Tíminn - 29.07.1995, Blaðsíða 10
10
Laugardagur 29. júlí 1995
Hvab aöróknina varö-
ar er þaö eitthvaö
sem menn renna al-
veg blint í sjóinn meö. Hins-
vegar er alveg ljóst aö mikill
fjöldi mætir, áhuginn er þaö
mikill," sagöi Kristinn Sæ-
mundsson, framkvæmda-
stjóri tónlistarhátíöarinnar
Uxa á Kirkjubæjarklaustri, í
samtali viö Tímann.
Búast má viö aö tónlistarhá-
tíöin á Kirkjubæjarklaustri
veröi afar fjölsótt. Undirbún-
ingur allur miðast við 10 þús-
und gesti og þeir fjörutíu lög-
regluþjónar sem veröa þar viö
störf eiga aö geta ráðið við
þann fjölda. Þá verða ýmsir
aöilar viö gæslustörf.
✓
Ahersla lögb á
danstónlist
Sérstök áhersla veröur lögð á
svonefnda danstónlist á þess-
um tónleikum. „Danstónlist-
inni er skipt upp í hópa, ein-
sog rokkinu og öörum tónlist-
arstefnum. Flóra danstónlist-
arinnar á Kirkjubæjarklaustri
verður mjög fjölbreytt og
spannar allan hringinn, nema
kannski aö farið verði út í þaö
allra poppaðasta. Flest veröa
þetta bönd í virtari kantinum
sem við fáum — ekki eitthvert
vinsældajukk," einsog Krist-
inn Sæmundsson komst að
orði í samtali við blaðið. Hann
sagði að ennfremur yrðu á
svæðinu rokkhljómsveitir,
bæði innlendar og erlendar.
Björk er há-
punkturinn
Hápunkturinn á Klaustri
verður vafalitið Björk Guð-
mundsdóttir. Aðrar sveitir
sem má nefna eru Bubbieflies,
Drum Club, Exem, GCD, Kus-
ur, Prodigy, Chapterhouse og
SSSól. I>á eru aðeins fáeinar
nefndar.
Kristinn Sæmundsson segir
að tónlistarhátíðin sé af öðr-
um meiði en þær hátíðir sem
haldnar hafa verið um versl-
unarmannahelgina til þessa,
s.s. Þjóðhátíð í Eyjum, Neista-
flug, Galtalækur og fleiri.
„Klaustur verður ekki útihátíð
í eiginlegri merkingu heldur
erum við að skipuleggja tón-
leika. Þetta er ekki ósvipað
Hljómsveitin
The Prodigy.
Tjaldsvœbiö ab Kleifum, skammt
frá Kirkjubæjarklaustri. Þar verbur
Uxi haldinn.
Bandulu verbur á Uxa.
Tónlistarhátíöin Uxi veröur haldin á Kirkjubœjarklaustri. Kristinn Sœ-
mundsson framkvœmdastjóri:
Ekki eitthvert
vinsældajukk"
tónlistarhátíðinni í Hróars-
keldu í Danmörku. Sú hátíð
nýtur æ meiri vinsælda og sí-
fellt fleiri sækja," sagði Krist-
inn.
Hætta á sætaskorti
Fram kom í máli Kristins að
Kirkjubæjarklaustur hentaði
afar vei undir tónleika sem
þessa. Veðursæld þar væri
mikil og aðstæður allar mjög
. hentugar.
Austurleið hf. mun annast
sætaferðir milli Reýkjavíkur og
Kirkjubæjarklausturs og að
sögn Kristins er helst hætta á
því að hörgull verði á nægjan-
lega mörgum rútubílum í
þetta verkefni. Sömuleiðis fá
ekki allir þeir Bretar sem hing-
að vilja koma á tónleikana
sætarými með vélum Flug-
leiöa einsog staöan er nú, en
fjölmargir áhugasamir Bretar
sem og þarlendir fjölmiðla-
menn, og raunar menn úr
þeirri stétt víðar að úr heimin-
um, hafa boðað komu sína á
Kirkjubæjarklaustur. ■
Drum Club leikur vib hvern sinn
fingur á Kleifum.
Létt dagskrá fyrir
alla fjölskylduna
Fjölskyldumót Úlia verður
haldið um verslunarmanna-
helgina að Úlfljótsvatni í
Grafningi. Boðiö veröur þar
upp á létta dagskrá, „... sem
fólk getur tekiö þátt í að vild
og slappað af með börnum
sínum þess á milli. Við viljum
gefa fólki kost á aö fara úr lát-
unum í bænum, án þess að
lenda í látum annarstaðar,"
segir í tilkynningu frá móts-
höldurum.
Á fjölskyldumóti Úlla verður
keppt í ýmsum næsta óvenju-
legum íþróttum. Þar verður
meðal annars keppt í brosi þar
sem broslengd er mæld. Þá
veröur boðið uppá bjargsig,
gönguferðir, vatnasafarí,
þrautabraut, grillað verður,
dansleikir haldnir og sungið
verður allan daginn og á kvöld-
vökunum. Þá verður Úlia Café
opið, en þar eru kakó og kökur
seldar.
í frétt frá mótshöldurum segir
aö þarna sé kjörið tækifæri fyrir
fjölskyldur og hópa að slappa af
og gera að gamni sínu. Hægt er
að hafa nóg fyrir stafni eða
slappa af, allt eftir höfði hvers
og eins. Aðgangseyrir á þessa
skemmtun er 1.000 kr. fyrir
manninn, en kr. 500 fyrir börn
á aldrinum 6 til 12 ára. Þau sem
yngri eru greiða ekkert.