Tíminn - 17.03.1995, Blaðsíða 16

Tíminn - 17.03.1995, Blaðsíða 16
16 ftortWt - ALÞINGISKOSNINGARNAR 1995 Föstudagur 17. mars 1995 Sigbjörn Cunnarsson, Alþýöuflokki: ESB-abild tryggir betri hag lanasmanna Hver er sérstaöa þíns framboðs? Alþýðuflokkurinn — Jafnaöar- mannaflokkur íslands hefur alla tíð verið róttækur umbótaflokk- ur. Alþýðuflokkurinn hefur ætíð horft lengra fram á veginn en aðrir stjórnmálaflokkar hér á landi. Svo er enn. Alþýöuflokkurinn gengur á undan með þá kröfu að sameign þjóðarinnar á fiskimiðunum verði bundin í stjórnarskrá. Það mun verða krafa allrar þjóöarinn- ar, hvað sem hver segir nú um stundir. Þannig hefur það raunar verið með fjölmörg helstu umbótamál Alþýðuflokksins. Andstæöing- arnir hafa gjarnan rekið upp ramakvein og barist gegn þeim. Aldrei hefur þeim hins vegar dottið í hug ab reka þau til baka. Hver man ekki EFTA? Hver man ekki stóriðju? Hver man ekki EES- samninginn? Eða munu ef til vill einhverjir hinna stóryrtu and- stæðinga þess samnings leggja til ab honum verði sagt upp? Því verða þeir að svara. Alþýbuflokkurinn vill einnig einn flokka láta á það reyna hvort og hvernig samningum við getum náð við ESB. Þaö er höfubatriði í samninga- vibræbunum við ESB að viö höld- um fullum yfirráðum yfir fiski- miðum okkar. Að samningaferli loknu færi fram þjóbaratkvæða- greiðsla eftir rækilega kynningu á samningnum. Þannig -munum vib engu hætta þó vib göngum til samninga, heldur leita svara vib spurningum og fá þau eftir atvik- um. Það er vanvirða vib vel mennt- aða þjóð að ábyrgir stjórnmála- menn láti eftir sér hafa að mál, sem skipta framtíb þjóbarinnar miklu, „séu ekki á dagskrá". í kommúnistaríkjum segja stjórn- málamenn almenningi hvaba mál séu á dagskrá hverju sinni. Slíkt á varla við á íslandi, eða hvað? Mögulegt væri að telja upp mörg fleiri mál. Rýmið leyfir það hins vegar ekki. Framangreind mál skapa Alþýðuflokknum al- gera sérstöðu frá öbrum flokkum. Hvert er helsta baráttumálið? Ab sjálfsögbu er helsta baráttu- málið að bæta hag fólksins í landinu, auka réttlæti og jöfnuð. Þar sem lífskjör þjóðarinnar byggja að stærstum hluta á auð- lindum sjávar, er afar mikilvægt að ákvæði um sameign þjóðar- innar yfir auðlindinni verði sett í stjórnarskrá, þannig að öll tví- mæli verði af tekin. Það er ófært að afhenda fáum útvöldum yfir- ráð yfir fiskimiðunum. Þá teljum viö og að með samningi við ESB, sem þóknanlegur er þjóðinni, megi best og fljótvirkast bæta hag landsmanna, og bendum fyrst og fremst á lækkað mat- vælaverð í því sambandi og traustara og betra aðgengi ab helstu mörkuðum okkar. ■ Halldór Blöndal, Sjálfstœöisflokki: Háskólinn á Akureyri er mesta byggöamáliö Hver er sérstaða þíns framboðs? Því fylgir mikil sérstaða ab leiða lista öflugasta stjórnmála- flokks landsins í stærsta dreif- býliskjördæminu. Fylgi vinstri flokkanna, félagshyggjuflokk- anna, hefur löngum verið sterkt í Norðurlandi eystra, en frjáls- lynd sjónarmið einstaklings- frelsis og einkaframtaks átt und- ir högg að sækja. Kosningarnar núna snúast um það, eins og alltaf, ab Norðlendingar haldi þeim áhrifum sem þeir hafa haft í þingflokki Sjálfstæðis- flokksins og þar með í lands- stjóminni. Þess vegna verður ab vinna vel fyrir endurkjöri Tóm- asar Inga Olrich. Einn þingmað- ur fyrir Sjálfstæðisflokkinn er of lítiö fyrir Akureyri, Eyjafjörð og Þingeyjarsýslur. Hvert er helsta baráttumálið? Háskólinn á Akureyri, ef ég svara útúrdúralaust. Hann er mesta byggðamálið frá lýöveld- isstofnun og ég er stoltur af að hafa átt þátt í að gera drauminn um hann ab veruleika. Háskól- inn hefur gjörbreytt bæjarlíf- inu. Honum fylgir birta og bjartsýni og hann hefur víkkað framtíðarsýn Norðlendinga svo, að við getum ekki lengur séð Akureyri fyrir okkur án hans. Háskólinn hefur í vaxandi mæli beitt sér í samstarfi við atvinnu- lífið. Síðast í gær var undirritað- ur samstarfssamningur milli hans og Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins, sem lýtur m.a. að vöruþróun og gæöastjórnun. Það er mikilvægt, ekki síst í sambandi við þá áherslu sem bændur munu héðan í frá leggja á sjálfbæra þróun og vistvæna framleiðslu. Háskólinn er vinnustaður fyrir um 500 manns, þegar allt er talið, og er í örum vexti. ■ Steingrímur j. Sigfússon, Alþýöubandalagi: Forystuaflið á vinstri vængnum Elín Antonsdóttir, Kvennalista: Kvenna- listann í ríkisstjóm Hver er sérstaða þíns framboðs? Sérstaða G-lista Alþýðu- bandalags og óháðra í þessum kosningum felst m.a. í tvennu, það er skýrri málefna- legri sérstöðu annars vegar og hins vegar samstarfi Alþýðu- bandalagsins og fjölmargra nýrra liðsmanna, sem einnig standa að framboði G-listanna undir merkjum óháðra. G-list- arnir eru eina aflið sem gengur fram undir merkjum skýrrar vinstristefnu, meö róttækar áherslur í atvinnumálum og varöandi jöfnun lífskjara og velferðarmál. Framsóknar- flokkurinn skilgreinir sig aftur á móti með afdráttarlausari hætti en fyrr sem hreinan miðjuflokk, og önnur fram- boð hafa hvorki þá málefna- legu sérstöðu, né virðast líkleg til að fá þann styrk sem máli skiptir. G-listarnir og sú hreyf- ing, sem að baki þeim stendur, er því skýr valkostur og mót- vægi vib hægristefnu Sjálf- stæðisflokksins.v Sérstaða G-listanna felst svo einnig í samstarfi Alþýbu- bandalagsins og óháðra. Fjöldi nýrra liðsmanna er að koma til libs vib Alþýðubandalagið undir merkjum óháðra og velja þannig að efla og styrkja forustuafliö á vinstri væng ís- lenskra stjórnmála, frekar en gera enn eina tilraunina til að stofna nýja flokka. Hér í kjör- dæminu skipar einmitt Arni Steinar Jóhannsson 2. sætið, baráttusætið, en hann er þekktur baráttumaður fyrir málefnum landsbyggðarinnar og hefur áður starfað að þeim málum innan Þjóbarflokksins og Samtaka um jafnrétti milli landshluta. Hvert er helsta baráttumálið? Helsta baráttumál þessara kosninga telur G-listinn vera lífskjörin í landinu í víðtæk- asta skilningi þess orðs, þar með talið að allir hafi fulla at- vinnu og mannsæmandi laun fyrir hana. Höfuðviðfangsefni íslenskra stjórnmála á næstu árum er að okkar mati að tryggja fulla atvinnu og jafna og bæta lífskjörin í landinu. G-listarnir hafa sett fram skýra stefnu varðandi þessi veiga- mestu mál. Tillögurnar um uppbyggingu og eflingu at- vinnulífsins, sem oft eru kall- abar Útflutningsleiðin í höf- uðið á samnefndu riti, hafa vakið mikla athygli og um- ræður. Á stefnuþingi G- list- anna vom samþykktar róttæk- ar áherslur varðandi launa- stefnu, launajöfnun og skatt- kerfisbreytingar. Framboðib er því að okkar mati vel nestað í baráttuna hvað þessi helstu grundvallarmál stjórnmál- anna og þjóðmálaumræöunn- ar snertir. Hver er sérstaða þíns framboðs? Kvennalistinn er mótaður af konum og byggður á reynslu, verðmætamati og lífsgildum kvenna. Kvennalistinn er kven- frelsisafl, sem hlustar á mis- munandi raddir kvenna og tekur mið af margbreyti- leika þeirra. Kvennalistinn berst fyrir jafnrétti allra, hvort heldur er til áhrifa, náms, launa eða atvinnu, óháð búsetu og kyni. Hvert er helsta baráttumálið? Kvenfrelsi sem byggir fyrst og fremst á efnahagslegu sjálfstæði kvenna. Til þess að konur geti orðiö efnahags- lega sjálfstæðar þarf að auka fjölbreytni í atvinnu og stuðn- ing við sjálfsbjargarviðleitni í atvinnusköpun, svo sem með rábgjöf, fjármagni og markaðs- leit. Með aukinni sjálfsvitund kvenna hafa þær æ meira tekið málin í eigin hendur og skapað eigin atvinnutækifæri. En eins og tölur sýna hefur atvinnuleysi bitnað harðast á konum og að- gerðir stjórnvalda til ab sporna við því virbast fyrst og fremst beinast að því að skapa körlum störf. Það er sjálfsagður réttur kvenna að hafa störf við sitt hæfi og ab þau séu metin til launa á við störf karla; til þess á reyndar öll fjölskyldan kröfu. Konur þurfa völd og áhrif til að breyta aðstæðum sem þeim og börnum þeirra eru búnar. Því þarf Kvennalistann í ríkis- stjóm.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.