Tíminn - 23.12.1995, Page 1
Verið tíni(wlep
með jólapóstinn
-JgggZ- PÓSTUR OG SÍMI
79. árgangur
STOFNAÐUR 191 7
Laugardagur 23. desember 1995
ÞREFALDUR 1. VINNINGUR
243. tölublaö 1995
Katrín Vibarsdóttir þriggja ára bíöur spennt eftir jólunum.
Tímamynd: Brynjar Cauti
Framlag ríkisins til Byggingarsjóös verkamanna lœkkaö úr 1.200
millj. niöur í 400 millj. frá 1992:
Áhyggjur af eiginfjárstöðu
Byggingarsjóös verkamanna
Fjárlaga-
hallinn 3,9
milljaröar
Halli ríkissjóös á næsta ári verb-
ur um 3,9 milljarðar króna,
samkvæmt frumvarpi til fjár-
laga sem samþykkt var á Al-
þingi í gær og hafa fjárlög ekki
veriö samþykkt meb minni
halla um margra ára skeib.
Gert er ráð fyrir ab tekjur rík-
issjóbs verbi 120,9 milljarðar
króna á næsta ári samkvæmt
frumvarpi til fjárlaga fyrir árib
1996. í upphaflegri gerb frum-
varpsins var gert ráð fyrir tekj-
um ab upphæð 119,9 milljarbar
en í meðförum Alþingis voru
tekjulibir frumvarpsins hækkab-
ir um 976 milljónir króna. Þá
leiöa tillögur meirihluta fjár-
laganefndar til breytinga á
frumvarpinu til hækkunar út-
gjalda aö 829,6 milljónir króna.
-ÞI
Fuiltrúar Húsnæbisstofnunar rík-
isins lýstu áhyggjum af eiginfjár-
stöbu Byggingarsjóbs verka-
manna, á fundi sem þeir áttu meb
félagsmálanefnd Alþingis. Þær
áhyggjur verba sjálfsagt skiljan-
legar þegar litib er til þess ab áætl-
ub framlög ríkisins til sjóbsins
1996 hafa lækkab um 2/3 frá ár-
inu 1992, eba úr tæpum 1.200
milljónum ab núvirbi nibur í 400
milljónir á næsta ári. Eigi ab
koma í veg fyrir hrakandi eigin-
fjárstöbu þurfi því annab tveggja
ab koma til: hærri ríkisframlög
eba hærri vexti af lánum sjóbsins.
Samkvæmt greinargerö með fjár-
lagafrumvarpi 1992 var það mark-
mib sett með frumvarpinu að
styrkja fjárhagsstöðu sjóbsins og
jafnframt að treysta uppbyggingu
og frambob félagslegra íbúða. Var
vib það mibað að útlánaáætlun
sjóðsins fengi staðist samtímis því
sem eiginfjárstaða sjóðsins væri
byggð upp og varðveitt. Framlag
ríkissjóbs fyrir 1992 var ákvebið
1.075 milljónir (um 1.195 mkr. að
núverði) „og vib þab miðað af hálfu
ríkisstjórnarinnar að sú fjárhæð
haldist að raungildi sem árlegt
framlag til frambúbar", eins og
sagði í greinargerðinni.
Strax árið eftir lækkabi framlagið
samt í 925 milljónir og áfram niöur
í 918 milljónir fyrir 1994. Á yfir-
standandi ári leggur ríkissjóbur 608
milljónir til Byggingarsjóðs verka-
manna og í fjárlagafrumvarpi fyrir
næsta ár er gert ráð fyrir 400 millj-
ónum, sem ábur segir. Forsvars-
menn Sambands ísl. sveitarfélaga,
sem einnig mættu á fund félags-
málanefndar, töldu ab íbúðabygg-
ingum með lánum úr BV mundi
fækka úr 418 niður í 230 á næsta
ári. Jafnframt kom fram að í lok síð-
asta árs hafi 115 félagslegar íbúðir
verið óseldar í 25 sveitarfélögum,
hvar af 46 íbúðir hafi staðib auðar.
Ljóst væri að mörg sveitarfélög
gætu ekki staðið við þær ábyrgðar-
skuldbindingar sem hvíli á þeim
vegna félagslega íbúða. Þar á ofan
séu félagslegar íbúðir ekki lengur
raunverulegur valkostur fyrir efna-
litlar fjölskyldur. Þegar svona sé
komiö verði löggjafarvaldib ab taka
á vandanum áður en í algjört óefni
sé komið. ■
Minnsta fólksfjölgun á öldinni
enda fcekkun í öllum lands-
hlutum utan Reykjavíkur-
svceöisins:
Um 4.400
flutt úr landi
íslendingum hefur abeins fjölgab
um rúmlega 1 þúsund manns
(0,38%) síban fyrsta desember,
sem er minnsta fólksfjölgun síban
árib 1900.
Fólki hefur fækkað í öllum lands-
hlutum nema á höfuðborgarsvæð-
inu. Barnsfæðingum hefur fækkað
töluvert, en mannslátum aftur á
móti fjölgað óvenjulega mikið, eða
um 10%. Mestu munar þó um þá
4.400 sem fluttu úr landi, sem er
mesti brottflutningur fólks sem
nokkru sinni hefur orðib á einu ári.
Um 3.000 manns hafa þar á móti
flutt til landsins. Aðeins eitt dæmi
er um meiri nettó brottflutning úr
landi, árið 1887, þegar vesturfarir
stóðu sem hæst. En árin 1969 og
1970 sá ísland af álíka mörgum úr
landi, umfram þá sem komu í stab-
in, og nú í ár. ■