Tíminn - 29.07.1995, Page 7
Laugardagur 29. júlí 1995
SfMfflW
7
Menntamálaráöherra ákveöur aö skólahald veröi í Reykholti nœsta
vetur:
Áhersla á áhugasvið
og tómstundir
Menntamálaráðherra hefur tek-
ið ákvörðun um að skólahald
verbi í Reykholtsskóla næsta
vetur. Skólameistari Fjölbrauta-
skóla yesturlands á Akranesi,
Þórir Ólafsson, fór á fund í
menntamálarábuneytinu í vik-
unni þar sem hann lagbi fram
tillögur um áframhald starfsins
í Reykholti og gerbi tillögur um
rábningu bæbi á stjórnanda og
kennurum næsta vetur. Þær til-
lögur voru samþykktar.
Sex kennarar verða vib skólann,
sem allir voru starfsmenn skólans
sl. vetur. Þórunn Reykdal hefur
verib rábin .stjórnandi. Hvorki
Oddur Albertsson né Ólafur Þ.
Þórðarson sóttu um starf vib skól-
ann.
Þeim, sem sent hafa inn um-
sókn, var sent svarbréf í gær, en
þá lágu fyrir 43 umsóknir um
skólavist vib skólann.
„Þab er spurningarmerki vib
fjóra eba fimm sem er óvíst að
geti nýtt sér þetta, en abrir fengu
jákvætt svar. Það er mikib verib
ab spyrja og enn verib ab senda
inn umsóknir, þab koma hingab
þrjár-fjórar umsóknir á dag, þann-
ig að ég á von á að vib eigum eftir
ab sjá fimmtán-tuttugu umsóknir
í viðbót. Vib höldum umsóknar-
fresti opnum út ágúst," segir Þórir
Ólafsson skólameistari.
Þórir segir ab í Reykholti verði
um að ræða eins vetrar nám sem
hafi nokkra sérstöbu, þar sem gert
sé ráb fyrir mikilli áherslu á ab
styrkja nemendur almennt, efla
sjálfstraust þeirra og samskipta-
hæfni og taka á sérstökum náms-
vandamálum ef þau eru fyrir
hendi. Einnig verði lögb áhersla á
áhugasvib og tómstundir og lögb
rækt við áhugamál sem nemend-
ur kunna ab hafa, en til þess verba
nýttar ýmsar sérstakar aðstæbur
sem eru 1 Reykholti, bæbi um-
hverfi og mjög góð abstaba sem er
fyrir hendi í skólanum.
Námib í Reykholti verbur í raun
og veru sambland af hefðbundn-
um skóla og nýbreytni. Þarna
munu nemendur einnig geta lok-
ið hefbbundnum framhaldsskóla-
áfanga og lokib sínum námsein-
ingum.
„Kostnaburinn er ekki orðinn
Nemendur Reykholtsskóla viö mótmœli.
ljós, vegna þess ab vib höfum eig-
inlega orðið að sumu leyti að fá
að víkja því til hliðar, því allt
sumarib hefur farið í þetta áríb-
andi verkefni að kynna, byggja
upp og innrita," segir Þórir og
heldur áfram:
„Rábuneytið gerir ráð fyrir í sín-
um tillögum að þarna verði skóla-
hald sem verði nokkru dýrara en í
almennum framhaldsskólum. En
mér sýnist ab ef vib náum fimm-
tíu nemendum — ég tala nú ekki
um yrbu þeir sjötíu til níutíu, eins
og ég tel nú líklegt haustið 1996
— þá verbur þetta ekkert mikib
dýrara en venjulegur framhalds-
skóli. En þetta verbur náttúrlega
dýrara ef nemendur verba ekki
nema milli þrjátíu og fjörutíu. En
náist þessi nýting, sem ég er mjög
bjartsýnn á að verbi 1996, þá er-
um við ekki að tala um neitt veru-
lega dýrari skóla en gengur og ger-
ist á landinu."
-TÞ, Borgamesi
Slysavarnafélag íslands:
Fótboltamörkin
verður að festa
Slysavarnafélag íslands hefur
sent frá sér tilkynningu þar
sem varab er vib þeirri hættu
ab fótboltamörk séu ekki
tryggilega fest nibur. Mörg
slys hafi gerst meb þessum
hætti, þar af eitt nú mjög ný-
lega.
I frétt frá SVFI segir ab sex ára
gamall drengur hafi slasast af
þeim sökum á knattspyrnuvelli
í Hafnarfirbi fyrr í mánuðinum
og alls hafi 29 börn slasast með
þessum hætti sl. 14 ár. Segir
jafnframt ab heilbrigðisfulltrúar
hafi nú sérstakar gætur á fót-
boltamörkum og Hollustuvernd
ríkisins hafi hvatt til þess ■
Ingibjörg Þorsteinsdóttir píanóleik- Auöur Gunnarsdóttir sópransöng-
ari í Stykkishólmi.
kona kemur nú fram ífyrsta skipti
á konsert hér heima.
Þriöjudagstónleikarnir
í Listasafni Sigurjóns á Laugarnesi:
Söngur og píanóleikur
ungra tónlistarkvenna
Tvær ungar og efnilegar tónlist-
arkonur halda tónleika á þribju-
dagskvöldib í Listasafni Sigur-
jóns Ólafssonar í Laugarnesi í
Reykjavík. Þetta em sópransöng-
konan Aubur Gunnarsdóttir,
sem heldur þar sína fyrstu opin-
bem tónleika, og Ingibjörg Þor-
steinsdóttir píanóleikari.
Aubur útskrifaðist frá Söngskól-
anum í Reykjavík 1991 og mun
ljúka.námi frá tónlistarháskólan-
um í Stuttgart á næsta sumri.
Framundan hjá henni er einnig ab
syngja hlutverk Michaelu í Car-
men og verkefni meb Fílharmón-
íuhljómsveitinni í Stuttgart.
Ingibjörg nam píanóleik vib
Tónlistarskólann í Reykjavík og
síðar í nokkur ár í Guildhall Scho-
ol of Music and Drama í London
og lauk þaðan einleikaraprófi
1981. Hún hefur síban lengst af
verib píanókennari í Borgarnesi,
en einnig kórstjóri. Hún býr í
Stykkishólmi í dag og starfar þar
við list sína.
■
Haflibi Hall-
grímsson
opnar mynd-
listarsýningu
Örn Þórisson framkvœmdastjóri Miölunar, Grétar Friöriksson, nýbakaöur
tölvueigandi, Hjalti Már Bjarnason frá Nýherja og Siguröur Frosti Þóröar-
son, þjónustufulltrúi Miölunar.
Fékk tölvu aö launum
Grétar Fribriksson hjá Fisk-
markabnum í Hafnarfirbi var
hinn heppni þegar dregib var
um hvaba fyrirtæki í Net-
fangaskránni 1995 hreppti
Tulip margmiblunartölvu frá
Nýherja.
Skráin er gefin út af Miölun
ehf. í samvinnu vib Icepro,
nefnd sem stuðlar aö einföldun
og samræmingu í vibskiptum á
íslandi. Upplag skrárinnar er 5
þúsund eintök og henni dreift
endurgjaldslaust til skráðra að-
ila. Skráin kemur út í september
nk. ■
Frá Þórbi Ingimarssyni, fréttaritara Tím-
ans á Akureyri.
í dag verður opnuð sýning á
verkum Hafliða Hallgrímssonar,
myndlistar- og tónlistarmanns, í
Listasafninu á Akureyri en sýn-
ing Hafliða er liður í dagskrá
Listasumars '95 á Akureyri. Haf-
liði er kunnur fyrir sellóleik en
hefur einnig fengist við tón-
smíðar og myndlist. Á sýning-
unni í vestursal listasafnsins
verða sýndar 35 myndir sem
listamaðurinn hefur gert á und-
anförnum þremur árum. Við
opnun sýningarinnar mun
Helga Bryndís Magnúsdóttir
leika nokkur píanóverk eftir
Hafliða en auk þess verður efnt
til tvennra tónleika á Akureyri
þar sem verk Hafliða verba flutt.
Tríó Reykjavíkur mun halda
tónleika í listasafninu 2. ágúst
þar sem Halldór Haraldsson pí-
anóleikari, Gubný Guðmunds-
dótti fiðluleikari og konsert-
meistari Sinfóníuhljómsveitar
íslands og Gunnar Kvaran selló-
leikari koma fram. Síðari tón-
leikarnir verða 13. ágúst og þar
leikur Helga Bryndís Magnús-
dóttir píanóverk eftir lista-
manninn. ■
Óttast um líf 4.000
manna á knattspyrnuvelli
Amnesty International telur
ástæbu til að óttast um afdrif allt
ab fjögur þúsund karlmanna sem
Bosiiíu- Serbar tóku höndum er
þeir nábu Srebreníku á sitt vald
og fluttu á knattspyrnuvöll í
bænum Bratúnak. Heimildar-
menn Amnesty segja ab mennirn-
ir hafi verib yflrheyrbir vegna
hugsanlegrar abildar þeirra ab
stríbsglæpum. Óttazt er að aftök-
ur hafi farib fram og ab menn
sæti pyntingum. Talib er að flest-
ir hinna handteknu, ef ekki allir,
séu óbreyttir borgarar, en þeir
yngstu eru sextán ára ab aldri.
Sögur fara af því að konur hafi
flúib Srebreniku akandi þegar Bo-
sníu-Serbar hertóku gribasvæbi
Sameinuðu þjóðanna þar í grennd
og hafi verið numdar á brott er þær
voru á leib þaban akandi.
íslandsdeild Amnesty Interna-
tional vekur athygli almennings á
þeim möguleika ab hvetja stjórn-
völd í Belgrað til abgerba, eins og
segir í fréttatilkynningu, en það má
gera meb því ab senda bréf, póst-
kort eða símbréf til:
Biro Republice Srpske
MoOe Pijade 8
11000 Beograd
Federal Repulic of Yugoslavia
Telefax númerib er:
381 11 338 876
íslandsdeildin lætur í té eftirfar-
andi tillögu að texta:
Dear Sir(s),
I express my concern about the
risk of ill tratment, torture, „dis-
appearance" and deliberate and ar-
bitrary kiilings of men over 16,
detained following the capture of
Srebrenica. I urge that they be
granted full safeguards according to
international humanitarian law,
and in particular, that they be
protected from ill treatment and
torture.
Furthermore, I express concern
about the reports of women refuge-
es being abducted by members of
the Bosnian Serb armed forces from
vehicles transporting them out of
the Srebrenica area.
Sincerely, (undirskrift). ■