Tíminn - 14.10.1995, Síða 19
Laugardagur 14. október 1995
ðÍHtítttf
19
blessunar á eilífðarbrautum.
Eiginkonu, börnum og ást-
vinum öllum sendum við
innilegar samúðarkveðjur og
biðjum góðan guð að styrkja
þau og vernda í sorg þeirra.
Guð blessi minningu mæts
manns.
Guðríður Eiríksdóttir,
formaður sóknamefhdar Ak-
ureyrarkirkju
Þórhallur Höskuldsson, vinur
og bekkjarbróðir, er látinn
langt um aldur fram. Ég sá
hann fyrst haustiö 1958 í
þriðja bekk Menntaskólans á
Akureyri. Hann var bráð-
þroska og hærri en flestir
bekkjarbræðurnir og prúð-
mannleg framganga hans
vakti athygli. Leiðir okkar
lágu saman þegar við fórum
að stíga í vænginn við verð-
andi eiginkonur okkar og
bekkjarsystur, sem báðar eru
frá Siglufirði. Við nánari
kynni skildist fljótt hvílíkur
mannkostamaður bjó í þess-
um bekkjarbróður okkar.
Undir alvörugefnu og hlé-
drægu yfirborðinu leyndist
gamansamur, glettinn og góð-
ur félagi. Hann var unnandi
góðra lista, og var sjálfur
mjög liðtækur á því sviði.
Engum hef ég kynnst sem
hafði list samræðunnar í jafn
ríkum mæli á valdi sínu. Þar
kom margt til. Hann hafði
innsýn í fjölda málaflokka á
sviði þjóðmálaumræðunnar
og næman skilning á öllu er
laut að mannlegum gildum
og velferð. Oft tókst Þórhalli
ab sjá spaugilegar hliðar á
hinum alvarlegustu málum
og alltaf tók hann að sér að
verja málstað þess sem á ein-
hvern hátt stóð höllum fæti
eba átti undir högg að sækja.
Þegar okkar gamli skóla-
meistari kvaddi okkur á sín-
um tíma, þá talaði hann um
hina mörgu möguleika æsk-
unnar og vanda valsins. Öll
stóðum við á vissum vega-
mótum og vegir lágu til ým-
issa átta um óræða stigu. Ég
held að Þórhallur hafi átt til-
tölulega létt með valið. Hann
hóf nám í guðfræði í Háskóla
íslands haustið eftir stúdents-
próf og undi sér þar vel. Hann
sat um tíma í stúdentaráði og
tók virkan þátt í félagsstarfi
innan Háskólans. Að nárni
loknu vígðist hann til Möðru-
vallasóknar, haustið 1968.
Samhliða fjölþættum embætt-
isstörfum stundaði hann
kennslu og deildi á sinn hátt í
gegnum þau kjörum sóknar-
barna sinna. Hann var skipað-
ur sóknarprestur á Akureyri
1982.
Á umliðnum árum hefur
hann sinnt fjölda trúnaðar-
starfa innan Þjóðkirkjunnar
og meðal annars setið í starfs-
kjaranefnd presta, kirkjueign-
arnefnd og í stjórn Prestafé-
lags íslands, svo fátt eitt sé
talið. Sérstaklega voru honum
hugleikin eignarréttarmál
Þjóökirkjunnar og tengsl ríkis
og kirkju. Þó að þessi störf
væru fyrirferðarmikil, sinnti
hann |dó sóknarbörnum sín-
um af sérstakri alúð. Sóknar-
börnin leituðu til hans með
DAGBÓK
Námskeið í tréskurði er kl. 15.30.
Handavinnustofan er opin allan dag-
inn.
Lauqardaqur
14
október
287. dagur ársins - 78 dagar eftir.
41. vika
Sólris kl. 08.13
sólarlag kl. 18.13
Dagurinn styttist um
7 mínutur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Brids, tvímenningur, í Risinu kl. 13
og félagsvist kl. 14 sunnudag. Dansað
í Goðheimum kl. 20.
Lögfræðingurinn er til viðtals fyrir
félagsmenn á þriðjudag. Panta þarf
viðtal í s. 5528812.
Leikfimi í Víkingsheimilinu
mánud. og fimmtud. kl. 11.50.
Handavinnunámskeið byrjar á
þriðjudag kl. 10 í Risinu.
Söngvaka mánudag kl. 20.30 í Ris-
inu. Stjórnandi er Steinunn Finn-
bogadóttir og undirleik annast Sigur-
björg Hólmgrímsdóttir.
Hana-nú, Kópavogi
Vikuleg Iaugardagsganga Hana-nú
í Kópavogi er í dag, kl. 10 f.h. Lagt af
stað frá Gjábakka, Fannborg 8. Ný-
lagað molakaffi.
Húnvetningafélagib
í Reykjavík
er með sína árlegu kaffisölu í Húna-
búð sunnudaginn 15. október kl. 15.
Velunnarar hvattir til að mæta.
Gjábakki, Fannborg 8
Á mánudaginn er námskeið í kera-
mik kl. 09.30, enska 1 er kl. 13.30.
Lomberinn verður spilaður kl. 13.
Rabganga Útivistar 1995:
Forn frægðarsetur —
Bessastaðir
Bessastabir verða heimsóttir
sunnudaginn 15. októ.ber í ferðaröð-
inni „Forn frægðarsetur", sem Útivist
stendur fyrir. Farib verður með lang-
ferðabifreið frá Umferðarmiðstöðinni
kl. 10.30 suður á Bessastaði. Þar mun
Einar Laxness sagnfræðingur stikla á
stóru um sögu Bessastaða og Guð-
mundur Ólafsson fornleifafræðingur
greina frá fornleifarannsóknum á
staðnum. Að því loknu geta þátttak-
endur valib um að fara með lang-
ferðabifreiðinni til baka eða ganga
gömlu alfaraleiðina frá Bessastöðum
yfir Garðahraun, meb Arnarnesvík og
yfir Arnarneshæð að þingstaðnum í
Kópavogi og fara meb langferðabif-
reiðinni þaðan eða í þriðja lagi, ef
gott sjóveður og aðrar aðstæður leyfa,
ganga niður á Skansinn og láta ferja
sig yfir Skerjafjörð að Austurvör í
gamla Skildinganeslandinu og ganga
þaðan. Göngufólk fær sérstimpluð
göngukort sem viðurkenningu fyrir
þátttöku.
Sýning í Deiglunni á Akureyri:
Karlar gegn ofbeldi
I dag, laugardag, verður sýningin
„Karlar gegn ofbeldi" opnub í Deigl-
unni, Akureyri. Á sýningunni eru
myndir úr samkeppni Félags íslenskra
teiknara, sem haldin var í samvinnu
við Karlanefnd Jafnréttisráðs. Mynd-
irnar voru til sýnis í Ráðhúsi Reykja-
víkur í september, en þá var jafn-
framt átaksvika karla gegn ofbeldi.
Jafnréttisnefnd Akureyrar styrkir sýn-
inguna. Hún er opin daglega frá 14
til 18.
Atkvöld Taflfélagsins
Hellis
Taflfélagib Hellir stendur fyrir sínu
öðru atkvöldi mánudaginn 16. októ-
ber n.k. Tefldar verba 6 umferðir eftir
Monrad-kerfi. Fyrst eru tefldar 3
hraðskákir og svo 3 atskákir, en
ótrúlegustu mál og hann
greiddi götu þeirra eins og
hann best gat. Þegar við hjón-
in heimsóttum Steinu og Þór-
hall urðum við áþreifanlega
vör við þann mikla eril sem
fylgdi störfum hans. Síminn
þagnaði ekki fyrr en um mið-
nætti og hann fór á fætur eld-
snemma til þess að vinna að
ræðum sínum. Enda ímynda
ég mér að friður til slíkra
starfa hafi ekki gefist í annan
tíma. Þó að friður samveru-
stundanna væri ekki mikill,
voru þau Þórhallur og Þóra
Steinunn miklir höfðingjar
heim að sækja og höfðu ein-
stakt lag á að Iáta viðmælend-
um sínum líða vel í návist
sinni. Við settumst að hvor í
sínum landsfjórðungi, en
nýttum þau færi sem gáfust til
heimsókna. Samverustundirn-
ar voru samt of fáar og of
stuttar.
Þegar við útskrifuðumst úr
Menntaskólanum á Akureyri
1962, fannst okkur sem allir
vegir væru opnir og greiðfær-
ir. Nú er vegurinn aðeins
einn, en hann hlýtur að vera
greibfær fyrir þjón Drottins
sem þjónað hefur herra sín-
um af trúmennsku. Söknubur-
inn er sár. Það verður niður-
lútur og hnípinn hópur sem
fylgir bekkjarbróður, vini og
félaga til grafar á mánudag-
inn.
Kæra Þóra Steinunn og
börn. Við hjónin flytjum ykk-
ur innilegustu samúbarkveðj-
ur. Þið hafið misst mest. Megi
góður Guð styrkja ykkur.
Sveinn Þórarinsson
þannig Iýkur mótinu á einu kvöldi.
Teflt verður með hinum nýju Fi-
scher/FIDE klukkum, en Hellir er eina
taflfélag landsins sem býður upp á
þessar vinsælu klukkur. Hellir stóð
einnig fyrir atkvöldi 18. september
s.l. og tóku þá alls 39 þátt í mótinu.
Þátttökugjald eru kr. 200 fyrir fé-
lagsmenn, en kr. 300 fyrir aðra. Ung-
lingar fá 50% afslátt.
Teflt verður í Menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi og hefst taflið kl. 20.
Mótið er öllum opib.
Valgerður Andrésdóttir.
Tónleikar í Hafnarborg
Valgerður Andrésdóttir spilar á
tónleikum í Hafnarborg, Hafnarfirði,
miðvikudaginn 18. okt. n.k. kl. 20. Á
efnisskrá eru verk eftir Jórunni Viðar,
Mozart, Debussy, Chopin og Liszt.
Hún er nýbúin að spila á tónleikum á
Akureyri og er á leið út til að spila
þessa sömu efnisskrá á tónleikum í
Kaupmannahöfn og á áskriftartón-
leikum Kammermúsíkklúbbsins í
Uppsölum í Svíþjóð.
Valgerður tók einleikarapróf frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík árið
1985 og hélt síban utan til Berlínar í
Þýskalandi til frekara náms. Hún út-
skrifaðist frá Tónlistarháskólanum í
Berlín árib 1992 og hefur síban búið í
Kaupmannahöfn. Valgerbur hefur
haldið allnokkra tónleika hér á landi
og erlendis. Verb aðgöngumiöa er kr.
800,- og hefjast tónleikarnir sem fýrr
segir kl. 20.
Fréttir í vlkulok
Fjárlagafrumvarpib 1996 kynnt
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarpið
í síðustu viku. Reiknað er með ab hallinn á ríkissjóði verði 3,8
milljarðar, eða sá minnsti í 12 ár ef fjárlögin ná fram að
ganga. Fjármálaráðherra segir brýna nauðsyn að snúa afkomu
ríkissjóðs, það gangi ekki lengur ab senda börnum og barna-
börnum reikninginn. Framlög til heilbrigðismála hafa verið
harölega gagnrýnd af stjórnarandstæbingum svo sem innrit-
unargjöld.
Borgaryfirvöld boba abgerbir gegn mibbæjar-
vandamálinu
Hækkun sjálfræðisaldurs og breyting á opnunartíma veitinga-
húsa eru meðal þeirra tillagna sem borgarráð hefur viðrað til
ab bæta ástandið í miðbænum um helgar. Þar safnast um
helgar þúsundir ungmenna saman.
Mál trillukarla endurskobub
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra segist ætla að endur-
skoða fiskveiðistjórnun smábáta. Trillukarlar eru mjög
óánægðir með sinn hlut.
Ekki grundvöllur til ab segja
kjarasamningum upp
Formaður ASÍ, Benedikt Davíðsson, telur að ekki séu forsend-
ur fyrir því að segja upp kjarasamningum, en þeir koma til
endurksoðunar í nóvember. Verðbólga sé innan þeirra marka
sem samið var um og óánægja með kauphækkanir ákveðinna
launahópa sé ekki forsenda fyrir uppsögn.
Búvörusamningurinn samþykktur
Aukabúnaðarþing samþykkti búvörusamninginn fyrir hönd
bænda og á nú Alþingi aðeins eftir ab samþykkja hann til ab
hann verði að lögum. Skiptar skoðanir eru um hvort vandi
sauöfjárbænda Ieysist með samningnum en birgðir af lamba-
kjöti nema 2.200 tonnum.
Starfi Sjömannanefndar lokib?
Miðstjórn Alþýðusambandsins lítur þannig á ab starfi Sjö-
mannanefndar sé lokib og trúnaðarbrestur hafi átt sér stab
þar sem enginn aðili frá ASÍ kom ab gerð nýja búvörusamn-
ingsins. Formabur Bændasamtakanna harmar þessi viðbrögö
en segir einkum við stjórnvöld að sakast.
Tvö banaslys
- Tveir fórust í bílslysum í vikunni, báðir í árekstri. Annað slys-
ið varð við Gunnarshólma en hitt varð í Reykjavík.
Rjúpnavertíb ab hefjast
Útlit er fyrir gott veiðiár í rjúpunni, en vertíðin hefst á morg-
un, 15. október. Alls eru áætlaðir um 1.000.000 fuglar í stófn-
inum.
Stórt fíkniefnamál
Eitt kíló af amfetamíni og tvö kíló af hassi fundust á Keflavík-
urflugvelli í vikunni. Áætlað söluverð er 20 milljónir króna.
Arnþrúður Karlsdóttir varaþingmabur hefur flutt þingsálykt-
unartillögu þar sem farið er fram á harðari viðurlög gegn
fíkniefnabrotum.