Tíminn - 23.12.1995, Page 9
Laugardagur 23. desember 1995
9
kr. frá áramótum Á fjóröa hundraö íslenskir fyrirtœkjarekendur í 63 löndum víöa um heim. Samtökin lcenet:
Rúmar 400 þús-
und skattfrjálsar
Sendiherrar íslands erlendis fá:
Vegna fyrirspurnar Mar&ar
Árnasonar, varaþingmanns
Þjóövaka, um Iaun og skatt-
fríðindi sendiherra og starfs-
manna í sendiráðum vill Þjóð-
vaki vekja athygli á svari ut-
anríkisráðherra.
í svarinu kemur fram aö meö-
allaun sendiherra á þessu ári
voru 207.000 kr., en að auki
fengu sendiherrar greiddar
415.000 skattfrjálsar krónur á
mánuði í staöaruppbót. Utan-
ríkisráðherra segir að þessar
staðaruppbætur séu hvergi
skattlagöar í utanríkisþjónust-
um annarra ríkja svo vitað sé,
en forsendur fyrir slíkum
greiöslum séu einkum vegna
þess óhagræðis, álags og óbeins
kostnaðar sem starfsmenn utan-
Vísitölur launa og bygg-
ingarkostnaöar hcekka
um 0,2%:
Leiga hækkar
um 150 til 250
ríkisþjónustunnar 'verða fyrir
vegna tíöra flutninga. En þeir
hafa í raun framselt búsetufrelsi
sitt til ríkisvaldsins og eru að
jafnaði fluttir til á 3-5 ára fresti.
Bent er á að makar missi af eigin
starfsframa og fæstir þeirra eigi
kost á starfi við sitt hæfi erlend-
is. Auk þess þurfi börn starfs-
manna að skipta um skóla og
menningarumhverfi með
óreglulegu millibili og því fylgi
álag á fjölskyldumeðlimi.
Sendifulltrúar, sendiráðu-
nautar, sendiráðsritarar, sendi-
ráðsfulltrúar og ritarar fá einnig
greiddar skattfrjálsar staðarupp-
bætur og voru þær á bilinu 115-
340 þúsund á mánuði á þessu
ári. Risnukostnaöur sendiherra,
sem ætlað er að kosta samskipti
við lykilmenn í stjórnmálalífi,
atvinnulífi og menningarlífi,
var að meðaltali tæp 100 þús-
und á mánuði þetta árið og
milli 15-30 þúsund hjá öðrum
starfsmönnum sendiráðanna.
LÓA
lörína C. jónsdóttir, f. 1900, Ólafur Sigurvinsson, f. 1935, Ólafur Ólafsson, f. 1955, Þórunn Alma Ólafsdóttir, f.
1973, og Axel Óli Albertsson, f. 1993.
Fimm ættliðir koma saman
Fimm ættliðir hafa loks litið dags-
ins ljós í afkomendafjölda Jörínu G.
Jónsdóttur og Sigurvins Einarssonar,
fyrrum alþingismanns. Jörína er fædd
aldamótaárið og það er ættleggur
fjórða barns þeirra, Ólafs Sigurvins-
sonar f. 1935, sem fimmti ættliðurinn
lét sjá sig. Jörína og Sigurvin áttu alls
sjö börn og eru sex þeirra á lífi. Að
sögn ættingja eru ekki komnir fimm
ættliðir í þeim ættleggjum sem komn-
ir eru af hinum börnum Jörínu, þó að
fyrsta barn hennar sé fætt níu árum
fyrr en Ólafur. „i>au eru bara svo pen,
þau eru ekkert farin að framleiða."
Axel Óli er því fyrsta langalang-
ömmubarn hennar, en alls eru af-
komendurnir orönir 73. ■
Leiga fyrir íbúðarhúsnæði og
atvinnuhúsnæði, sem sam-
kvæmt samningum fylgir
vísitöiu húsnæðiskostnaðar
eða breytingum meðallauna,
hækkar um 0,6% frá og meö
1. janúar. Hækkun þessi
reiknast á þá leigu sem greiða
á nú í desember, en leiga helst
síðan óbreytt næstu tvo mán-
uði, þ.e. í febrúar og mars.
Leiga fyrir 2ja til 4ra her-
bergja íbúðir mun ekki óal-
geng á bilinu 25 til 42 þúsund
krónur á mánuði. Leiga á
þessu bili mun hækka um 150
til 250 krónur á mánuði, svo
dæmi sé tekið.
Vísitölur byggingarkostnaðar
og launa hækkuðu báðar um
0,2% milli nóvember og des-
ember. Byggingarvísitala 205,5
stig gildir fyrir janúar 1996. Síð-
ustu tólf mánuði hefur bygg-
ingarvísitala hækkað um 3,2%,
en launavísitalan hátt í tvöfalt
meira, eða um 5,8%. Launavísi-
tala miðast við og er reiknuð út
frá meðallaunum í hverjum
mánuði. ■
Vilja virkja þekkinguna
Eitthvað á fjóröa hundraö ís-
lenskir aðilar stunda viðskipti af
ýmsu tagi á erlendri grund, í 63
Iöndum í það minnsta sam-
kvæmt upplýsingum frá Aflvaka
Reykjavíkur. Það er tímanna tákn
ab íslendingar nýta sér frelsi til
athafna í öbrum löndum, en slík-
um rekstri fylgir áhætta. Gústaf
Skúlason, athafnamabur í Sví-
þjób, var á ferbinni hér á landi á
dögunum. Hann kom til ab
kynna hugmynd sína og fleiri ís-
lendinga sem reka fyrirtæki í Sví-
þjób, samtökin Intemational
Network of Icelandic Business,
eba Icenet eins og þab er kallab.
„Vib höfum séb íslendinga vera
að þreifa fyrir sér í fyrirtækjarekstri
á erlendri grund, og þeir hafa gert
ýmis mistök sem hæglega mætti
komast hjá. Við teljum að með því
að snúa bökum saman gætu ís-
lenskir athafnamenn náð betri ár-
angri í öðrum löndum," sagði Gúst-
af Adolf Skúlason í samtali við Tím-
ann. Gústaf rekur ráðgjafarfyrirtæki
í Sollentuna í Svíþjóð ásamt sænsk-
um félaga sínum, auk þess að starfa
ásamt konu sinni, Ólöfu Baldurs-
dóttur, við auglýsingastofu hennar.
Gústaf segir að með nánara sam-
starfi íslenskra athafnamanna megi
nýta ýmis viðskiptasambönd og
mikilvæga þekkingu á mörkuðun-
um sem safnast hefur. Hann segir
að hugmyndin með stofnun Icenet-
samtakanna sé að mynda alþjóðlegt
samstarfsnet íslenskra fyrirtækjaeig-
enda á erlendri grund. Slíkt upplýs-
inganet milli íslendinga, sem starfa
vítt og breitt um heiminn, sé auð-
velt að reka með nútíma fjarskipta-
tækni, til dæmis á Internetinu.
Gústaf segir að því miður séu of
mörg dæmi þess í útflutningssögu
okkar að gerð hafi verið dýrkeypt
mistök. Einnig séu dæmi þess að
Alþjóöleg enduruppbygging í Bosníu-Hersegóvínu skipulögö í Brussel:
ísland sendir mann-
afla og tækjabúnaö
íslendingar munu taka þátt í
enduruppbyggingu Bosníu-
Hersegóvínu meö því að
senda mannafla og tækjabún-
að til landsins, en ekki fjár-
framlög. Þetta var samþykkt á
ríkisstjórnarfundi fyrr í vik-
unni. Utanríkisráðherra Hall-
dór Ásgrímsson flutti tillög-
una, sem samþykkt var á
fundi ráðherranna.
Skipuð verður nefnd þriggja
ráðuneyta til að útfæra fjár-
mögnun verksins. Ráðuneytin
eru forsætisráðuneyti, fjármála-
ráðuneyti og utanríkisráðu-
neyti.
Aðdragandi samþykktarinnar
er sá að íslenskum stjórnvöld-
um var sent boðsbréf frá Evr-
ópusambandinu og Alþjóða-
bankanum um að sækja fýrstu
ráðstefnuna um framlög til upp-
byggingar Bosníu-Hersegóvínu,
en hún hófst í Brussel í gær.
Sendiherra íslands í borginni fer
fyrir þriggja manna íslenskri
sendinefnd.
Megináhersla er Iögð á þrjú
atriði: í fyrsta lagi verður kynnt
mat á brýnustu þörfum hvað
uppbyggingarstarf næstu mán-
aða varðar. í ööru lagi verður
fjallað um fjárhagsþörf fyrir
fyrsta ársfjórðung næsta árs, en
talið er aö 518 milljónir banda-
ríkjadala, eða um 34 milljarða
króna, þurfi til að mæta brýn-
ustu þörfum þetta tímabil. í
þriðja lagi er gert ráð fyrir aö
þátttökuríki og alþjóðasamtök
gefi til kynna áætlanir sínar um
framlög, þannig að taka megi
tillit til þeirra í uppbyggingar-
áætluninni. Loks verður fjallað
um framkvæmd og samhæfingu
aðstoðarinnar.
Á ráðstefnunni í Brussel á að
leggja grunninn aö annarri
framlagaráöstefnu sem haldin
verður í mars næstkomandi. Þar
á að afla fjármagns til lengri
tíma, fjögurra ára uppbygging-
artímabils. -JBP
ráðist hafi veriö í framleibslu á vör-
um sem ekki hafi verið unnt ab
finna kaupendur að erlendis, því
ekki hafi veriö tekib tillit til sérþarfa
og smekks hinna ólíku markaða. Þá
séu fjölmörg dæmin um mislukk-
aba dreifingarstarfsemi, sem kostaö
hafi mikið fé. Innan samtaka eins
og hugmyndin er að Icenet verbi,
gefist mönnum kostur á að foröast
slík mistök með nánu samráði inn-
an hópsins.
Gústaf heimsótti iðnaðarráðu-
neytið, Útflutningsráb og fleiri að-
ila meban hann dvaldi hér. Öllum
íslenskum fyrirtækjaeigendum er-
lendis hefur veriö skrifað bréf og
kynnt hugmyndin og óskað eftir
þátttöku þeirra. Þá er búið að skrifa
sendiráðum íslands og ræðismönn-
um.„Við vinnum að framgangi
málsins á fullu og annast ðskar
Kristjánsson framkvæmdastjóri hjá
Interland í Uppsölum um að
stjórna samtökunum. Næsta vor
verður haldinn aðalfundur Icenet
og þá munum við meta stöðu mála.
Þá gerist annað hvort að það verður
hætt — eða haldið áfram, sem ég
vona sannarlega að verði ofan á,"
sagði Gústaf Adolf Skúlason. Auk
Gústafs og Óskars Kristjánssonar er
Einar Þorsteinsson forstjóri Inter-
land. -JBP
Framtíb þjónustu vib ferbamenn:
Áhersla á gæði
og arðsemi
í skýrslu starfshóps, sem
Rannsóknarráð íslands
skipaði fyrir tveimur árum
til aö gera úttekt á stöðu og
þróunarmöguleikum feröa-
þjónustu hér á landi, kemur
ma. fram að ekki sé síður
nauðsynlegt að leggja
áherslu á gæði og arðsemi
þjónustunnar en fjölgun
ferðamanna.
Tómas Ingi Olrich alþingis-
maður var formaöur starfs-
hópsins, en í honum voru
ma. fulltrúar frá Ferðamála-
ráði, Útflutningsráði íslands
og allmörgum fyrirtækjum á
sviði ferðaþjónustu.
í skýrslunni eru settar fram
beinar tillögur í sjö liöum. í
fyrsta lagi er lagt til að staða
ferðaþjónustu sem atvinnu-
greinar verði skýrð, ma. með
því að bæta úr upplýsinga-
miðlun og öflun hagtalna um
hana á vegum opinberra að-
ila. Þá er lagt til að starfs-
grunnur ferðaþjónustu verði
breikkaður, ma. með tilliti til
umhverfissjónarmiða og betri
nýtingar fjárfestingar utan
háannatíma.
Þá er lagt til að leitað verði
eftir samstöðu hinna ýmsu at-
vinnugreina um þá ímynd
sem gefin er af íslandi sem
ferðamannalandi, að forsend-
ur stefnumótunar í greininni
verði styrktar, að efldar verði
rannsóknir, þróunarstarf og
nýsköpun í ferðaþjónustu, að
skipulagi verði komið á fjár-
mögnun og framkvæmd
rannsókna og þróunar í þágu
ferðaþjónustu, og loks að
Rannsóknarráð hafi frum-
kvæbi að viöræðum við
helstu aðila þessara mála um
verkaskiptingu og samstarf
vib framkvæmd þeirra. ■