Tíminn - 06.11.1993, Page 17

Tíminn - 06.11.1993, Page 17
Laugardagur 6. nóvember 1993 Tíminn 17 Mæðgurnar samiýndu og morðingi þeirra Þaö gekk illa að upplýsa hvarf Rosemary Vasquez og móður hennar, Rose Santoro. Samkvæmt reglum New York lögregl- unnar er ékki hægt að lýsa eftir fólki á aldrinum milli 18 ára og 65 ára, ööruvísi en kringumstæður séu mjög grunsamlegar eða aðilinn sé fatlaður á einhvem máta. Með öðrum orðum; heil- brigðir einstaklingar sem lifa sjálfstæðu lífi og eru ekki á nokk- um máta bundnir öðrum að einhverjum skyldum, eru frjálsir ferða sinna árum saman, þótt ekkert spyrjist til þeirra. Lögregl- an getur ekki leitað allra þeirra sem taka skyndilegar ákvarðan- ir, og aukinheldur er það hluti af persónufrelsi einstaklingsins að vera engum háður og geta farið huldu höfði um tíma. í svona tilvikum mega orð kunningja og nágranna sín lítils en því fólki sem þekkti maeðgumar í Brooklyn, kom einmitt saman um að lífsmynstur þeirra væri mjög traust og í föstum skorðum og því væri eitthvað mikið að þegar þær hurfu skyndilega. Ofverndun dótturínnar Móðirin hafði lent í skilnaði 14 árum áður og það hafði tekið mikið á hana. Eftir það settist hún að hjá dóttur sinni sem var einhleyp. Þeir sem bjuggu í námunda við 26. stræti voru undrandi á hinu nána sambandi sem á milli mæðgnanna var. Á hverjum vinnudegi Rosemary, gátu þeir séð móður hennar fylgja henni til vinnu að neðanjarðargöngunum í u.þ.b. 15 mínútna fjarlægð frá heimili þeirra og síðan þegar vinnudegi lauk, var hún alltaf mætt til að taka á móti henni eins og tryggur eiginmaður. Þá fóru þær mæðgur allt að fimm sinnum í viku til kirkju og hlýddu á messu. Nágrannar þeirra gátu staðfest að konumar lifðu reglusömu lífi og allt var í föstum skorðum á þeirra heimili. Til að mynda borguðu þær alltaf leig- una á réttum tíma, 300 dala mánaðar- leigu fyrir íbúðina, og leigusalinn Iýsti þeim með orðunum: „Fullkomnir leigjendur". Þó fundust þeir sem töldu að Rose Santoro væri fullnáin dóttur sinni. Það var staðreynd að Rosemary var bráðmyndarleg, með hrafnsvart sítt hár og mörgum fannst sem hún ætti skilið að eignast góðan mann og fjöl- skyldu, en móðir hennar stóð yfirleitt í vegi fyrir því að hún kynntist ókunn- um mönnum. Þeir sem höfðu komið inn í hús mæðgnanna sögðu að það minnti á musteri, þar sem móðir Rosemary helgaði tvennt. Að öðrum þræði voru veggir og hillur hússins þakin trúar- legum táknum og myndum en einnig var í húsinu svo yfirgengilegt mynda- safn af dóttur hennar að lá við per- sónudýrkun. Hvað um það, öllum var Ijóst að móðir hennar var smeyk um að missa hana. Rosemary var að sjálfsögðu einbimi og ekki er óalgengt að þau njóti því- líkrar ofvemdunar frá 'foreldrum sín- um. I þessu tilviki voru aðstæður á þá lund að móðir hennar var beisk út í heiminn og fyrrverandi eiginmann, og hélt dauðahaldi í það sem hún átti eitt eftir að henni fannst. Sá vemdarhjúp- ur sem Rose Santoro óf dóttur sinni, var með öðmm orðum spunninn úr flóknum tilfinningum og þótt hún elskaði dóttur sína mikið óx biturðin hægt og hægt í hjarta hennar. Aðeins einn karímaöur Strax í æsku höfðu ungir menn gefið sig að Rosemary og reynt að fá hana á stefnumót en móðir hennar bannaði slíkt. í lítilli kistu fannst bréf sem ungur maður hafði skrifað til hennar á 18. aldursári þar sem stóð: „Þú veist að ég er hrifinn af þér og langar til að kynnast þér, en staða okkar er vonlaus vegna móður þinnar. Hún myndi aldr- ei leyfa þér að hitta mig.“ Rosemary kynntist einum karlmanni í lífinu. Frændi Rosemary hafði áhyggjur af þróun mála og ákvað að kynna hana fyrir kunningja sínum sem bjó í sömu blokk og hann. Sá var sikileyskur innflytjandi að nafni De- metrio Lifrieri. Demetrio var á svipuð- um aldri og Rosemary þegar þau kynntust, á miðjum þrítugsaldri. Hann var ekki bara myndarlegur og vel klæddur, heldur átti hann einnig fyrirtæki á sviði rafiðnaðar. Eitthvað varð til þess að móðir hennar lagði blessun sína yfir kynni þeirra. Næstu ár liðu í þokkalegri sátt allra aðila. Þó var samband Rosemarys og Demetrios einstaklega saklaust og minnti fremur á unglingasamband en hjá fullorðnu fólki. Það var m.a. vegna þess að móðir hennar hafði mjög ákveðnar skoðanir á siðgæði og því vörðu þau ekki nóttunum saman, heldur sáust aðeins tilfallandi yfir dag- inn. Mest höfðu þau símasamband. Demetrio hafði einstaklega gott lag á konum og hægt og rólega tókst hon- um að brjóta niður þá vamarmúra sem Rose hafði falið sig bakvið og áð- ur en varði kom Rose Santoro öllu hverfinu á óvart með eftirfarandi yfir- annars: „Hvað ætlar þú þér með manninn minn?“ Hvarfiö Þannig stóðu málin í lok ágúst 1989 og í byrjun september rann upp hinn fyrsti dagur þar sem mæðgumar borguðu ekki leiguna á tilskildum tíma. Nokkrir dagar liðu en þá gat leigusalinn ekki lengur setið á sér eft- ir að hafa reynt að hringja árangurs- laust bæði í vinnuna til Rosemary og heim til hennar. Hann gerði sér ferð að íbúðinni og bankaði á dyr. Enginn svaraði. Þá dró hann upp Iykil og fór inn í íbúðina. Enginn var heima en hann tók eftir vondri lykt af matarleif- um í eldhúsinu og sannfærðist því um að hvarf þeirra hefði borið að með snöggum hætti og allmargir dagar inkonan farið frá honum og sagðist ekkert geta sagt lögreglunni, hann hefði kynnst einhverri Rosemary og því hefði hún ákveðið að fara frá hon- um. Móðurbróðir Rosemary ákvað að gera eitthvað í málinu upp á eigin spýtur og réð einkaspæjara til að graf- ast fyrir um málið. Sá hét Roland Cadieux, gamlareyndur spæjari sem var að mestu leyti sestur í helgan stein. Vöruhúsiö Cadieux vann ötullega að málinu og lagði nótt við dag í hartnær þijú ár til að upplýsa það. Honum tókst að sann- færa lögregluna og saksóknara um mikilvægi þess og áður en langt um Rose Santoro. Frá sjónarhóli lögreglunnar var hvarf Rosemary Vasquez, 30 ára, og móður hennar, Rose Santoro 64 ára, ekki líklegt til að bera neitt dularfullt með sér. Það var ekkert í bakgrunni mæðgnanna, sem voru I óvenju nánu sambandi innbyrðis, sem benti til að að um saka- mál væri að ræða. Það varm.a. skýringin á því hversu seint og illa gekk að upplýsa mál þeirra. lýsingu. „Rosemary ætlar að giftast in- dælum manni," sagði hún. Síðan bætti hún við með móðurlegu stolti: „Hann er með eigið fyrirtæki og á ein- býlishús og ég ætla að flytja þangað með Rosemary og mun búa hjá þeim í framtíðinni. Þetta var sumarið 1988 en gleði hennar átti ekki eftir að vara lengi. Skjótt skipast veöur... Mánudaginn 29. ágúst tilkynnti Ro- semary vinkomu sinni í síma að aldrei yrði neitt úr hjónabandinu. Vinkona hennar hlustaði með samúð og for- undran á hina snöktandi Rosemary sem sagðist hafa verið svikin í tryggð- um og það sem meira var; hún og móðir hennar höfðu verið rændar. Þegar Demetrio var búinn að ákveða brúðkaupsdaginn hafði hann lýst fyrir mæðgunum að hann ætlaði að stækka við sig og þyrfti tímabundið örlitla fjárhagsaðstoð ef þær gætu látið eitt- hvað af hendi rakna. í blindri trú höfðu mæðgumar lánað honum 40.000 dali, eða aleiguna sem þær höfðu safnað á mörgum aðhaldssöm- um árum, en þar með var Demetrio á brott og kannaðist ekki við að hafa fengið neitt að láni. Viðskiptin voru upphaflega pappírslaus. Á sama tíma kom í Ijós að Demetrio Lifrieri átti eiginkonu sem hringdi heim til Rosemary og jós yfir hana úr skálum reiði sinnar og spurði meðal væru síðan. Hann sneri sér beint til lögreglunnar og þá komum við aftur að upphafinu. Lögreglan útskýrði fyrir honum að ekkert væri hægt að gera í málinu að svo stöddu og þá fyrst yrði eitthvað hægt að gera, ef náinn ættingi mæðgnanna myndi tilkynna um hvarf þeirra. Það var ekki fyrr en um miðjan nóv- ember sem móðurbróðir Rosemary ákvað að kanna málið og gerði sér ferð úr öðru fylki Bandaríkjanna til að líta sjálfur á vegsummerki í íbúðinni. Þeg- ar inn var komið fann hann í komm- óðuskúffu fjórar ávísanir, hverja um sig upp á 10.000 dollara, undirritaðar af Demetrio Lifrieri. Þeim fylgdi lítill miði frá bankagjaldkera þar sem stóð að engin innistæða hefði reynst fyrir ávísununum fjórum. Nú fyrst fóru hjólin að snúast þótt hægt væri. Lögreglan féllst á að lýsa í fyrsta skipti formlega eftir mæðgun- um, 4. desember 1988. Haft var sam- band við Demetrio og hann spurður um ávísanimar en hann gat ekki gefið neina haldbæra skýringu á þeim. Ekki var hægt að ákæra Demetrio fyrir morð þar sem líkin vantaði og reyndar var staða hans mjög góð þótt gmnur lögreglumanna beindist í æ ríkari mæli að honum. Þegar hér var komið sögu hafði eig- leið var her manna í fullri vinnu við að afla sér gagna. Hvaðanæva bárust vís- bendingar og þótt flestar reyndust gagnslausar syrti smám saman í álinn fyrir Demetrio Lifrieri. Demetrio hafði ýmislegt óhreint í pokahominu. Það vakti athygli fíkni- efnadeildar lögreglunnar þegar hann Iokaði rafmagnsfirmanu og keypti sér vöruhús. Að sögn hugðist hann flytja inn kaffi frá Brasilíu en talið var að til- gangur vöruhússins væri allur annar og verri. Demetrio var hins vegar kænn maður og mjög var um sig og þrátt fyrir að lögreglan gerði allt sem í hennar valdi stóð til að „negla“ hann, liðu tvö löng ár áður en hægt var að Iáta til skarar skríða. Þá loks taldi sak- sóknari sig hafa nægilegar sannanir fyrir eiturlyfjadreifingu Demetrios og vopnuð húsleitarheimild, réðist lög- reglan til inngöngu í vöruhúsið. At- lagan bar árangur því umtalsvert magn af kókaíni fannst og voru tíu manns handteknir, þ.á.m. Demetrio sjálfur. Að sögn samstarfsmanna Demetrios, sem reyndust fremur samvinnuþýðir í von um vægari refsingu, var Demetrio búinn að kaupa vömhúsið áður en mæðgumar hurfu af sjónarsviðinu. Tveir þeirra staðfestu að Rosamary hefði iðulega komið að hitta Demetrio og enginn vinskapur verið í síðustu skiptin. Að sögn þeirra höfðu þau rif- ist heiftarlega og ágreiningsefnið hafði verið 40.000 dalimir sem Ro- samary sagðist enn eiga inni. Þetta Rosemary Vasquez. vom mikiivægar upplýsingar fyrir ákæruvaldið því nú var hægt að sanna mögulegan tilgang með morðinu á mæðgunum. Ábending númer 1.000 Það vantaði ekkert til sakfellingar nema helstu sönnunargögnin, líkin tvö. Árlega em aðeins örfá morðmál upplýst í Bandaríkjunum ef líkin finn- ast ekki. Sýnt þótti u.þ.b. tveimur mánuðum eftir handtöku Demetrios að hægt væri að ákæra hann fyrir morð þótt Iíkin væru enn ófúndin. 16. september 1991, rúmum þremur ár- um eftir að sagan hefst, var Demetrio ákærður fyrir morðin tvö. Daginn eft- ir var ákæmnni slegið upp á forsíðum allra helstu dagblaða heimsins, enda hafði málið vakið gríðarlega athygli. Eftir fréttina af handtökunni barst ábending frá lesanda, ábending númer 1.000. Hún var jafnframt sú mikilvæg- asta. Viðmælandinn vildi ekki láta nafns síns getið en benti lögreglunni á að fara í bfiageymslu eina í grenndinni og skoða gráan Cadillac Sedan sem hefði verið í eigu Demetrios. Þegar lögreglan fylgdi ábendingunni eftir og opnaði skottið á bfinum, komu líkin tvö í Ijós. Reyndar var allt hold meira og minna rotnað af bein- unum en samt sem áður þóttust menn vissir um að jarðneskar leifar Rosemary Vasquez og móður hennar, Rose Santoro, væm fundnar. Líkin vom þétt vafin inn í plast og loftrýmið mjög lítið. Það kom lögreglunni meir en lítið á óvart þegar staðfest var að Demetrio hafði borgað hundarað dali á mánuði, síðustu þrjú árin fyrir „lík- geymsluna". Og það sem meira var, með ávísunum. Að vissu leyti má segja að um ófyrirgefanleg mistök af hálfu lögreglunnar hafi verið að ræða, að sjá ekki þennan möguleika, en eins og Cadieux sagði sjálfur: „Þetta kennir okkur að við getum ekki alltaf sett okkur í spor glæpamannanna, það á ekki alltaf við. Það sem okkur datt ekki í hug að Demetrio myndi gera, gerði hann, vegna þess að það var svo augljóst að okkur dytti það ekki í hug.“ Aldrei frjáls á ný Kmfning sannaði að líkin væm af mæðgunum tveimur og hafði Rose verið myrt með þungu barefli en Ro- semary kyrkt til dauða. Eftir að líkin fundust sá Demetrio loks sína sæng útbreidda og játaði sekt sína. 20. maí 1993 hófust réttarhöld yfir Demetrio Lifrieri sem skera úr um hver refsingin verður. Þegar þetta er ritað, býður hann enn dóms. Þó er sýnt að hann mun aldrei verða frjáls maður á ný. Mæðgurnar samrýndu verða ekki vaktar aftur til lífsins. Þrátt fyrir allt var kannski ekki að undra að Rose Santoro ofvemdaði dóttur sína.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.