Tíminn - 29.07.1995, Page 9

Tíminn - 29.07.1995, Page 9
Laugardagur 29. júlí 1995 9 ilMW Magnús Scheving þolfimimeistari hefur á síbustu Caltalœkjarhátíbum komib samkomugestum ígott torm. svo verbur einnig gert í ár. Ljósm: jón Cubbergsson. Bindindismótiö í Caltalœkjarskógi: Þriggja ættliða fjölskylduhátíö Búast má viö að þrír ættliöir sömu fjölskyldu komi saman á Bindindismótinu í Galta- iækjarskógi, sem nú er þar haldið enn einu sinn. Mótiö hefur tryggt sér fastan sess í skemmtanahaldi þessarar helgar — og segja móthaldar- ar aö senn líöi aö því aö fjórir ættliiðir veröi saman komnir á hátíöinni. Meginstefið í Galtalækjarhá- tíðinni er í ár einsog einatt áöur að áfengi má þar ekki hafa um hönd. Skemmtiatriði hátíðarin- ar eru jafnframt sniðin að því sem öll fjölskyldan getur sam- einast um. Vinsælar hljómsveit- ir leika og syngja í Galtalækjar- skógi, þar eru margvísleg leik- tæki, keppt verður í götukörfu- Fjölmenni sækir utihatíbina i Caltalœkjarskógi á sumri hverju. bolta og poxi, hestaleiga er á staönum og skipulagðar ferðir verða í nýja og ljómandi góða sundlaug að Laugalandi í Holt- umi Á föstudagskvöldið eru það tvær hljómsveitir sem leika í Galtalækjarskógi: Skítamórall og Nátthrafnar. Á Iaugardags- morgun er reiðhjólakeppni þar sem ungir geta spreytt sig í hjól- reiðaþrautum, götukörfubolta, þolfimi, söngvarakeppni og ýmsu fleiru. Þá er kvöldvaka þar sem Ingibjörg Pálmadóttir heil- brigðisráðherra ávarpar gesti og Spaugstofan leikur lausum hala og þar á ofan eru dansleikir auk flugeldasýningar og varðeldur á miðnætti. Á sunnudag er einnig fjöl- breytt dagskrá. Þá verður m.a. íslandsmeistaramótið í poxi, keppt verður í götukörfubolta, síðdegis er helgistund sr. Pálma Matthíassonar, í kúluhúsinu Heklu er diskótek, og þar er einnig dansleikur um kvöldið. Lokaatriði hátíðarinnar er dans- Ieikur á sunnudagskvöld þar sem hljómsveitin Sixties leikur lög frá liðnum árum auk annars vinsæls efnis. Aðgangseyrir á Bindindismót- ið í Galtalækjarskógi er 4.500 kr. fyrir fullorðna, 16 ára og eldri. 13 til 15 ára greiða 3.500 kr. og þar af yngri greiða engan að- gangseyrir. ■ Hvert skal halda í þessum blaðauka kynnir Tíminn þær helstu útisam- komur sem haldnar verða á landinu um verslunarmanna- helgina. Margvíslegar skemmtanir og afþreying af ýmsu tagi stendur fólki til boða og eru þessar samkomur vítt og breitt um landið. Með þessu blaði ætti fólk að geta glöggvaö sig á því helsta sem í boði er og nú hefur það eina viku til að taka ákvörðun um hvert skal halda. ■ Fjölskylduhátíö á Neskaupstaö: Neistaflug '95 Varðeldur, Tour de Norö- fjörö, kraftakeppni, sjóskíða- sýning, flugeldasýning, götu- körfubolti, unglingadansleik- ir, harmonikkuball, útidistó- tek og fleira áhugavert veröur fólki til skemmtunar á Neistaflugi '95 á Neskaupstað um verslunarmannahelgina. Þetta er í þriðja sinn sem þessi fjölskylduhátíð verður haldin á Neskaupstað. Enginn aðgangseyrir er að hátíðinni og tjaldstæði eru frí. Hátíðarhöldin fara fram í miðbænum og næsta nágrenni frá föstudagssíðdegi til mánu- dagsmorguns. Mikill viðbúnað- ur er við hátíðina og verður all- ur miðbærinn skreyttur, sett upp um 200 fermetra tjald og ljósaskreytingar munu prýða bæinn. Af utanaðkomandi skemmti- kröftum er helst að nefna hljómsveit Geirmundar Valtýs- sonar ásamt Helgu Möller, bítlahljómsveitina Sixties og Pál Óskar og milljónamæring- ana. Einnig spila þar Sólstrand- argæjarnir og Ózon. Auk fyrr- greindra skemmtiatriða má nefna listflug, útitónleika, úti- bíó, spírólí (leiktæki) og enskan fjöllistamann, The Mighty Gar- eth. Hápunktur hátíðarinnar er á sunnudeginum en þá verður skemmtidagskrá sem endar með varðeldi, söng og flugeldasýningu í Lystigarði Neskaupstaðar. Það er Ferðamálafélag Nes- kaupstaðar sem stendur fyrir hátíðinni. ■ Biskupstungur: Tungnadagar með tilþrifum Frá Stefáni Bö&varssyni, fréttaritara Tím- ans í uppsveitum Árnessýslu. íbúar í Biskupstungum ætla um verslunarmannahelgina aö halda svonefnda Tungnadaga meö sérstökum tilþrifum um alla sveitina. Ýmsir gjörningar og leikir veröa í Reykholti þar sem andlit veröa máluö, keppt í flugi flugdreka og í ýmsum öör- um leiktækjum, auk þess sem höndlaö veröur í markaöstjaldi þar. Fjölbreytt dagskrá verður á Tungnadögunum svo sem í Dýra- garðinum í Laugarási, á dansleikj- um og diskótekum í Réttinni í Út- hlíð eða þá í bjórstofunni á Hótel Geysi. Sömuleiðis er um helgar boðið uppá kaffi og kökur í mat- sal Skálholtsskóla. Auk þessa verður margt annað fyrir fólk að gera á Tungnadög- um, svo sem að renna fyrir silung eða lax, fara á golfvellina í Úthlíð, í Miðdal í Laugardal eða á Flúð- um. Þá er hægt að fara í Hvítár- siglingu, skreppa í smáferð á há- lendiö, til dæmis til að kíkja á Hagavatn og Jarlhettur eða Hvít- árvatn og Langjökul svo ekki sé talað um skíðaparadísina Kerl- ingafjöll. Til allra þessara staða er fólksbílafæri, einkum ef varkámi og góða skapiö er með í för, en það er einmitt það síðastnefnda sem Tungnadagar byggjast aðal- lega á. ■ Vatnaskógur: Fjölskylduhátíð í skóginum Boöiö veröur uppá fjölbreytta í frétt frá mótshöldurum Tekið er fram aö þessi hátíð dagskrá á fjölskylduhátíö sem segir að Vatnaskógur sé ein- sé ekki eingöngu fyrir KFUM haldin veröur í Vatnaskógi stakur fyrir hátíö sem þessa. fólk. Hún er öllum opin, en um verslunarmannahelgina. Skógurinn, vatnið og aðstaðan tekið er skýrt fram að áfengis- Kvöldvökur, varöeldar, kapp- á þessu svæði almennt bjóði bann er á svæðinu. róörar, koddaslagur og fleira uppá aðstæður þar sem allir m er á dagskránni. geti notið sín.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.