Tíminn - 06.11.1993, Síða 24

Tíminn - 06.11.1993, Síða 24
Askriftarsími Tímans er 618300 NÝTT OG FERSKT . DAGLEGA MjffJ reiðholtsbakarí VÖLVUFELLI 13-SlMI 73655 PÓSTFAX TÍMANS Ritstjóm: 61-83-03 Auglýsingar: 61-83-21 T Tíminn LAUGARDAGUR 6. NÓV. 1993 j Fiskiþing Oánægja með kvótakerfið Þau tíðindi gerðust við lok Fiskiþings í gær að tillaga sem fól í sér stuðning við kvótakerfið og frjálst framsal veiðiheimilda var vísað frá með átján atkvæðum gegn þremur. Sá sem mælti með tillögunni til samþykkis var Jónas Haraldsson, stjómarformaður Fiskifélagsins, sem jafnframt er skrifstofustjóri Landssambands íslenskra útgerðar- manna. „Ég túlka þetta þannig að ja/nvel þeir sem eru fylgjendur þessa kerfis eða sætta sig við það eins og það er, séu ekki ánægðir með það og telji ekki ástæðu til að lýsa fögnuði yfir því. Mér finnst það vera mjög gott mál að menn skuli vera opnir fyrir gagnrýni á kerfið. Þetta bendir jafn- vel til þess að menn séu hugsanlega tilbúnir að ræða aðrar leiðir í sam- bandi við stjónunina, þótt ég vilji kannski ekki oftúlka það,“ segir Sveinbjörn Jónsson, trillukarl frá Suðureyri við Súgandafjörð, og full- trúi á Fiskiþingi. -GRH Hljóðfærasýning I Geysishúsi I gær var opnuð í Geyslshúsi í Aðalstrætl f Reykjavík sýning á gömlum og nýjum hljóðfærum. Þar er m.a. kom- ett sem Helgl Helgason tónskáld keypti og flutti til landsins um 1875 ásamt fleiri blásturshljóðfærum. Þá em á sýningunnl fiölur Þóraríns Guðmundssonar tónskálds og fiöluleikara, hluti af hljóðfærasafni Jans Moráveks o.m.fl. Markús Öm Antonsson borgarstjórí sýnir forseta íslands, Vigdfsi Finnbogadóttur, nokkra grípanna á sýnlngunnl ( Geysishúsl. Tímamynd Ámi Bjama ...ERLENDAR FRÉTTIR... SARAJEVO — Embættismenn S.þ. sögðu i gær aö þeir óttuöust aö Var- es yröi lögö algerlega (rúst þegar hermenn músllma fóm rænandi og ruplandi um bæinn ( miöhluta Bo- sniu sem þeir höfðu náö á sit{ vald I sókn gegn hermönnum Króata. TAIPEI — Klnverskri farþegaflugvél var rænt á leiö til Taiwan. Henni var ætlaö aö lenda á alþjóöaflugvellin- um (Taipei I gær aö sögn rikissjón- varpsins. MOSKVA — Rússneski utanríkis- ráöherrann Andrei Kozyrev, sagöi I gær aö yfirvöld I Moskvu væm mjög áhyggjufull vegna frétta um að kjamaoddar I Ukrainu væm aö ganga úr sér, en þaö sagöi hann geta valdiö stórslysi, „miklu alvar- legra en I Tsémóbýr. MOSKVA — Yfirmaöur rússneska sjónvarpsins hét þv( I gær aö frétta- flutninguraffyrstu kosningum ( landinu eftir fall Sovétrlkjanna yröi óhlutdrægur, en þekktur frjálslyndur stjómmálamaður lét I Ijós ótta um aö kosningabaráttan yröi óheiðar- leg. MOGADISHU — Bandariskir her- menn vona aö ákvöröun um aö setja þá aftur ( eftiriitsferöir um götur Mogadishu bindi enda á mglinginn um hvert hlutverk þeirra sé i Sómal- (u. Háttsettur embættismaður neyö- araöstoöar S.þ. sagöi þó I gær aö tillagan, sem á aö koma i veg fyrir aö byssumenn hindri neyöaraöstoð, hafi litil áhrif ef henni verði ekki fylgt eftir meö þeim stefnu aö afvopna sveitir uppreisnarmanna. JÓHANNESARBORG — Rikis- stjóm Suöur- Afriku og einhver ósáttfúsasti andstæöingur hennar, róttæka Alafriska ráöiö (Pan Afric- anist Congress), héldu i gær aöra viðræðulotu sina á einni viku en viö- ræöurnar em tilraun ti! aö stööva blóösúthellingar I Suöur- Afríku. BUJUMBURA — Tveir fyrmm valdamiklir menn innan hersins vott- uöu ( gær stuöning sinn viö forsæt- isráöherra Búmndi, konu úr rööum óbreyttra borgara, og lögöu fast aö henni aö koma úr felustaö sinum og stjóma landinu eftir aö valdarán mistókst en þaö hrinti af staö blóð- ugum átökum kynþátta. MALIBU, Kalifomíu — Dauðþreytt- ir slökkvimenn lýstu þvl yfir i gær aö tekist heföi aö ná tökum á skógar- eldunum sem æddu um hverfi frægöarfólks f Malibu en þá höföu þrír látið lifiö I eldunum. BELANGLO STATE FOREST, Ástralfu — Lik sjö bakpokaferöa- langa, fiestir vom ungir útlendingar, fundust f afskekktum áströlskum skógi og segir lögreglan að morö- inginn viröist vera sérfróöur ástr- alskur landnemi. RÓM — Lögreglu hefur veriö skipaö aö vera á veröi gagnvart sprengjum, ókyrrö meðal óbreyttra borgara eöa öömm aögerðum sem gætu hrint af staö upplausn á Italiu en þar hafa ásakanir um spillingu á hendur Osc- ar Luigi Scalfaro forseta komiö al- menningi í uppnám. AÞENA — Allt fór úr skorðum ( Aþenu i gær vegna rafmagnsleysis. Mörg hundmö borgarbúa festust ( lyftum, loka varð fyrirtækjum og skelfilegir umferöarhnútar mynduö- ust. PHNOM PENH — Norodom Si- hanouk, konungur Kambódiu, hefur sagt aö rániö á hinum frægu, æva- fomu helgigripum í Angkor væri hörmulegt og i stærri stll nú en nokkm sinni fyrr á siöustu 1.000 ár- um. KAUPMANNAHÖFN — Danskir björgunarmenn sem náöu kafbát nasista af hafsbotni fyrir þrem mán- uöum, sögöu i gær aö þeir hefðu fundið áfengi, smokka, plötur meö verkum Wagners og 50 kíló af skjöl- um, en ekki gullfjársjóöinn sem þjóösögur hafa gengiö um. þessum gámi eru yfir 15 þúsund pör af skóm. (slendingar eiga mikið af skóm sem þeir eru hættir að nota 30 þúsund pör af skóm til Chile Steinar Waage skókaupmaður er búinn að fylla tvo gáma af notuð- um skóm, en þeir verða sendir tll fátækra í Chile. Fyrri gámurinn er raunar þegar farinn af stað en síð- ari gámurinn fer af stað næstu daga. Steinar segist telja að búið sé að safna yfir 30 þúsundum para af skóm. Hann hyggst áfram standa fyrir söfnun á notuðum skóm og verða þeir sendir til Grænhöfðaeyja. Steinar sagði greinilegt að fólk ætti mikið til af skóm sem það væri hætt að nota. Mest allt af þessum skóm sé í góðu ástandi. Skórnir er yfirfarnir þegar þeir eru komnir út og við þá gert sem á því þurfa að halda. Steinar sagði að mikil þörf væri íyrir notaða skó í heiminum því víða væri fátækt fólk að finna. Hann sagði að á næstunni yrði safnað skóm fyrir fátækt fólk á Grænhöfðaeyjum. Skónum er safnað í þremur búð- um Steinars Waage í Reykjavík, skóbúðinni Ljóninu á ísafirði og skóbúð KEA á Akureyri. Samskip hefur tekið að sér að kosta flutning á skónum til Hamborgar, en kirkj- an sér síðan um að senda þá áfram til Chile, yfirfara þá og útdeila til þeirra sem á skónum þurfa að halda. -EÓ DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.