Tíminn - 14.10.1995, Síða 9
Laugardagur 14. október 1995
Wttmww-
9
Össur Skarphéöinsson mœlir fyrir lagafrumvarpi um œttleiöingar —
réttarstaöa kynforeldra og kjörforeídra veröi hin sama:
Sumar lagagreinar eru
móögun vib kjörforeldri
FRYSTIKISTUTILBOÐ
Alþingismennirnir Össur
Skarphéöinsson (A) og Sigríö-
ur Anna Þóröardóttir (S) hafa
lagt fram frumvarp um breyt-
ingar á Iögum um ættleiöing-
ar. Össur segir aö þarna sé ef
til vill ekki um stórar breyt-
ingar aö ræöa, en engu aö síö-
ur réttlætismál fyrir kjörfor-
eldra á íslandi. Meö lögunum
sé veriö aö gera ættleiöingu
meö öllu jafnréttháa fæöingu
barns kynforeldra. Umræöur
á Alþingi hafa veriö talsveröar
og vel tekiö í breytingarnar.
„Þaö er alveg skýrt í lögunum
sem fjalla um ættleiðingar, aö
það er vilji löggjafans að staða
kjörbarna og foreldra þeirra sé
nákvæmlega sú sama og kynfor-
eldra og barna þeirra. Þetta
kemur til dæmis fram í lögum
frá 1978 og skýtur upp kolli
víða í umræðu um þessi mál í
þinginu," sagði Össur Skarphéð-
insson í samtali við Tímann í
gaer.
Össur sagði að eftir að hann
varð kjörforeldri sjálfur fyrir ári
hafi hann uppgötvað að kjör-
foreldrar sitja ekki við sama
borð og kynforeldrar og þessu
vill hann breyta. Til dæmis hafa
kjörforeldrar ekki sama fæðing-
arorlof, þar skakkar einum mán-
uði. Össur segir aö þarna muni
ef tii vill ekki miklu, en samt sé
þetta mismunun sem sér þyki
slæm. Þessu fæðingarorlofi hafi
einmitt verið komið á vegna
þess að rannsóknir sýndu fram
á að mikilvægt er fyrir lífsgöngu
barnsins að í frumbernsku takist
sem traustust tengsl, ekki síst
við móöurina. Því er henni gef-
inn kostur á launuðu fríi frá
vinnu til að sinna barni sínu.
Það gefi augaleið að barn, sem
hefur ekki verið alveg frá fæð-
ingu með móður sinni, hafi enn
frekari þörf á þessu. Því sé ekkert
réttlæti í því ab ættleidd börn
Össur Skarphébinsson.
og foreldrar þeirra eigi ekki
sama rétt og kynforeldrar.
Þessi er meginbreytingin. En
Össur segir að í almannatrygg-
ingalögum sé útfærsla á fæðing-
arorlofi, sem skiptist í fæðingar-
styrk og fæbingardagpeninga.
Lögð er til breyting, sem er fólg-
in í því að kjörforeldrar njóti 6
mánaða í hvoru fyrir sig.
„Ég fór í tölvuleit að lögum
um þessi mál. Þá kom í ljós að
kjörbörn sköpuðu ekki sömu
réttarstöðu varðandi lífeyri, til
dæmis í því tilfelli að foreldri
fellur frá. Barnalífeyrir fæst
þannig ekki með kjörbarni
nema það hafi örugglega verið
ættleitt tveim árum ábur en við-
komandi foreldri dó. Það em
ummæli í núverandi lögum sem
eru bókstaflega móðgandi gagn-
vart kjörforeldrum. Þar stendur
að tryggingaráð megi stytta
þennan tímafrest, ef sýnt þykir
að ættleiðingin standi ekki í
sambandi við væntanlegan
bótarétt. Þarna er löggjafinn að
gera því skóna að menn séu að
taka barn til að skapa sér bóta-
rétt. Þetta er auðvitað alveg frá-
Varnarliöiö á
Kef I a víku rf I ug ve 11 i
Tölvunarfræbingur/
kerfisfræbingur
Fjármálastofnun Flotastöðvar Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli
óskar ab rába tölvunar- eða kerfisfræðing til starfa í tölvudeild.
Starfib felst í uppsetningu og þjónustu á vél- og hugbúnaði í
hinum ýmsu deildum Varnarlibsins sem flestar eru nettengdar
með Novell netkerfi.
Kröfur:
Umsækjandi sé tölvunar- eba kerfisfræðingur með sem víðtæk-
asta þekkingu og reynslu í Novell netkerfum, Windows um-
hverfi, Paradox gagnagrunni ásamt almennri reynslu og þekk-
ingu á vél- og hugbúnaði í PC umhverfi. Þekking á Unix og
TCP/IP æskileg.
Þarf að geta unnið sjálfstætt og eiga gott með samskipti við
annað fólk.
Góðrar enskukunnáttu er krafist, bæði á talað og skrifaö mál.
Umsóknir skulu berast til ráðningardeildar varnarmálaskrif-
stofu, Brekkustíg 39, Njarðvík, sími: 421-1973, ekki síðar en
föstudaginn 20. október nk.
Umsóknareyðublöð fást á sama stað auk þess sem starfslýsing
liggur þar frammi til aflestrar fyrir umsækjendur.
Um er aö ræða fast starf, en vinnuveitandi áskilur sér sex mán-
aða reynslutíma þess er ráðinn verður.
leitt. Ættleiðing er dýr, því flest
koma börnin úr fjarlægum
heimsálfum. Þar að auki er þetta
afdrifaríkasta og stærsta ákvörð-
un sem foreldri taka á ævinni.
Því er þetta siðferðilega óverj-
andi," sagði Össur Skarphéðins-
son.
Fleira sagði Össur að væri sér-
kennilegt í lögum þar sem rætt
er um ættleiðingu. Varðandi lög
um Söfnunarsjób lífeyrisrétt-
inda og Lífeyrissjóð bænda segir
að eftirlifandi maki fái ekki
barnalífeyri vegna kjörbarns,
nema ættleiðingin verði áður en
hann verður sextugur, sem
hljóti að vera tæknilega óvirkt í
dag. Og ári áöur en hann annað
hvort verður fyrir fötlun eba
deyr. Össur segir að ættleiöing-
arferli í dag taki mörg ár. Menn
hafi því tekið stóra ákvörðun
löngu áður en barnið kemur.
Það kunni vel að vera að við-
komandi sjóðfélaga hendi slys,
en það sé varla hægt að ætlast til
að hann hætti við aettleiðing-
una til að njóta sömu bóta.
-JBP-
G 150,105 Itr. br........... 28.647 stgr.
Stærð ca. h 85, b 55, d 59,5 cm.
G 20,180 Itr. br............ 36.857 stgr.
Stærð ca. h 90, b 73, d 69 cm.
G 30, 269 Itr. br........... 41.941 stgr.
Stærð ca. h 90, b 98, d 69 cm.
G 40, 376 Itr. br........... 47.037 stgr.
Stærð ca. h 90, b 128, d 69 cm.
G 50, 454 Itr. br........... 52.673 stgr.
Stærð ca. h 90, b 150, d 69 cm.
White-Westinghouse HITAKÚTAR
ZEROWATT þvottavélar, þurrkarar,
uppþvottavélar
GÓÐ TÆKI - GOTT VERÐ
RAFVÖRUR HF.
ARMULA 5 • 108 • REYKJAVIK • SIMI 568 6411
N0TAÐAR BÚVÉLAR 0G TÆKI
Dráttarvélar verð án vsk.
MF390 2WD 80hö árgerð 1991 ekin 2500 kls...................................1.320.000
Steyr 80-90 4WD 85hö árg 86 ekin 3000 M/Hytrak tækjum .....................1.600.000
CASE 4230 4WD árgeró 1995 ekin 50 kls......................................2.200.000
CASE 685 2wd árgerð 1989 ekin 2600 kls m/táekjafestingar ...................930.000
Fiat Acri 60-90 4WD 60hö árgerð 87 m/Trima 1290 nýjum/tækjum ..............1.290.000
CASE 485 2WD 52hö árgerð 1987 ekin 2500 kls m/ALÖ 3030 tækjum...............600.000
Zetor 5211 2WD 47hö árgerð 87 ekin 3000 kls.................................350.000
Traktorsgröfur
MF60HX traktorsgr. árg 93 ekin 1800 kls 4in1 frams/skotbóma/servo.........3.800.000
MF60HX traktorsgr. árg 91 ekin 3700 kls 4in1 frams/skotbóma............. 2.700.000
MF50HX traktorsgr. árg 90 ekin 3600 kls 4in1 frams/skotbóma...............2.300.000
MF50HX traktorsgr. árg 89 ekin 4000 kls 4in1 frams/skotbóma............. 2.100.000
JCB 3 traktorsgr. árg 91 ekin 3700 kls 4in1 frams/skotbóma ................2.700.000
Rúlluvélar og rúllupökkunarvélar
MF 828 rúllubindivél árgerð 1991 fastkjarna 60-180 x 120cm..................850.000
Deutz Fahr rúllubindivél m/söxunarbúnaði árgerð 91 120x120 cm ..............900.000
Welger RP12 rúllubindivél árgerð 89 120x120cm ..............................650.000
Kverneland UND 7510 rúllupökkunarvél árgerð 89 .............................350.000
Kverneland UND 7510 rúllupökkunarvél árgerð 89 .............................350.000
Lawrence Edward Sila Pack rúllupökkunarvél árgerð 90 .......................380.000
Lawrence Edward Sila Pack rúllupökkunarvél árgerð 89 ...................... 250.000
Acmed Super Bee rúllupökkunarvél árgerð 89 .................................350.000
Ýmis tæki
Trima snjóblásari árgerð 92 ................................................370.000
Tarup 106 múgsaxari árgerð 90 ..............................................410.000
JF múgsaxari árgerð 88 .....................................................160.000
PZ CZ 450 rakstrarvél 4,50 m................................................310.000
Deutz Fahr heybindivél árgerð 80 ...........................................150.000
Steinbock rafmagnslyftari 800 kg lyftigeta, árgerð 75 .....................350.000
Still Diesel lyftari 2500 kg lyftigeta, árgerð 89 .........................780.000
Greiðsluskilmálar - Lán til allt aö 3ja ára á skuldabréfi.
Ingvar
=~" = i Helgason hf. vélasala
~ Sævarhöföa 2, SÍMI 525 8000