci, Fusi, Sordo, Venturin, Silenzi, Carbone, Osio. PIACENZA - LECCE Fríherjinn Settimio Lucci, sem var vísað af velli um síðustu helgi í leik gegn Reggiana, hefur átt við meiðsli að stríða en leikur sennilega með á morgun. Liðið mun sakna hins efni- lega leikstjórnanda, Daniele Mor- etti, sem einnig hefur verið meidd- ur. Líklegt byijunarlið: Taibi, Polonia, Carannante, Suppa, Maccoppi, Lucci, Turrini, Papais, De Vitis, Iacobelli, Piovani. Brasilíski tengiliðurinn Gerson missir af leiknum á morgun vegna leikbanns en liðið hefur í staðinn endurheimt Egidio Notaristefano eftir meiðsli. Nedo Sonetti, þjálfari Lecce, hefur hrifist mjög af hinum 21 árs hollenska tengilið, Michael Kamdhai, sem hefur verið til reynslu hjá Lecce undanfarna viku. Líklegt byijunarlið: Gatta, Trinc- hera, Carobbi, Ceramicola, Padal- ino, Biondo, Notaristefano, Melchi- ori, Russo, Barollo, Baldieri. UDINESE- SAMPDORIA Stefano Pellegrini, Roberto Sensini og Andrea Carnevale urðu allir fyrir meiðslum um síðustu helgi, er Udi- nese tapaði fyrir Tórínó, en verða sennilega allir tilbúnir í slaginn á morgun. Þá hefur varnarmaðurinn Vincenzo Montalbano verið meidd- ur á ökkla og óvíst hvort hann getur leikið. Udinese hefur verið að svip- ast um eftir markverði að undan- förnu og er talið líklegt að Marco Ballotta hjá Parma eða Stefano Tac- coni hjá Genúa verði fengnir til liðs- ins í nóvember. Líklegt byijunarlið: Battistini, Pellegrini, Kozminski, Sensini, Cal- ori, Desideri, Rossini, Biagioni, Branca, Statuto, Carnevale. Gullit hefur byrjað glæsilega með sínu nýja félagi, Sampdoria, og verið besti maður liðsins í hverjum leik. Þá hefur enski landsliðsmaðurinn David Platt einnig staðið sig mjög vel og virðast þeir ná mjög vel saman. Líklegt byijunarlið: Pagliuca, Mannini, Rossi, Gullit, Vierchowod, Sacchetti, Lombardo, Jugovic, Platt, Mancini, Evani. OO <1 '-«C Þórhallur “Laddi" Sigurðeson gysmeistari Óla-fía Hrönn Jónsdóttir glensiðjukona Hjálmar Hjálmarsson spaugsmiður og Haraldur "Halli" Sigurðsson spévirki gera létta úttekt á mannlífinu og rannsaka pjóðareðtið í bráð og lengd Leikstjórn: öjörn G. öjörnsson Utsetningar bórir 3a\dursson Hljómsveitin Saga klass og hin fjölhæfa söngkona öerglind Björk Jónasdóttir eru með í úttektinni og haida áfram leiknum til kl 03.00. Verð: 4.300 kr. < (/) 0 < c íc/ss'/aAurJ/ö/óre///////1 mat&edt/l FORRETTIR: Rjómalöguð villisveppasúpa bœtt Portvíni eða Bleikjufrauð og reyktur lax framreitt með piparrótarsósu. AÐALRÉTTIR: Ofnsteiktur lambahryggsvöðvi í sinneps- og jurtahjúpi eða Léttsteiktur grísahryggur með reykbragði framreiddur með rauðvínssósu eðu Grænmetisréttur að hœtti hússins. EFTIRRÉTTIR: Grand Marnier ís soufflé eða Súkkulaðifrauð með vanillukremi og jarðarberjum. pantanir í síma 91-29900 Hagstætt verð á helgarpökkum: "show" matur og gisting -lofar góðu! Meö sínu neíi Þættinum hafa borist nokkrar fyrirspumir um hvort ekki væri hægt að hafa í „Nefinu“ einhver lög sem Savannatríóið hefur gert vinsæl. Því er til að svara að nú þegar hafa komið nokkur slík lög í þættinum, einkum lög sem Sigurður Þórarinsson hefur gert ljóð við. Hins vegar hafa flest ef ekki öll lögin, sem Savannatríóið hefur flutt, verið góð sönglög og síðasta plata þeirrá, „Eins og þá“, er einmitt gott dæmi um þetta. Þar er m.a. að finna Iögin „Brúðarskómir" og „Veistu um blóm sem voru hér?“, en það verða lög þáttarins að þessu sinni. Brúðar- skómir er Ijóð eftir Davíð Stefánsson, úr Svörtum fjöðmm, en lagið er eftir Þóri Baldursson. Þetta lag er þegar orðið ein af perlum íslenskra sönglaga og vinsældir þess miklar. Seinna lagið er hins vegar eftir Pete Seeger og er trúlega best þekkt undir enska titlinum „Where have all the flowers gone?“. Savannatríóið gerði íslenska útgáfu af laginu vin- sæla á dögunum, en það er Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, skáld og vísnavinur, sem á þessa afbragðsgóðu íslensku þýðingu á ljóðinu. Góða söngskemmtun! BRÚÐARSKÓRNIR C Cmaj7 Dm G Alein sat hún við öskustóna. Am Dm G Hugurinn var frammi á Melum. C Cmaj7 Dm G Hún var að brydda brúðarskóna. Am Dm C Sumir gera allt í felum. Úr augum hennar skein ást og friður. Hver verður húsfreyja á Melum? Hún lauk við skóna og læsti þá niður. Sumir gera allt í felum. X 3 2 0 1 0 Cmaj7 X 3 2 o o o Alein grét hún við öskustóna. Gott á húsfreyjan á Melum. í eldinum brenndi hún brúðarskóna. Sumir gera allt í felum. Dm X O O 2 3 1 VEISTU’ UM BLÓM SEM VORU HÉR? C Am Veistu’ um blóm sem voru hér F G vor og sumar, C Am ótal blóm sem undu sér F G á sínum stað? C Am Ungar stúlkur út um völl F G upp þau slitu’ af rótum öll. F C Lærist þeim aldrei að F G C efast um stund og stað? Am Veistu’ um stúlkur, voru þær vor og sumar ungmeyjar með augu skær og bros á vör? Allar fundu eiginmann og sig bundu strax við hann. Lærist þeim aldrei að efast um stund og stað? Veistu’ um menn sem voru hér vor og sumar, unga menn sem áttu hér áningarstað? Allir, sem í eina tíð urðu hermenn, fóru í stríð. Lærist þeim aldrei að efast um stund og stað? Veistu’ um hermenn víða að, vor og sumar, íjölskrúðugar íylkingar sem fóru hjá? Örstutt ævi þeirra varð, allir lentu’ í kirkjugarð. Lærist þeim aldrei að efast um stund og stað? Veistu’ um garð, já, vígðan reit, vor og sumar, friðargarð með fyrirheit á fögrum stað? Vaxa þar í vígðri mold viðkvæm blóm, sem prýða fold. Lærist þeim aldrei að efast um stund og stað?

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.