Tíminn - 06.11.1993, Síða 11
Laugardagur 6. nóvember 1993
Tíminn 11
5 Á sjötta áratugnum fóru fram
kjarnorkutilraunir f Kazakhstan og er
óhætt að segja að þær hafi haft ai-
varlegar afleiðingar og áhrifanna
gæti enn þann dag í dag. Hroðaieg-
ar afleiðingar geislavirkninnar má sjá
á þessu barni og segir svipur á and-
liti þess meira en mörg orð.
Höfundar mynda
IStephen Shames, Banda-
ríkjunum - Myndin, sem er
ein fimm mynda í myndröð,
fékk fyrstu verðlaun í
flokknum Fólk í fréttum.
2Tim Clayton, Ástralíu
Fékk þriðju verðlaun í
flokknum íþróttir.
3Bojan Stojanovic
Myndimar fengu fyrstu
• verðlaun í flokki fréttaskota.
4Paul Lowe, Bretlandi
. Myndin er ein fjögurra
mynda í myndröð, sem fékk
fyrstu verðlaun í flokki al-
mennra mynda.
5Paul Lowe, Bretlandi
. Myndin er ein fimm mynda
í myndröð sem fékk fyrstu
verðlaun í flokknum, Nátt-
úran og umhverfið.
6Robb Kendrick, Bandaríkj-
. unum
6 Séra Paui Schenck hefur baríst harðlega gegn fóstureyðingum I Bandaríkjunum. Til að leggja áherslu á málstað sinn tók hann á það ráð að sýna hvernig 23 vikna
gamalt fóstur lítur út.
Fréttaljósmyndasýningin World Prcss
Photo, var opnuð í gær í Kringlunni og
verður hún opin til 16. nóvembcr. Sýn-
ingin er geysilega fjölbreytt og alls eru
sýndar um 200 fréttaljósmyndir frá
1992, en þær voru valdar úr um 19 þús-
und myndum sem sendar voru í sam-
keppnina.
Um er að ræða farandsýningu
sem sýnd er í 60 borgum víðs-
vegar um heiminn. Það er
Listasafn ASÍ sem hefur frum-
kvæðið að því að fá sýninguna
hingað til lands og hingað til
hafa myndirnar verið til sýnis
þar, en þar sern umfang hennar
er orðið það mikið, er hún
núna sett upp í Kringlunni.
Sem oft áður eru hörmungar
heimsins ljósmyndurunum
hugleiknar og ekki er laust við
að óhug slái að mönnum, þeg-
ar sýningin er skoðuð. Svo
virðist sem hlutur stríðsfrétta-
mynda og mynda sem lýsa
eymd og hörmungum sak-
lausra fórnarlamba styrjalda,
fari stækkandi og draga má þá
ályktun að stríðsátök séu nú
grimmari en oft áður. Myndir
af afleiðingum kjamorkutil-
rauna í Kazakhstan og af
stríðshörmungum í Sómalíu
og ríkjum fyrrum Júgóslavíu,
bera þar hæst. Það er heldur
engin tilviljun að fréttamynd
ársins er frá Sómalíu.
Það em þó mörg önnur já-
kvæðari viðfangsefni á sýning-
unni, s.s. vísindamyndir,
íþróttamyndir og margt fleira
og eftir að hafa litið yfir sýn-
inguna er tvímælalaust hægt
að mæla með henni, ekki ein-
ungis fyrir þá sem hafa gaman
að fréttaljósmyndum, heldur
einnig þá sem fylgjast með
fréttum.
-PS