Tíminn - 14.10.1995, Blaðsíða 13
Laugardagur 14. október 1995
13
Mest seldu amerísku dýnurnar
Marco
HUSGAGNAVERSLUN
Langholtsvegi 111, sími 533 3500
Verzlunarskóli íslands 90 ára á morgun og býöur 6.630 nemendum
til hátíöahalda:
Andinn var fluttur í
skjóöu í nýja skólann
Verzlunarskóli íslands, sem á
morgun fagnar 90 ára afmæli,
hóf starf sitt á hógværan hátt,
en sannaöi um leiö aö mjór er
mikils vísir. í dag er skólinn
meöal hinna stærstu í landinu
meö hátt í þúsund nemendur,
rekur sérstakan Tölvuháskóla
VÍ og stofnar nú Verzlunarhá-
skóla, en kennsla þar á aö
hefjast 1998.
Tvær stundir dag
hvern í fyrstu
Nafn Verzlunarskólans í
Reykjavík sást fyrst á prentuöu
máli í blööunum Þjóöólfi og ísa-
fold, en þar birtist auglýsing
þess efnis í október 1905 aö
skólinn verði haldinn, 2 stundir
dag hvern frá 8 til 10 árdegis, aö
desember fráteknum, eins og
segir í auglýsingunni. Skólinn
var í fyrstu til húsa í Mjóstræti
3, í húsinu Vinaminni sem enn
stendur í Grjótaþorpi. Síðar
flutti skólinn í Melstedshús
milli Lækjartorgs og Hafnar-
strætis, þá í Hafnarstræti 19. Frá
1912 til 1931 var skólinn til
húsa aö Vesturgötu 10, að hann
flutti að Grundarstíg 24. Þar var
skólinn lengst starfandi, eöa í
54 ár, og þótti andinn í þeim
skóla til mikillar fyrirmyndar.
Núverandi bygging Verzlun-
arskóla íslands að Ofanleiti 1
var tekin í notkun árið 1986 og
olli straumhvörfum í öllum
rekstri hans. Eölilega óttuðust
menn um aö „gamli andinn" af
Grundarstíg mundi láta á sjá viö
flutninginn. En svo varö ekki.
Einhverjum datt þaö snjallræði
í hug aö handsama í skjóöu
nokkra „sálina" úr gamla skól-
anum, sem þeir síöan slepptu
lausri í nýbyggingunni. Þetta
bragö heppnaöist að sögn afar
vel og andinn í skólanum er
hinn sami og verið hefur um
áratuga skeið.
Nafntogabir
Verzlingar
Verzlingar, eins og nemendur
kalla sig gjarnan, hafa frá fyrstu
tíð verið menntaðir til starfa í
atvinnulífinu og þá ekki síst viö-
skiptalífi og verslun. En það er
ekki endilega lokatakmark
Verzlinga aö stunda viöskipti.
Nemendur hafa aö loknu námi
við skólann farið til margskonar
annarra og óskyldra starfa.
Þannig er biskup íslands, Ól-
afur Skúlason, stúdent frá Verzl-
unarskólanum. Það er Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráöherra
líka, sem og Ólafur Egilsson
sendiherra og Helgi Ágústsson
ráöuneytisstjóri í utanríkisráöu-
neytinu. Kristján Ragnarsson
hjá LÍÚ lauk námi úr Verslunar-
deild skólans og var mikill „óra-
tor" á sinni tíö á mögnuðum
málfundum skólans. Jóhanna
Siguröardóttir, alþingismaður
og formaöur Þjóövaka, var hins
vegar ekki mikið í pontunni á
sínum yngri árum í skólanum.
Helga Jónsdóttir borgarritari er
menntuð frá Verzlunarskólan-
um, og það eru líka Jóna Gróa
Sigurðardóttir og Vilhjálmur
Vilhjálmsson borgarfulltrúar og
Ellert Schram, forseti íþrótta-
sambands íslands. Ótal marga
fleiri mætti telja upp og sá listi
yrði langur.
Ekki fara allir í versl-
unarstörf
Þaö er athyglisvert aö hjá 44
stærstu fyrirtækjum landsins,
samkvæmt lista Frjálsrar versl-
unar, eru 14 Verzlunarskóla-
menn stjórnendur, þar af fjórir
hjá 10 stærstu fyrirtækjunum.
En eins og fyrr sagði, halda
hreint ekki allir Verzlingar til
viðskipta og verslunar. Núna
eru um 600 stúdentar frá skól-
anum viö nám í Háskóla ís-
lands. Af þeim eru 29% í við-
skiptadeild og 15% í lagadeild. í
heimspekideild eru 95 nemend-
ur frá Verzlunarskólanum eða
16% og 11% í læknadeild eöa
678 nemendur. Þá eru 38 Verzl-
ingar í verkfræðideild eöa 6%.
Ennfremur eru nemendur frá
skólanum í tannlæknadeild,
raunvísindadeild og félagsvís-
indadeild.
Nágrannarígur og
vinahugur
Verzlunarskólinn hefur lengi
veriö kunnur fyrir öflugt félags-
líf af öllu tagi. Ekki er alveg laust
viö að mílli nágrannaskólanna í
Þingholtunum, Verzló og MR,
hafi verið nokkur rígur. Hins
vegar ríkti mikil vinahugur
Verzlinga í garö Kvennaskólans
í Reykjavík og nemenda hans,
og sú vinátta var oft á tíöum
gagnkvæm! Innan veggja Verzl-
unarskólans hafa fegurstu stúlk-
ur landsins ævinlega numiö
fræöin. Þar voru fegurðardrottn-
ingarnar Hólmfríöur Karlsdótt-
ir, Berglind Joharisen, Unnur
Steinsson, Guörún Möller, Pá-
lína Jónmundsdóttir og Hrafn-
hildur Hafsteinsdóttir, núver-
andi feguröardrottning lands-
ins. Og svo auðvitað allar hinar,
sem skipta þúsundum.
Sjálfkrafa í Heim-
dall!
Verzlingar fyrri tíma voru pól-
itískir — gegnumbláir og gengu
nánast sjálfkrafa í Heimdall. í
dag er öldin önnur. Þorvaröur
Elíasson skólastjóri segir okkur
að pólitískur áhugi, bæbi í
Verzlunarskólanum og öörum
framhaldsskólum, sé nánast
enginn. Áhugamálin eru allt
önnur í dag, listir, íþróttir og
tómstundamál af fjölbreyttu
tagi. Verzlunarskólinn hefur
haldiö uppi ýmsum „tradisjón-
um" í félagslífi sínu og nægir
þar aö benda á Peysufatadaginn
og hið stórbrotna Nemendamót
skólans.
Á 90 árum hafa fimm menn
stýrt Verzlunarskóla íslands: Ól-
afur G. Eyjólfsson frá 1905 til
1915, Jón Sívertsen frá 1915 til
1931, Vilhjálmur Þ. Gíslason frá
1931 til 1953, dr. Jón Gíslason
frá 1953 til 1979, og Þorvarður
Elíasson frá 1979, en hann fékk
leyfi frá störfum 1990 til aö
gegna starfi útvarpsstjóra ís-
lenska útvarpsfélagsins, og var
Valdimar Hergeirsson þá skóla-
stjóri á meðan. Vilhjálmur Þ.
Gíslason gegndi líka þeirri stööu
hjá Ríkisútvarpinu eftir aö hann
lét af störfum við Verzlunarskól-
ann.
Eina leiðin til að
læra almennilega
bókfærslu
„Nemendur héöan fara í allar
áttir, rétt eins og nemendur
annarra framhaldsskóla. Þaö
fellur vel aö okkar stefnu, viö er-
um ekkert endilega að búa fólk
undir viöskiptafræði. Þaö er ab
vísu mjög traust og greiðfær leiö
að fara fyrst í Verzlunarskólann
og síöan í viðskiptafræði. En við
teljum jafnvel enn meiri ástæöa
til aö kenna væntanlegum lög-
fræðingum, prestum og Iækn-
um og öðrum þessar viðskipta-
greinar, því alls staðar eru viö-
skipti. Læri lögfræðingar og
verkfræöingar ekki bókfærslu í
Verzlunarskólanum, þá lærir
hann aldrei almennilega bók-
færslu," sagði Þorvaröur Elías-
son skólastjóri í gær.
Verzlunarskólinn er talinn
einn best útbúni skóli Evrópu
hvaö tölvukost áhrærir. Tölvu-
háskóli VÍ er rekinn af skólan-
um. Og nú vinna arktitektar að
því að teikna nýjan skóla, sem á
aö rísa á vesturhluta lóðar Verzl-
unarskólans við Ofanleiti —
Verzlunarháskóli íslands mun
standa þar. Sá skóli verður opn-
aður1998.
- JBP
FROSTVARNIR A VATNSINNTOK
Því að taka óþarfa áhættu. Láttu leggja hitastreng á vatnsinntakið
Hitastrengur - frábær reynsla
Rafhitastrengirnir frá Sigurplasti hafa verið notaðir á
íslandi í yfir 20 ár. Árangurinn er mjög góður. Hætta á
frostskemmdum er engin. Einungis þarf að tengja
strenginn við 220 V straum og strengurinn hitnar
sjálfkrafa þegar kólnar í veðri.
Komið í veg fyrirfrostskemmdir
nteð hitastrengnum frá Sigurplasti
Rafhitastrengurinn kemur í tilbúnum settum og er hann
sjálfhitastillandi. Útsölustaðir eru: Glóey, Ármúla 19
og Rafvörur, Ármúla 5, Reykjavík, Rafport, Kópavogi,
Rafbúð Skúla, Hafnarfirði, Árvirkinn, Selfossi, Raflagna-
deild KEA, Akureyri.
O
SIGURPLAST"
VÖLUTEIGUR 3, MOSFELLSBÆ. SÍMI 566-8300
Dæml um frágang á lelðslu tll að koma í veg fyrir trostskemmdir.