Tíminn - 17.03.1995, Page 18
18
Wmtom
Föstudagur 17. mars 1995
Árni Benediktsson:
Fortíðarvandinn fyrr og nú
Þessi grein er skrifuö vegna orða
sem forsætisráðherra lét falla í
eldhúsdagsumræöunum þann
22. febrúar, en þar sagði hann að
stöðnunarskeið hefði hafist með
myndun ríkisstjórnar Steingríms
Hermannssonar og Ólafs Ragn-
ars Grímssonar haustið 1988,
eins og hann orðabi það. Forsæt-
isráðherra viröist vera ókunnugt
um stöbu efnahagsmála haustið
1988 og hefur því komist upp
meb það átölulaust í heilt kjör-
tímabil, sennilega af því að hann
veit ekki betur, að halda því fram
ab ríkisstjórnin sem sat frá hausti
1988 til vors 1991 hafi borið
ábyrgð á því ástandi sem var þeg-
ar hún kom til valda haustið
1988. Þessi ókunnugleiki forsæt-
isráðherra kann að hafa valdið
þeim afdrifaríku mistökum sem
núverandi ríkisstjórn gerði á
sviði efnahagsmála á fyrstu árum
ferils síns. Mistök sem leiddu til
þess að þaö endurreisnarstarf,
sem hófst haustið 1988 og var
komið vel á veg vorið 1991, var
stöðvað og stóð svo hátt á þriðja
ár.
Úlfur, úlfur
Þegar lengi hefur verið hrópað
úlfur, úlfur, án þess að úlfurinn
láti sjá sig, verbur mönnum oft á
ab láta af þeim andvara sem þarf
ab hafa á sér. Lengi hafði verið
varað við veröbólgunni, en hún
hafði ekki þau áhrif sem hún var
sögð hafa, eða að minnsta kosti
voru mönnum áhrifin ekki ljós.
Menn gerðu sér ekki ljóst hvern-
ig verðbólgan holaði atvinnulíf-
ið að innan, þannig ab víða stóð
ekkert eftir nema skelin. Á með-
an á því stóð voru lífskjörin betri
en efni stóðu til. Árin 1987 og
1988 voru flestir hættir ab taka
mark á viövörunum um hættuna
af verðbólgunni. Afleiðingarnar
urbu þær að á þeim tíma fóru rík-
isfjármálin úr öllum böndum,
kostnaður margra atvinnugreina
var í litlu samræmi við tekjur, og
úlfurinn lék lausum hala um
efnahagslífið. Þetta duldist ekki
þeim sem voru staddir úti í hag-
anum, þó að það færi ef til vill
framhjá einhverjum sem inni
sátu og ornuðu sér vib eldana.
Atvinnuvegirnir voru að hruni
komnir og lífskjörin hlutu að
versna vegna þess að það hafbi
verib haldið uppi fölskum lífs-
kjörum. Um haustib 1988 var
flestum orðib þetta ljóst og ný
ríkisstjórn, sem tók vib völdum,
hafði þab ab markmibi að vinna
sig út úr vandanum, koma í veg
fyrir að atvinnulífib stöðvaðist
og að ná valdi á ríkisfjármálun-
um.
Eftir á má segja að sú ríkis-
stjóm hafi farið of hægt af stab.
Hún ákvab ab „vinna sig út úr
vandanum" í staö þess að skera á
hann, ef svo má ab orbi komast.
Engu ab síður vannst mikið á.
Tímamót urbu þegar abilar
vinnumarkaðarins tóku höndum
saman við ríkisstjórnina í árslok
1989 um ab kveba verbbólguna
niður. Við það vöknuðu vonir
um ab takast mætti ab rétta at-
vinnulífib við á fáum árum,
koma í veg fyiir þab atvinnu-
leysi, sem vofði yfir, og lífskjör
gætu farib að batna á ný ab fáum
árum libnum. Staða atvinnulífs-
ins batnabi mjög á árinu 1990 og
fram eftir ári 1991 og allt benti
til áframhaldandi þróunar í þá
átt, eins og til var stofnað. En þá
skipti aftur um ríkisstjórn og
staban gjörbreyttist.
Skipt um stefnu
Staðan gjörbreyttist vegna þess
að skipt var um stefnu. í stab
þess að hlúa ab atvinnulífinu var
nú í mörgum tilfellum þrengt að
því. í besta falli var þab látib af-
skiptalaust. Það hlýtur að verða
verðugt rannsóknarefni síðari
tíma hvað 'þab var sem gerðist
með stjórnarskiptunum voriö
1991. Það er ekkert vafamál að
efnahagslífið átti vib mikinn
vanda að etja og þurfti mjög að
hlúa að því. Það var vandinn frá
árinu 1988 og verðbólguárunum
þar á undan. Vandi sem ríkis-
stjórnin, sem sat frá hausti 1988
til vors 1991, var að leysa, þó að
löng leiö væri ófarin. Margt
bendir til þess, ekki síst ofan-
greind ummæli forsætisráðherra,
ab skipt hafi sköpum um efna-
hagsstjórnina sá misskilningur
núverandi ríkisstjórnar að
vandamálin frá 1988 stöfuðu af
efnahagsstjórn stjórnarinnar
sem sat ab völdum frá hausti
1988 tilvors 1991.
Á skömmum tíma hvarf sá
ávinningur sem náðst hafði í síð-
ari ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar. Atvinnuleysið, sem
barist var vib og var á undan-
haldi, kom nú fram af fullum
þunga og síban hefur verið við-
varandi atvinnuleysi. Þab er lítil-
mótlegt að hæla sér af því að at-
vinnuleysi sé hér minna en víða
annars staðar. Á síöustu árum
hefur atvinnuleysi vaxib meira
hér en víöast hvar annars staðar.
Atvinnuleysi er á fáum ámm
orðib landlægt. Þab er gjörbreyt-
ing frá því sem áður var. Og þab
er það sem skiptir máli, en ekki
hitt hvort ástandib er einhvers
staðar enn vena.
Á fyrstu árum þessarar ríkis-
stjómar fór mikil orka í aö móta
nýja stöbu atvinnuveganna,
sýna fram á að þeir mættu einsk-
is vænta af stjómvöldum. Þeir
ættu sjálfir að laga sig að aðstæb-
um hverju sinni. Sýna fram á að
allt það, sem fyrri ríkisstjóm
gerbi til þess ab styrkja stöbu at-
vinnulífsins, hefði verið rangt.
Aubvitaö er það rétt að ríkisvald-
ib á fyrst og fremst ab hugsa um
að hafa umhverfi atvinnurekstr-
arins í lagi, en minna ab hugsa
um einstakar atvinnugreinar og
einstök byggðarlög. Hins vegar
hefur allt sinn tíma. Til þess að
koma atvinnuvegunum á eðli-
legan rekspöl ab nýju, varð að
leggja eðlilega undirstöðu frá
hausti 1988. Undirstaða at-
vinnulífsins var brostin. Sú ríkis-
VETTVANGUR
„Á síöustu árum hefur
atvinnuleysi vaxið meira
hér en víðast hvar annars
staðar. Atvinnuleysi er á
fáum árum orðið land-
lœgt. Það er gjörbreyting
frá því sem áður var. Og
það er það sem skiptir
máli, en ekki hitt hvort
ástandið er einhvers stað-
ar enn verra."
stjóm, sem þá tók vib, varb ab
leggja nýja undirstööu. Til þess
þurfti hún að beita ýmsum tíma-
bundnum ráðum. Þegar ríkis-
stjómin fór frá vorið 1991, var
ennþá langt í land ab búib væri
ab treysta 'stöðu atvinnulífsins
eins og þurfti, þó að allt væri á
réttri leið. Mestu máli skipti þó,
að tekist hafði að ná tökum á
þeim fortíðarvanda, sem löngum
hafði reynst erfiðastur, en þab
var verðbólgan. Með dyggri ab-
stob abila vinnumarkabarins var
verbbólgan að komast í svipab
horf og var í nálægum löndum.
Núverandi ríkisstjóm eyddi í
upphafi ferils síns mörgum orð-
um og mikilli orku í að draga
kjarkinn úr mönnum. Lögb var
höfubáhersla á að allar tilraunir
síbustu ára til nýsköpunar í at-
vinnulífinu hefbu verib rangar
og dæmdar til að mistakast. Eng-
in tilraun var gerð til þess ab skil-
greina hvers vegna þær mistók-
ust, en síðustu ríkisstjóm kennt
um allt saman, ekki síst það sem
ekki var á hennar valdi. Það við-
horf varð fljótlega uppi meðal
landsmanna, að í stab framtaks
væri rétt að halda að sér höndum
og aðhafast ekkert. Þetta varb til
þess að seinka efnahagsbata um
árabil. Sá bati, sem náðist árið
1990 og framan af ári 1991,
stöðvaðist og þab er fyrst í árslok
1993 sem rofar til að nýju, en þá
var botni náð svo ab allar leiðir
hlutu að liggja upp á við. Þar að
auki hafði ríkisstjórnin snúið við
blaðinu í vibhorfum til atvinnu-
mála. Þar vó einna þyngst að
hún hafði látib undan kröfu
verkalýðshreyfingarinnar um
vaxtalækkun, sem löngu var orð-
in tímabær. Þar að auki hafði
hún í ýmsu sveigt stefnu sína inn
ab miðjunni, eins og löngum
hefur verib happadrýgst.
Þab er mjög athyglisvert að
þegar núverandi ríldsstjórn átt-
aði sig á því að atvinnulífib
þurfti velvildar við og margar
greinar þess vom svo veikar aö
ekki varð hjá því komist ab
hjálpa þeim yfir hjalla, greip hún
til sömu ráða og síðasta ríkis-
stjórn gerði og hún hafði gagn-
rýnt mest. Hún gekk þó stundum
ennþá lengra. í stað þess að að-
gerðir síðustu ríkisstjórnar til
stuönings atvinnulífinu vom
fyrst og fremst almennar, þ.e.a.s.
nábu til heilla atvinnugreina,
leggur núverandi ríkisstjórn
vemlega stund á sértækar ráb-
stafanir. Þar má nefna aðstoð vib
þann hluta landsmanna sem býr
á Vestfjörðum, sem vissulega er
alls góðs maklegur, aðstoð við
hluta skipasmíðaiðnaðarins, að-
stoð við þann hluta smábáta sem
er á aflamarki, skuldbreytingu í
Fiskveibasjóöi sem nær ekki til
allra hráefnisöflunarskipa, aö-
stoð við eitt útgerðarfyrirtæki við
endurkaup skips. Þá er það nýtt
ab efna til útgjalda strax, en afla
teknanna ámm eða áratug
seinna, eins og gert var í lögun-
um um Þróunarsjób og eins og
ákveðið hefur verið ab gera í
vegagerð.
Sjálfstæbisflokkurinn
sýndi ábyrgb, og þó
Þó að margir hafi gleymt þvi
nú, var almennt vitað og viður-
kennt í íslensku atvinnulífi þegar
leib á árib 1988, að engu mátti
muna ab stórslys yrði. Þess vegna
var almenn samstaba um nauð-
syn þess að gera róttækar ráðstaf-
anir, þó að margir hefðu athuga-
semdir viö þær einstöku aðgeröir
sem gerðar vom, og þætti ekki
nógu hart gengib fram. Þab hefur
löngum verið einkenni á íslensk-
um stjórnmálum að Sjálfstæbis-
flokkurinn hefur verið erfiður í
stjórnarandstöðu og hefur mörg-
um þótt að stundum skeyti hann
minna um þjóðarhag en ímynd-
aða eða raunvemlega flokkshags-
muni. í þetta skipti brá öbmvísi
við og er nóg ab geta þess að at-
vinnurekendur innan flokksins
tóku af fullum heilindum þátt í
„þjóðarsáttinni". Árib 1990 tóku
sjálfstæðismenn í atvinnurekstri
undir áraburð ríkisstjórnarinnar
og töldu sig reyndar hafa fingur á
stýrinu líka. Þeim var vel ljóst
hve miklu skipti að koma at-
vinnurekstrinum í eðlilegan far-
veg að nýju. Forysta Sjálfstæðis-
flokksins virtist láta sér þetta vel
líka um sinn.
Þab var þó ekki lengi. Borgar-
stjórinn í Reykjavík snerist hart
gegn „þjóðarsáttinni" og beitti
borginni ótæpilega fyrir sig. Það
er mikill misskilningur að Mark-
ús Örn Antonsson og Árni Sig-
fússon beri einir ábyrgð á þeirri
skuldasöfnun, sem Reykjavíkur-
borg stóð fyrir á síðasta kjörtíma-
bili. Gmnninn að þeirri fjármála-
stjórn lagði Davíð Oddsson
haustið 1990 og veturinn þar á
eftir. Þetta gerði þáverandi ríkis-
stjórn vissulega erfiðara fyrir í
baráttunni við verðbólguna og
annan fortíöarvanda.
Fortíbarvandinn
í upphafi núiíöandi kjörtíma-
bils lagði ríkisstjórnin mikla
áherslu á að viö fortíbarvanda
væri að glíma, fyrst og fremst
vegna verka fyrri ríkisstjórnar.
Orðið fortíðarvandi var nýtt í
umræðunni, en vandinn var að
sjálfsögðu eldri. Þab er ekki nýtt
að ríkisstjórnir taki við fortíðar-
vanda. Hlutverk síðusm ríkis-
stjórnar var ab stærstum hluta að
leysa fortíðarvanda. Á sumum
sviðum heppnaðist það vel, sér-
staklega varðandi afkomu at-
vinnuveganna og í barátmnni
við verðbólguna. Á öbmm svið-
um heppnaðist miður. Til dæmis
gekk glíman við ríkisfjármálin
ekki eins vel. Skuldir heimilanna
héldu einnig áfram ab aukast, þó
ab hraðinn væri minni en síbar
varð. Einhverjir munu segja að
sá tími sem fyrrverandi ríkis-
stjórn hafði til umráða, tvö og
hálft ár, hafi verið of skammur til
þess ab hægt væri að ná fullum
árangri og má það vel vera rétt.
Núverandi ríkisstjórn tók við
fortíöarvanda, eins og allar abrar
ríkisstjómir hafa alltaf gert.
Munurinn er þó sá ab nú var lagt
kapp á að vekja athygli á vand-
anum og að kenna fyrri ríkis-
stjórn um hann. Þess vegna er
ekki úr vegi að horfa yfir svibið
og sjá hvernig til hefur tekist í tíð
núverandi ríkisstjórnar. Það er
skemmst frá að segja ab ekkert
þeirra vandamála, sem í upphafi
kjörtímabilsins var skilgreint
sem fortíðarvandi, hefur verib
leyst. Flest þessara vandamála
eru nú stærri og erfiðari viðfangs
en í upphafi kjörtímabilsins og
nægir þar að nefna skuldir ríkis-
ins og skuldir heimilanna. Þá
hefur nýtt vandamál bæst við
þann hrikalega fortíðarvanda,
sem næsta ríkisstjóm verður að
glíma við. Það er atvinnuleysib,
sem hefur orbiö varanlegt á
þessu kjörtímabili. Næsta ríkis-
stjórn verbur því ab glíma við
stærri fortíðarvanda en ábur hef-
ur þekkst.
Höfundur er formabur Vinnumálasam-
bandsins.