Tíminn - 29.07.1995, Síða 13
Laugardagur 29. júlí 1995
13
I
t
ingu.
Því miöur sá ég leikrit Dorf-
manns ekki þegar það var sýnt
á litla sviði Þjóðleikhússins og
verð því að gefa mér að það
hafi byrjað og endað, eins og
kvikmynd Polanskis, á hljóm-
leikum þar sem verið er að spila
d-moll kvartett Schuberts,
Dauðinn og stúlkan. Tónlistin
er buröarás myndarinnar og
vekur upp spurningar um eðli
mannsins og gildi siðmenning-
arinnar. Læknirinn var vanur
að spila þessa tónlist af snældu
í hvert skipti sem hann nauög-
aði konunni sem myndin snýst
um. Hvernig má það vera að í
sama manninum búi unnandi
fagurra lista, virtur borgari og
góður faðir og svo sadískur
nauðgari?
í dag, sunnudaginn 23. júlí,
bárust fréttir af því að herlög
hefðu verið framlengd í
Dœminu snúiö vib: Sigourney Weaver og Ben Kingsley í hlutverkum sínum
íkvikmynd Polanskis, Daubinn og stúlkan.
Bólivíu. Fyrir nokkrum vikum
varaði Augusto Pinochet, fyrr-
verandi einræðisherra Chile,
stjórnvöld við að sækja yfir-
menn hersins til saka fyrir
glæpi unna í stjórnartíö hans.
Enn er langt í land meb að lýð-
ræbið standi traustum fótum í
ríkjum Suður-Ameríku, þó að
herforingjarnir séu komnir frá
völdum. Þróunin virðist þó
vera sú að það sé heldur að
styrkjast, þó erfitt sé að meta
slíkt án tímalegrar fjarlægðar.
Kvikmyndin Dauðinn og
stúlkan veitir okkur innsýn í
veröld sem til allrar hamingju
er okkur framandi hálfri öld frá
lokum valdatíbar. þýskra nas-
ista. Óskandi væri að hún yröi
tekin til sýningar að nýju í ein-
hverjum af minni bíósölum
borgarinnar eða aö viökomandi
rétthafar útvegi hana á mynd-
bandi viö fyrstu hentugleika.
Ágúst Þór Ámason
.
y $ {*&• s
■ r'
■■ > ■ '
Afturbati stjórnarfars í Suöur-Ameríku:
Listrænt uppgjör viö
handbendi herforingja
Hljómsveitin Pop Dogs, önnur íslenska hljómsveitin sem tekur þátt í verk-
efninu og spilar í Tunglinu n.k. mibvikudagskvöld. Þeir heita, frá vinstri,
jói, Eyjó, Svanberg og Raggi.
Rokkið borið saman
Þann 31. júlí n.k. koma hingað
tvær unglingahljómsveitir frá
Hamborg og halda m.a. tón-
leika í Tunglinu þ. 2. ágúst n.k.
Tónleikarnir eru hluti af dag-
skrá hópsins á meban hann
dvelur hér. Meö hópnum eru
þrír fullorbnir einstaklingar,
tónlistarmenn, sem hafa þann
starfa ab leibbeina krökkunum
vib sína tónlistaribkan.
Hamborgar-borg býður hópn-
um hingað, en íslenskur hópur
tekur á móti þeim. íslenski hóp-
urinn er samsettur úr tveim ís-
lenskum unglingahljómsveitum
og tveim ábyrgharmönnum.
U.F.E. á íslandi veitir styrk til
heimsóknarinnar, en það er
sjóbur á vegum Evrópubanda-
lagsins sem styrkir evrópsk ung-
menni til að hittast og kynnast
hvert öðru með tilliti til aö
minnka fordóma þjóða á milli
og auka samstöðu ungs fólks í
Evrópu. Þar sem tónlistarhlustun
og -iökun er stór þáttur í ung-
menningu víðast hvar í heimin-
um, er tilhlökkunarefni að sjá
hvað hinir eru að fást við í sínu
„rokki", bera saman texta, tón-
listarstefnur og áhugasviö í því
efni.
Hópurinn frá Þýskalandi til-
heyrir stærra verkefni, sem Ham-
borg hefur á sinni könnu og ber
heitið Lass 1000 Steine rollen.
Hljómsveitirnar, sem koma, bera
nöfnin D-Cups (hip metal) og
Dawn Patrol (speed death met-
al).
Islenski hópurinn heitir Stöðv-
um ekki steinana og hljómsveit-
irnar bera nöfnin Tjalz Gizur og
Pop Dogs.
Þeir, sem tilheyra Stöðvum ekki
steinana-hópnum, fara til Ham-
borgar þ. 2. október í haust og
verður tekiö á móti þeim þar
með svipuðum hætti og tekib
verbur á móti Þjóbverjunum hér.
Strákarnir spila á tónleikum í
Hamborg og fara einnig í stúdíó.
Tónleikarnir í Tunglinu verða
kl. 20-24 miövikudagskvöld 2.
ágúst n.k. og verður götuleikhús
á staönum innan dyra, auk þess
sem ljóbalestur verbur viðhafbur
milli atriða.
í byrjun sumars tók Laugarás-
bíó til sýningar nýjustu mynd
Romans Polanski, Daubinn
og stúlkan, sem byggö er á
samnefndu leikriti eftir chíl-
eska skáldib Ariel Dorfmann.
Myndin fjallar á sérlega á-
hrifaríkan hátt um endur-
fundi kvalara og fórnar-
lambs: læknis, sem í valdatíð
herforingjastjómar í ónefndu
ríki í Subur-Ameríku hafbi
þab hlutverk meb höndum ab
segja til um hve miklar pynt-
ingar fangarnir þyldu án þess
ab gefa upp öndina og konu
sem hafbi orbib fórnarlamb
kvalalosta læknisins á meban
henni var haldiö í fangelsinu.
Því miöur fékk myndin ekki
þá umfjöllun sem hún átti skil-
ið, þegaT hún var sýnd hér.
Annars staðar hefur henni ver-
ið betur tekið og orðið tilefni
umræöna um stjórnmálaþróun
og ástandið í Suður-Ameríku og
það uppgjör við herforingjana
og handbendi þeirra sem nú á
sér stab í mörgum ríkjum álf-
unnar.
Ég sá myndina í Stokkhólmi í
lok apríl, sem breytir í sjálfu sér
ekki miklu, nema aö kvöldið
sem ég sá hana komu fréttir af
því að yfirmaður Argentínuhers
hefði beðið þjóð sína opinber-
lega afsökunar á framferði hers-
ins þegar hann var við völd.
Þessi afsökunarbeiðni hlýtur að
teljast hin merkustu tíðindi og
ætti að kalla á vangaveltur um
þróun og stööu stjórnmála í
Argentínu sem og í öbrum ríkj-
um Suður-Ameríku. Hver er
staða lýöræðis meðal þjóða sem
búið hafa við ógnarstjórn og
mannréttindabrot af verstu
gerð svo áratugum skiptir?
Spurningunni um réttlæti, sem
velt er upp í Dauðinn og stúlk-
an, verður að svara til að fórn-
arlömb handbenda herforingj-
anna geti endurheimt mann-
lega reisn sína.
Polanski tekst að sýna meö
snilldarlegum hætti hversu
erfitt það er að beita hefö-
bundnum aðferðum við ab lög-
sækja pyntingasérfræðinga
ógnarstjórnar, þegar fórnar-
lömbin hafa ekki annað til að
styöjast við en lykt og heyrn til
ab bera kennsl á kvalara sína.
„Sannleikurinn" lendir undir
smásjánni í tilbúnum réttar-
höldum yfir fangelsislækninum
og í Ijós kemur að konan, fórn-
arlambið, hafði ákveðið að
segja manni sínum ekki hvern-
ig henni var misþyrmt í fang-
elsinu til aö vernda sambandið,
sem var undir miklu álagi
vegna framhjáhalds eigin-
manns á meðan konan hélt
nafni hans leyndu þrátt fyrir ó-
lýsanlegar kvalir og niðurlæg-
Allir vita að það er leikur einn
að grilla lambakjöt. Og
nú færist enn meira fjör
í leikinn því nú getur þú
unnið þér inn glæsllegt
gasgríll í skemmtilegum safnleik.
Safnaðu 3 rauðum miðum sem
finna má á öllum grillkjötspökkum
með lambakjöti og sendu ■
pósthólf 7300,
127 Reykjavík ásamt
þátttökuseðli sem fæst (
næstu matvöruverslun.
Þar með ertu með í potti
og átt möguleika á að vínna
glæsilegt Sunbeam gasgrill. Dregíð
er tvisvar sinnum, 10 gasgrill í hvort
sinn. I fyrra skiptið
þann 7. júlí og
í seinna
skiptið þann
11. ágúst.