Tíminn - 13.01.1996, Side 1
80. árgangur
Heilbrigöisráöherra:
Árleg for-
varna
verölaun
Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisrábherra hefur ákvebib
ab heilbrigbis- og trygginga-
málarábuneytib veiti árlega
sérstök verblaun er nefnast
Forvarnaverblaun heilbrigbis-
rábherra.
Verblaunin verða veitt ein-
staklingi, félagasamtökum,
stofnun eða fyrirtæki sem hefur
með aðgerðum sínum vakið at-
hygli á mikilvægi forvarna fyrir
heilsufar fólks.
Verðlaunaveitingin er í anda
þeirrar stefnumörkunar ráðherr-
ans að beina kröftum heilbrigö-
isþjónustunnar í auknum mæli
að því að efla heilbrigði og fyrir-
byggja sjúkdóma.
Stefnt er að því að verðlaun
ársins 1996 verði veitt fyrir lok
þessa mánaðar. ■
Eindagi bifreiöagjalda
fœröur til:
Áðalskoöun
framkvæmd
þrátt fyrir
skuld
í síbasta mánubi tóku gildi
breytingar á lögum um bif-
reibagjald í þá veruna ab ein-
dagar bifreibagjalds hafa ver-
ib færbir fram um hálfan
mánub. Eru þeir nú 15. febrú-
ar og 15. ágúst ár hvert.
Nú þarf bíleigandi ekki leng’ur
að sanna fyrir bílaskoðuninni
að hann hafi greitt gjaldfallið
bifreiðagjald við aðalskoðun
fyrr en á eindaga, en ekki gjald-
daga eins og áður var.
Talsmenn Aðalskoðunar hf.
sem aðalskoðar hátt í þriðjung
bílaflotans á höfuðborgarsvæö-
inu, segja aö vissulega hafi hér
verið um nokkuð áhrifaríka
breytingu að ræða. Oftar en ekki
hafi menn samið um skil á bif-
reiðagjöldum við kaup og sölu,
en síðan hafi það misfarist að
gera full skil á gjöldunum.
„Flestir hafa þann háttinn á
að greiða gjöldin á eindaga og
því hefur mörgum þurft hart að
þurfa að greiða gjöldin við aðal-
skoðun án þess að þau séu fallin
í eindaga. Með tilkomu
greiðsluþjónustu bankanna hef-
ur einnig þeim gíróseðlum
fjölgað til muna sem greiddir
eru á eindaga. Hefur óhagræðið
því komið við marga þegar
skyndilega hefur þurft að greiða
gjöld við aðalskoðun, sem bif-
reiðaeigandi taldi sig ekki þurfa
að greiða fyrr en á eindaga,"
segja menn í Aðalskoðun.
Vandamál tengd bifreiðagjöld-
um við aðalskoðun ættu að vera
úr sögunni, en eftir sem ábur
verður hægt ab greiða gjöldin á
skoðunarstaðnum. - JBP
Laugardagur 13. janúar 9. tölublað 1996
Endurbyggt œskuheimili Siguröur Sveinsson frá Hvolsstöbum í Dölum heldur hér á líkani sem hann hefur
gert af bemskuheimtli smu Tra aldamótunum síbustu. Sigurbur heldur því fram ab byggingarlag Dalabænda hafi fyrr á tíb verib meb ólíkum hætti en
annars stabar á landinu og hafi bognar þaksperrur eins og sjást á myndinni verib þar einkenni fornra híbýla. Áhugaleysi Þjóbminjasafns sé hins vegar
algjört vegna málsins. Sjá nánar bls. 2 TímamyndGVA
jón Stefánsson segir Ijóst aö kórinn starfi áfram, hvort sem þaö veröi innan Langholtskirkju eba utan:
Vonast til að lausn náist án
þess að annar þurfi að víkja
Jón Stefánsson, organisti í
Langholtskirkju og stjórnandi
Langholtskirkjukórs, er farinn
ab starfa í kirkjunni á ný eftir
nokkurra vikna hlé. Kórinn
hefur verib vib æfingar undir
hans stjórn ab undanförnu en
formlega mun Jón ekki taka vib
fyrri stöbu sinni fyrr en næst-
komandi mánudag.
„Þab er alveg rosalega gott
hljóö í öllu starfsfólki. Svo er bara
eftir að vita hvab presturinn segir
þegar kemur að messunni, 21.
maí næstkomandi. I’að er ekkert
sem getur komið í veg fyrir ab
kórinn starfi áfram. Það er bara
spurning um hvort við verðum
áfram innan kirkjunnar eða ut-
an," sagði Jón í samtali vib Tím-
ann í gær.
-Heldurðu ab til þess gæti kom-
ið?
„Ég veit ekkert um það. Eiríkur
Tómasson er að vinna í málinu og
hann fær fullan frið til að vinna
sín störf fyrir okkur."
-Eru þá engin samskipti á milli
ykkar Flóka á meban Eiríkur skoð-
ar málið?
„Þaö hefur ekki þurft á því að
halda ennþá, nei. En þegar kemur
að því að ég spili vib messuna
næst verður hann ab láta mig vita
hvaöa sálma á að syngja — ef
hann vill nota þjónustu mína."
-Er það einhver spurning?
„Ja, ég get ekki svarað fyrir
hann."
-Er enn uppi sú staða að annar
ykkar verbi að víkja?
„Ef hægt er ab finna einhverjar
aðrar leiðir þá er ég tilbúinn í
það."
-Hafa þá líkurnar aukist að sátt
náist á milli ykkar tveggja?
„Ja, þab hefur í raun ekkert
gerst hvað okkur tvo varðar en á
sama tíma hefur verið mikið um
hártoganir á öðrum stöðum inn-
an kirkjunnar." -BÞ
Ögmundur jónasson formabur BSRB segir „áform um uppsagnir ekki í
samrœmi vib þá vorkomu sem forsœtisrábherra bobar":
Keppast vi 5 að segja upp
fólki hver sem betur getur
„Aform stjórnenda Ríkisspít-
alanna og Sjúkrahúss Reykja-
víkur um ab segja upp fólki,
loka deildum og draga úr
þjónustu vib þá sem síst geta
borib hönd fyrir höfub sér,
þ.e. aldraba og gebfatlaba, eru
algerlega óforsvaranleg og
ekki í nokkru samræmi vib þá
vorkomu sem forsætisráb-
herra bobabi vib áramót," seg-
ir Ögmundur Jónasson for-
mabur BSRB en stjórn samtak-
anna mótmælir harblega
þeim hugmyndum ab mæta
niburskurbi í fjárlögum 1996
meb því ab segja upp hátt á
annab hundrab starfsmönn-
um á þessu ári. „Svona í orbi
kvebnu segjast allir ætla ab út-
rýma hér atvinnuleysi og
standa vörb um afkomu fólks,
en síban er reyndin sú ab hver
sem betur getur keppist vib ab
segja upp fólki," segir Ög-
mundur.
í ályktun stjórnar BSRB segir
ab því hafi ítrekaö verið lýst yfir
í viðræðum við stéttarfélög
starfsfólks Borgarspítala og
Landakots þegar sameining
þessara sjúkrahúsa var til um-
ræbu í fyrra að hún mundi ekki
hafa í för með sér uppsagnir.
„Talað er um að loka meöferð-
arheimilinu á Kleifarvegi, en
það er eina úrræðið fyrir eftir-
meðferð á geðfötluðum börn-
um," segir í ályktuninni. „Jafn-
framt er talað um að spara meb
því að loka dagdeild fyrir aldr-
aða í Hafnarbúðum auk þess
sem loka á Hvíta bandinu, sem
er hjúkrunarheimili fyrir aldr-
aða." ■