Tíminn - 18.09.1993, Síða 19
Laugardagur 18. september 1993
Jónas Bergsteinn
Bj ömsson
Siglufirði
Fæddur 25. október 1916
Dáinn 10. september 1993
Jónas fæddist á Siglufirði og ólst
þar upp. Foreldrar hans voru Bjöm
Jónasson keyrari og kona hans Guð-
rún Jónasdóttir. Að loknum bama-
skóla stundaði Jónas nám í Héraðs-
skólanum að Laugarvatni. Þegar
heim kom aftur gerðist hann
ábyrgðarmaður blaðsins Siglfirð-
ings og sá um útgáfu þess um skeið.
Jónas átti við veikindi að stríða,
fékk berkla í aðra mjöðmina og lá
um skeið á Sjúkrahúsi Siglufjarðar.
Gekk hann eigi heill til skógar eftir
það, þar sem annar fóturinn styttist
í veikindunum. Jónas lét þó ekki
deigan síga, þrátt fyrir skerta at-
orku. Hann var einn af stofnendum
Vinnslufélags Siglfirðinga, tók þátt í
stofnun Bifreiðastöðvar Siglufjarðar
árið 1943 og var þar stöðvarstjóri til
ársins 1955. Hann stofnaði, ásamt
félögum sínum af Bifreiðastöðinni,
útgerð og saltfiskverkun.
Jónas vann einnig við bókhald hjá
ýmsum fyrirtækjum, m.a. hjá
bræðrum sínum við Verslunarfélag
Siglufjarðar.
Hann hóf störf hjá Skattstofu
Siglufjarðar árið 1960 og starfaði
þar til ársins 1990. Jafnhliða því
starfi gegndi hann einnig starfi vikt-
armanns á Hafnarvog Siglufjarðar.
Þurfti hann oft að sinna því starfi á
hvaða tíma sólarhrings sem var.
Jónas hafði ákveðnar skoðanir á
þjóðmálum og fylgdi hann Sjálf-
stæðisflokknum að málum. Hann
var þó aldrei einstrengingslegur í
hugsunarhætti og lét ekki pólitík
spilla vináttu við neinn mann. Hann
var ákaflega víðsýnn og kunni listina
að hlusta á og virða skoðanir ann-
arra. Meðan hann var við nám á
Laugarvatni, tóku nemendur upp á
því að halda framboðsfund með til-
heyrandi framboði hinna starfandi
stjómmálaflokka. Jónas bauð sig
fram fyrir sinn flokk, en talið var að
sá flokkur hefði lítið fylgi meðal
nemenda. En vegna vinsælda Jónas-
ar varð sú raunin á, að hann hafði
nærri fellt þann frambjóðanda sem
mesta fylgið hafði.
Jónas hefur ætíð verið vinmargur
og félagslyndur maður. Spaugsamur
var hann og manna glaðværastur í
góðra vina hópi. Hann var og dreng-
ur góður og gætti þess ávallt að „að-
gát skal höfð í nærveru sálar“.
Ekki er hægt að minnast Jónasar
án þess að minnast á starf hans í
Kirkjukór Siglufjarðar, þar sem
hann söng um langt árabil og bar
hann hag kórsins sér mjög fyrir
brjósti og vann þar gott og mikið
starf. Hann söng einnig í fleiri kór-
um, því hann hafði yndi af söng og
hafði góða söngrödd.
Eins og að framan segir var Jónas
athafnamaður, en einnig andlega
sinnaður, víðlesinn og áhugasamur
um menn og málefni. Elja hans var
takmarkalaus, þrátt fyrir fötlun sem
háði honum talsvert Á efri árum fór
heilsu hans hrakandi. Hann lét það
þó ekki aftra sér frá að vera með og
njóta lífsins í fjölskyldu- og vina-
hópi.
Jónas kvæntist systur minni,
Hrefnu Hermannsdóttur frá Ysta-
Mói f Fijótum, fæddri 25. júní 1918,
dóttur hjónanna Hermanns Jóns-
sonar og Elínar Lárusdóttur.
Jónas og Hrefna eignuðust fjögur
böm:
Björn, f. 4.6.1945, sparisjóðsstjóri
á Siglufirði. Fyrri kona hans var
Guðrún Margrét Ingimarsdóttir, f.
4.3.1945, d. 30.4.1976, og er dóttir
þeirra Rakel, f. 2.9. 1965. Seinni
kona Bjöms er Ásdís Kjartansdóttir,
f. 4.1.1948, kennari við Gmnnskóla
Siglufjarðar.
Guðrún, f. 25.2.1948, starfsmaður
hjá Sparisjóði Siglufjarðar, og er
dóttir hennar Jóna Hreffia, f. 16.7.
1983.
Halldóra Ingunn, f. 2.5.1955, fjöl-
skylduráðgjafi hjá SÁÁ, gift Gunnari
Trausta Guðbjömssyni, f. 14.1.
1953, prentara og auglýsingateikn-
ara, og em dætur þeirra Edda Rósa,
f. 24.10.1972, og Bettý, f. 2.6.1976.
Hermann, f. 27.5. 1957, fram-
kvæmdastjóri á Siglufirði, kvæntur
Ingibjörgu Halldórsdóttur, f. 28.4.
1958, læknaritara. Þeirra böm em
Helga, f. 1.4. 1976, og Halldór, f.
22.4.1984.
Ég kynntist Jónasi er hann kvænt-
ist systur minni og meðan hann var
bifreiðastöðvarstjóri kom ég oft til
hans þegar bflfær vegur opnaðist yf-
ir Skarðið. Tók hann ætíð vel á móti
okkur ferðalöngunum og var fýrir-
greiðsla hans eins og best varð á
kosið.
Þau Hrefna áttu fallegt og hlýlegt
heimili og vom höfðingjar heim að
sækja, enda bæði gestrisin með af-
brigðum.
Það er mikið lán að hafa átt vináttu
Jónasar og Hrefnu og fyrir það vilj-
um við þakka. Jónas var mikill vinur
vina sinna. Þótt Jónas sé sjálfur
horfinn sjónum okkar, þá lifir minn-
ingin um góðan dreng.
Hrefna mín. Við Ása og fjölskylda
sendum þér og fjölskyldu þinni sam-
úðarkveðjur um leið og við kveðjum
góðan vin, sem borinn er til grafar í
dag.
Sauðárkróki, 18. september 1993,
SæmundurÁ. Hermannsson
Enn af Degi frímerkisins
Það er fleira sem stendur til á
Degi frímerkisins en útgáfa
blokka, eins og sagt hefir verið frá
hér í þáttunum. Þarfasti þjónninn
meðal loftfara á afmæli á þessu ári
og þess er minnst í ár að 50 ár em
liðin síðan Douglas C-47A flugvél-
in Gljáfaxi (TF-ISH) kom til lands-
ins og varð fyrsti „Þristur" íslend-
inga, síðar landgræðsluflugvélin
,J>áll Sveinssorí' (TF-NPK). í til-
eftii þess er fyrirhugað að flytja
póst með flugvélinni frá Reykjavík
til Akureyrar laugardaginn 9.
október 1993 og verður sérstakur
póststimpill í notkun á pósthúsinu
R-l, Pósthússtræti 5, 101 Reykja-
vík. Aðeins verður tekið við
ábyrgðarbréfum með sérstöku
aukagjaldi (kr. 160), sem rennur
til Landgræðslunnar. Burðargjald
innanlands fyrir 20 g bréf verður
því 300 kr., 305 kr. til Evrópu og
325 kr. til landa utan Evrópu. Bréf-
in skulu nákvæmlega merkt nafni
og heimilisfangi viðtakanda, svo
og „TF-NPK".
Það var sannarlega vel til fundið
að minnast afmælis þristsins, en
það hefði mátt vera í stærri mæli,
jafnvel með frímerkjablokk.
Hins vegar hefur Landgræðslan
gripið tækifærið og gefið út kort
til að kynna starfsemi sfna, alls 16
mismunandi kort og þar af em
fjögur gagngert af flugfarinu Gljá-
faxa/Páli Sveinssyni. Þetta væri at-
hugandi fyrir þá sem ætla að Iáta
stimpla fyrir sig og senda með sér-
fluginu, að styðja Landgræðsluna
hressilegar með því að nota þessi
kort. Vélin er sýnd á Melgerðis-
melum er hún var aðeins þriggja
ára gömul, eða árið 1946. Þá er
Á Isafjarðarflugvelli.
hún sýnd f Grænlandsflugi árið
1961, en hún var oft tengiliðurinn
sem bjargaði mörgu fyrir Græn-
land á þessum ámm. Þá er hún
sýnd á einu kortinu á ísafjarðar-
flugvelli og svo loks eftir að hún er
orðin TF-NPK, eða Páll Sveinsson.
Það var Flugfélag íslands, sem gaf
Landgræðslunni flugvélina til fræ-
og áburðardreifingar í baráttunni
við uppblástur og brottfok jarð-
vegs. Ekki sat þar við, heldur hafa
flugmenn, fyrst Flugfélags íslands
og síðan Flugleiða, alla tíð flogið
henni í fríum sínum fyrir Land-
græðsluna og verður væntanlega
svo enn um sinn.
Kort Landhelgisgæslunnar verða
að minnsta kosti til sölu á öllum
stöðvum Olís, yfir þann tíma sem
flugið fer fram.
Sigurður H. Þorsteinsson
Tíminn 19
Framsóknarkonur Kópavogi
Aðalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna I Kópavogl, verður haldinn mið-
vikudaginn 22. september kl. 20.30 að Digranesvegi 12.
Venjuleg aðalfundarstörf. Dagskrá fundaríns verður nánar auglýst slðar.
Spómti
HafnarQörður
Fundur framsóknarfélaganna I Hafnarfiröi þriðjudaginn 21. september 1993 kl.
20.30.
Fundarstaöun Hraunholt, Dalshrauni 15.
Dagskrá:
1. Ávarp — Steingrlmur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins.
2. Ungt fólk og sveitarstjómarmál — Einar Gunnar Einarsson, formaöur
FUF Hafnarfirði.
3. Atvinnuleysið og svertarstjómir — Sigríður Jósefsdóttir, gjaldkeri Lands-
sambands framsóknarkvenna.
4. Fjármál og framkvæmdir I Hafríarfirði — Magnús Bjamason, rekstrar-
hagfræðingur Hafnarfirði.
5. Skólamál I Hafnarfirði — Loftur Magnusson. skólastjórí Setbergsskóla.
6. Atvinnumál I Hafnarfirði — Ingvar Krístinsson, verkfræðingur Hafnarfiröi.
7. Stjómmál á kosningavetri — Guömundur Bjamason, ritari Framsóknar-
flokksins.
8. Almennar umræður og fyrirspumir.
GLÍMA
Glímuæfingar eru að hefjast hjá Glímudeild Ármanns í
íþróttahúsi Austurbæjarskóla, fýrir 13 ára og eldri. Æfing-
ar verða:
mánudaga.......kl. 18:50-20:30
miðvikudaga....kl. 18:50-20:30
föstudaga......kl. 18:00-18:50
Allir eru velkomnir, byijendur og lengra komnir.
Upplýsingar eru í síma 72896.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Fóstrur, þroskaþjálfar eða fólk með uppeldismennt-
un óskast til starfa á neðangreinda leikskóla:
Amarborg v/Maríubakka, s. 73090
Gullborg v/Rekagranda, s. 622455
Klettaborg v/Dyrhamra, s. 675970
Seljaborg v/Tungusel, s. 76680
Steinahlíð v/Suðurlandsbraut, s. 33280
Vesturborg v/Hagamel, s. 22438
Eingöngu í 50% starf e.h. á eftirtalda leikskóla:
Grandaborg v/Boðagranda, s. 621855
Gullborg v/Rekagranda, s. 622455
Þá vantar starfemann með sérmenntun i stuðningsstarf
á leikskólann Brekkuborg v/Hlíðarhús, s. 679380
Eingöngu í 50% stuðningsstarf á leikskólann Rofaborg
v/Skólabæ, s. 672290
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, simi 27277
--------------------------------------------
ÚTBOÐ
Austurlandsvegur, Staðará-
Reynivellir
Vegagerö rikisins óskar eftir tilboðum I lagningu
11,9 km kafla á Austurlandsvegi I Austur-
Skaftafellssýslu ffá Staöará að Reynivöllum.
Helstu magntölur Fyllingar 23.000 m3, buröarlög
56.000 m3 og klæöing 72.000 m2.
Verki skal aö fullu lokið 1. júli 1994.
Útboösgögn veröa afhent hjá Vegagerð rlkisins
á Reyöarfiröi og I Borgartúni 5, Reykjavlk (aöal-
gjaldkera), frá og meö 21. þ.m.
Skila skal tilboöum á sömu stööum fyrir kl. 14:00
þann 4. október 1993.
Vegamálastjóri
_______________________________________________J