Tíminn - 14.10.1995, Qupperneq 15
Laugardagur 14. október 1995
15
WUmmm
I skjóli
mafíunnar
egar Alice Colson, 27
ára gömul, keyr&i inn
trö&ina a& heimili sínu í
Jacksonville, Flórída, fimmtu-
dagskvöldiö 12. september
1991, sá hún strax a& eitt-
hva& var ööruvísi en þaö átti
a& vera. Bílskúrsdyrnar voru
opnar og bifreiö sambýlis-
konu hennar, Rachelar Aqu-
ino Thomas, 25 ára, var horf-
inn.
Alice og Rachel höföu veriö
vinkonur lengi, en aöeins búiö
saman í þrjár vikur, eða frá því
að Rachel skildi við manninn
sinn eftir sex ára hjónaband.
Rachel, óviss um framtíðina,
fagnaði boöi vinkonu sinnar og
flutti inn meö 3ja ára gamlan
son sinn.
Blóð á vegg
Alice tók í útidyrasnerilinn á
einbýlishúsinu og fann aö dyrn-
ar voru ólæstar. Enn frekari ugg
setti að henni. Hún gekk um
húsið og sá muni í eigu Rachel-
ar liggjandi á gólfinu. Á leiöinni
inn í stofu sá hún skyndilega
blóðblett á veggnum. Slitin
hálsfesti, sem Rachel átti, lá á
gólfinu.
SAKAMAL
an við húsið þegar enginn kom
til dyra. Að því búnu fór hann
með kærustunni heim til henn-
ar, eyddi kvöldinu með henni
og svaf hjá henni um nóttina.
Kærastan staðfesti þetta.
Rachel og Greg höfðu kynnst
árið 1984 og gifst 10 mánuðum
Elsie Thomas.
Rachel Aquino Thomas.
Föt drengsins
Áður en Alice hafði samband
við lögregluna hringdi hún í
tvær bestu vinkonur Rachelar.
Önnur þeirra sagðist hafa rætt
við Rachel í síma aðeins nokkr-
um klukkustundum fyrr og
mælt sér mót við hana í líkams-
ræktarstöö síðar um kvöldið.
Rachel hafði sent soninn til
mömmu sinnar yfir helgina og
hlakkaði til að fá svolítinn tíma
út af fyrir sig. Rachel hafði jafn-
framt sagt vinkonu sinni að
hún ætti von á fyrrverandi eig-
inmanni sínum, Greg Thomas,
sem ætlaði að koma með föt
handa syninum.
Alice hringdi því næst í móð-
ur Rachelar. Hún hafði ekkert
heyrt í dóttur sinni, en Greg
hafði rætt við hana skömmu áb-
ur. „Greg var mjög æstur. Hann
sagðist hafa komið með föt
handa drengnum og Rachel
hefbi verið búin að lofa ab vera
heima, en enginn svaraði dyra-
bjöllunni þegar hann kom á
umsömdum tíma. Greg neydd-
ist því til að skilja fötin eftir á
dyrapallinum."
Alice hugsaði með sér að þetta
væri skrýtið, hún hafði einmitt
tekið eftir tösku fullri af fötum í
forstofunni. Ef Rachel hafði
ekki komið heim, hver hafði þá
borið fötin inn í húsib?
Fullkomin fjarvistar-
sönnun
Alice hringdi nú til lögregl-
unnar og tilkynnti ab Rachel
væri saknað. Tveir menn komu
á staðinn og sáu strax af verk-
summerkjum að átök höföu átt
sér stað. Jafnframt staðfestu þeir
ab bletturinn á veggnum væri
blóð.
Haft var samband við fyrrver-
andi eiginmann Rachelar, Greg
Thomas. Hann sagðist hafa
komið ásamt nýrri vinstúlku
sinni og skiliö töskuna eftir ut-
seinna. Ættingjar Rachelar lýstu
sambandinu sem óstöðugu, til-
finningasömu og „hávæm".
Rachel fékk nóg af ástandinu ár-
ið 1990 og flutti út. Skömmu
síðar gerði Greg tilraun til sjálfs-
vígs. Hann hafði ætíð verið
mjög mótfallinn skilnaðinum
og fannst sárt að vera sviptur
forræði yfir syni sínum, sem
hann unni mjög.
Lítt þokaöist í rannsókn máls-
ins, en 15. september fannst
Hondabifreið Rachelar á bíla-
stæði í Jacksonville. Bíllinn var
alblóðugur að innan, en að öðm
leyti ekkert sem varpaði ljósi á
glæpinn.
í lok september kvæntist Greg
nýju kærustunni, auk þess ab
endurheimta forræðið yfir syni
✓
I lok september kvœntist Creg nýju kœrust-
unni auk þess aö endurheimta forrœöiö yfir
syni sínum. Þaö var augljóst aö líf hans
haföi tekiö stakkaskiptum til hins betra eftir
dauöa fyrrverandi eiginkonu hans.
sínum. Þab var augljóst að líf
hans hafði tekið stakkaskiptum
til hins betra eftir dauða fyrrver-
andi eiginkonu hans.
Vitorösmaöurinn
Tæpu ári eftir hvarfið barst
lögreglunni ábending um ab
Douglas nokkur Schraud vissi
hver hefði myrt Rachel. Þegar
loks tókst að hafa uppi á hon-
um, viðurkenndi hann að hafa
hjálpað Greg að ræna Rachel.
Hann vissi hinsvegar ekkert um
afdrif hennar.
Greg og Douglas höfðu farið
að húsinu með föt drengsins og
hringt dyrabjöllunni, en enginn
hafði svarað. Greg vissi aö Rac-
hel var heima, þar sem bíllinn
stóö í skúmum, og tókst aö
brjótast inn í húsið með því að
nota greiðslukort. Rachel öskr-
aði af skelfingu og reyndi ab
komast undan, en Greg réðst á
hana og keflaði og batt. í átök-
unum sprakk vör og það út-
skýrði blóðið á veggnum. Greg
hafði sagt vini sínum ab ásetn-
ingur sinn og ætttar sinnar, sem
væri tengd mafíunni, væri að
losa sig við líkið þannig að Rac-
hel fyndist aldrei. Það var
hneisa, sem hann gæti ekki af-
borið, ab vera sviptur forræði yf-
ir einkasyninum og því væri
þetta eina lausnin.
Douglas hafði fengið greitt
sem svarar 100.00 kr. fyrir að
hjálpa Greg við verkið. Hann
vissi hins vegar ekkert hvab
hafði orðið um líkiö, en taldi
fullvíst að Greg hefði banað
Rachel strax og hann var búinn
að troða henni í skottið á jeppa-
bifreið sinni.
Douglas féllst á að reyna að
hitta Greg meb falinn hljóð-
nema innanklæða og fiska upp
úr honum hvar líkið væri. Það
gekk þó ekki, Greg sagðist ekk-
ert vilja hafa saman að sælda
við Douglas frekar.
Annaö morö
Það var fyrst þegar annað
morð hafði verið framib, sem
Greg var handtekinn. Daginn
áður hafði hann þotið út úr húsi
stjúpmóður sinnar og hrópað til
nágrannanna: „Hjálp, hjálp,
mamma skaut sig."
Lögreglan kom ab Elsie
Thomas sitjandi í stól á eldhús-
gólfinu með kúlugat á enninu.
Á eldhúsborðinu lá 38 kalíbera
skammbyssa. Greg sagði lög-
Douglas Schraud.
reglunni að hann hefbi verið í
stuttri heimsókn. Eftir að hafa
skroppið á salernið heyrði hann
skyndilega byssuskot og kom
síðan ab móður sinni látinni.
Aö lokinni rannsókn var Greg
handtekinn daginn eftir og
ákærður fyrir morð á stjúpmóð-
ur sinni. Ennfremur var leitað
frekari sannana í málinu gegn
Rachel.
Greg var einkaerfingi móbur
sinnar og þar var skýringin
komin á málinu, að mati lög-
reglunnar. Sögusagnir hermdu
ab vegna ósættis heföi frú
Thomas verið búin að hóta
Greg að gera hann arflausan.
Hann nýtti því síðasta tækifærið
til að fá peningana með því að
myrða móður sína.
Sagan um mafíuna
Nú var komið að þætti eigin-
konu Gregs, sem hafði logið fyr-
ir hann til að tryggja honum
fjarvistarsönnun. Hún viður-
kenndi að hafa ekki verið með
Greg daginn sem hann heim-
sótti Rachel. Um kvöldið hafði
Greg komið heim og sagt henni
ótrúlega sögu.
Raunverulegir foreldrar sínir
■ tengdust mafíunni og hefðu lifi-
brauð sitt af skipulagðri glæpa-
starfsemi. Skyldur ættarinnar og
virðing leyfðu ekki hjónaskiln-
abi og þau hefðu lagt hart ab
honum að ráða Rachel af dög-
um.
Greg kúgaði kærustuna til
hlýðni með þessari ótrúlegu
sögu og vegna skertrar dóm-
greindar — en Gail hafði verið
fíkill í mörg ár — trúði hún sög-
unni og þorði ekki að segja
neinum hið sanna af ótta um líf
sitt. Aðspurö hvort Gail vissi
hvar líkið af Rachel væri, sagði
hún: „Hann sagðist ætla að gefa
hákörlunum góðan kvöldverð."
Þyngsti dómur
Til ab gera langa sögu stutta,
kom ekkert fram í málinu sem
studdi þá fáránlegu sögu ab ma-
fían tengdist morðunum tveim-
ur. Greg var einfaldlega ill-
menni sem sveifst einskis til aö
fá sínum vilja framgengt. Hann
var dæmdur til dauða 22. sept.
1994 og bíður þess nú að setjast
í rafmagnsstólinn í Flórídafylki.
Gail fékk þriggja ára dóm í
vinnubúðum og Douglas
Schraud 12 ára fangelsi. Líkiö af
Rachel Aquino Thomas hefur
aldrei fundist. ■