Tíminn - 14.10.1995, Side 17
Laugardagur 14. október 1995
ÍÍ||||MÍS
17
]VXeð sínii nefli
Nú, þegar moldvibrið í kringum Strætisvagna Reykjavíkur er
farið að lægja, er rétt að velja í þáttinn eitt gamalt og gott stræt-
ólag, sem notið hefur mikilla vinsælda árum og áratugum sam-
an. Þetta er að sjálfsögðu lagið Hagavagninn og er gott dæmi
um það hvernig hægt er að gera strætisvagnaferðir að þunga-
miðju kitlandi ástarævintýrs. Lag og ljóð eru eftir þá Ragnar Jó-
hannesson og Jónas Jónasson. Lagið hefur verið sungið við
margvísleg tækifæri og af fleiri en einum söngvara, nú síðast
1986 af Jóhanni Helgasyni á plötunni „Reykjavíkurflugur", og
virðist alltaf jafn vinsælt.
Góða söngskemmtun!
HAGAVAGNINN
G Em Am D 7
Stúlkan mín á heima vestur í Högum,
G C E
hún er í búð við Laugaveg.
Am Cm
Miðdepill í ótal ástarsögum,
G D7 G
enginn veit það betur en ég.
Am D7 Hm Em
Beibídoll hún selur og nælonsokka
Am D7 G
og sjálf um nætur klæðist því,
Hm E7 Am Cm
í rauðu hári hefur hún hvíta lokka
G D7 G
og hún er sæt í bikiní.
Em
z:
t ► 4 H >
oj
Am
H
D7
3 1 0 X 0 0 2 1 3
C
X 3 2 0 1
0 2 3 10 0
Mig dreymir hennar þýða yndisþokka,
þegar ég er háttaður.
Hún er óræð eins og myndirnar á Mokka,
svo maður verður gáttaður.
Með fagursveigða vör sem venusboga,
og vöxtinn svona la la la,
sem götuvitar grænu augun loga
og göngulagið cha cha'cha.
Ög næfurþunnum náttkjólum hún klæðist,
svo næstum sést þar allt í gegn.
Til hennar hverja nóttu hugur læðist,
því einlífið er mér um megn.
Með henni er ég alltaf einhvern veginn
óstyrkur og skortir magn.
Hana sætt ég leiði inn Laugaveginn,
við laumumst inn í Hagavagn.
Ég stundum fæ að faðma hana á kvöldin,
fyrst fer hún í sitt beibídoll.
En samt til þess að sefa ástareldinn,
ég syng við hana í dúr og moll.
Og þótt mig stundum langi að vera lengur,
slíkt leyfist ekki að tala um.
Hún segir alltaf: Ertu vitlaus drengur,
þú ert að missa af vagninum.
Með Hagavagni held ég burtu síðan,
já, held þá í mitt kalda ból.
Mig dreymir hennar yndisþokka þýðan
og þennan gegnumsæja kjól.
En sú er von að seinna þetta breytist,
við beibídoll og brúðkaupskoss,
þá um nátt hjá henni að vera veitist,
þá vagninn ekkert hrellir oss.
Cm
X X I 0 2 4
Hm
X X 3 4 2 '1
( >
( > ( »
4 >
0 2 3 14 0
Venjum unga
hestamenn
strax á að
NOTA HJÁLM!
UMFEROAR
RÁÐ
t/e,/géu£a£a íeœúa-
mannsÍKS
6egg
3 dlsykur
3 dl hveiti
2 tsk. lyftiduft
Rasp
Fylling:
1 1/2 dl jarðarberjasulta
1/2 1 rjómi
2 pokar möndluspænir
Jarðarber
Egg og sykur þeytt saman í
þykka eggjahræru. Hveiti og
lyftidufti blandað saman við.
Deigið sett í vel smurt, raspi
stráð hringform (2 1). Bakað
við 180° í ca. 30 mín. Kökunni
hvolft úr forminu og skorið
stykki úr hringnum, þá mynd-
ast skeifan. Kakan klofin í tvo
botna og jarðarberjasultunni
smurt yfir, hinn hlutinn því
næst settur yfir. Rjóminn
þeyttur og kakan skreytt með
þéttum rjómatoppum.
Möndluspónum stráð yfir.
Jarðarber borin með.
'ac
2egg
2 msk. sykur
5 dl mjólk
1/2 tsk. kardemommur
100 gr brætt smjör
Ca. 2 1/2-3 dl hveiti
Þeytið saman egg og sykur,
bætið mjólkinni í ásamt kar-
demommum og hveiti. Síðast
látum við brætt smjör saman
við hræruna. Gott er að láta
deigið bíða í ca. 10 mín. áður
en við byrjum að baka. Það er
gott að baka eitt „prufu"
hjarta, til að sjá hvort deigið er
mátulega þykkt eða hvort
bæta þarf í meira hveiti eða
mjólk.
tfa//að íufifi
tt(/papri/a
600 gr nautahakk
Salt og pipar
1 laukur
1 græn og 1 rauð paprika
3 tómatar
4 msk. smjör eba olía,
til steikingar
Búið til „buff" úr hakkinu.
Stráið salti og pipar yfir þau.
Buffin steikt á báöum hliðum
á pönnu, með smjöri eða olíu.
Tekið af pönnunni og haldið
heitu með álpappír yfir.
Vib brosum ...
Tveir einsetukarlar höfðu keypt sér saman koníaksflösku.
Það mátti þó ekki snerta flöskuna nema í veikindum, aðeins
þá mátti fá sér í glas.
Það liðu ekki margir dagar þar til annar þeirra sagðist vera
hálf slappur í dag og þarfnast áreibanlega smásopa af flösk-
unni.
„Það er of seint," sagði þá hinn. „Ég var sárlasinn í allan
gærdag."
Pétur hafði keyrt hring eftir hring um miðbæinn og engin
bílastæði fundiö. Frúin var orðin bálreið.
„Þú ert sá mesti þorskhaus sem ég þekki. Allir abrir hafa
fundið bílastæbi, hvers vegna ekki þú?"
Magnús gamli var hjá augnlækninum.
Læknirinn: Þegar þú borðar egg, skaltu alltaf hafa það vel
soöið.
Magnús: Það er skrýtið, sérð þú það á augunum í mér?
Læknirinn: Nei, ég sé það á jakkanum þínum.
Yfirhjúkrunarkonan varaði nýju hjúkrunarnemana við, að
þeir mættu alls ekki mæla meb einum lækni fremur en öðr-
um. Dag nokkurn heyrði hún sér til skelfingar, að einn
neminn svaraði í símann: „Jú, við höfum sex lækna hér, en
því miður get ég ekki mælt með neinum þeirra."
Pétur litli kom alltaf heim með mjög lakar einkunnir og
pabbi hans var öskureiður.
„Er það nokkur hlutur sem þú gerir betur en abrir í skólan-
um?"
„Já, ég er sá eini í bekknum sem getur lesið skriftina mína."
A: Hvernig gekk þér með fyrstu máltíðina fyrir nýja eigin-
manninn?
B: Bara vel, læknirinn segir að hann geti farið aftur að vinna
eftir vikutíma.
A veitingastaðnum:
Þjónninn: Ef þér viljið kvarta við kokkinn verðið þér að
bíöa. Hann fór út að borða.
Elisabeth Taylor er mikill dýravinur. Uppáhalds dýrið
hennar er minkur.
Laukurinn saxaður, paprik-
an skorin í smábita og tómat-
arnir saxaðir gróft. Þetta er lát-
ib krauma saman á pönnu, þar
til þab er orðið meyrt, þá er
þetta sett á buffin um leið og
þau eru borin fram. Kartöflur
eru bornar meb.
i'fóðu/pott/éttu/*'
fndóneœiu
Fyrir 4
500 gr svínakjöt, skorið
í smábita
3 msk. smjör eöa olía
2 púrrur
4 epli
1 rauð paprika
3 dl kjötkraftssoð
2-3 msk. sojasósa
Salt og pipar
4 bananar
Kjötið er brúnað og púrru-
sneiðar látnar brúnast létt
með. Litlir eplabitar og papr-
ikuhringir settir út í ásamt
kjötkraftinum. Sojasósan sett
út í og kryddað með salti og
pipar. Allt er þetta svo látið
krauma saman í ca. 50-60
mín. eða þar til allt er orðið
mjúkt. Bananasneibum er svo
bætt út í tétt áður en rétturinn
er borinn fram. Soðin hrís-
grjón og nýtt brauö borið
með. Þetta er fljótlegur réttur,
ágætis gestaréttur.
Tauhettur á
sultukrukkur
Vinsæl gjöf til þeirra
sem ekki hafa getu eða
tækifæri til að búa til sultu
eða hlaup úr berjum sum-
arsins.
Við notum smá efnis-
bút, í fallegum lit, teikn-
um á röngunni hring utan
um undirskál eða smá-
kökudisk, það fer eftir
stærð glerkrukkunnar sem
við ætlum að nota. Svo
klippum við með sikk-sakk
skærum og bindum svo
hettuna fasta með basti.