Tíminn - 13.01.1996, Qupperneq 2
2
Laugardagur 13. janúar 1996
Wivmm
Sigurbur Sveinsson meb líkanib af bcenum.
Tímamynd: CVA
Siguröur Sveinsson segir þaksperrur húsa í Dölunum hafa veriö
bognar, sem sé einsdœmi á landinu:
Húsagerð Dalabænda
einstæö á landsvísu?
Húsnœöisstofnun
ríkisins:
Nýr flokkur
húsnæöisbréfa
Húsnæbisstofnun ríkisins hef-
ur gengiö til samninga viö
Veröbréfamarkaö íslands-
banka um sölu á nýjum flokk-
um húsnæöisbréfa á fyrsta
fjóröungi þessa árs. Bréfin eru
til 25 og 43 ára. Tilboö VÍB
þótti hagstæöast en efnt var
til útboös meöal allra verö-
bréfafyrirtækjanna. Tilgangur
húsnæöisbréfanna er aö fjár-
magna félagslega íbúöakerfiö
og er því afar brýnt aö sala
þessara bréfa takist vel.
Meö samningnum tryggir VÍB
sölu á 1.300 milljónum króna í
húsnæðisbréfum í febrúar og
mars, en alls er áformaö aö Hús-
næðisstofnun afli sér 5 millj-
aröa króna lánsfjár með sölu
skuldabréfa í ár. VÍB mun aö
auki annast viðskiptavakt fyrir
Húsnæðisstofnun á Verðbréfa-
þinginu. Húsnæðisstofnun hef-
ur undanfarið verið fjármögnuð
með beinni lántöku úr ríkis-
sjóði. ■
Norrœn
leikskáldaverölaun:
Himnaríki
eftir Árna Ib-
sen tilnefnt
Leikrit Árna Ib-
sen, Himnaríki
geöklofinn
gamanleikur,
sem leikhópur-
inn Hermóöur
og Háövör hef-
ur sýnt viö
mikla aösókn í
húsi Bæjarút-
geröarinnar í
Hafnarfirði síöan um miöjan
september, hefur veriö tilnefnt
af hálfu íslands til Norrænu leik-
skáldaverölaunanna 1996. Þessi
verölaun veröa veitt í þriöja sinn
á Norrænum leiklistardögum í
Kaupmannahöfn í sumar.
Himnaríki var sýnt á norrænni
leiklistarhátíð í Björgvin í vikunni
sem leið og í ráði er að sýningin
fari á alþjóðlegu leiklistarhátíöina
Bonner-Biennale í Þýskalandi
næsta sumar.
í dómnefnd voru Bríet Héöins-
dóttir leikstjóri, Sigurður A. Magn-
ússon rithöfundur og Sigurður
Hróarsson leikhússtjóri, en í um-
sögn hennar um Himnaríki segir:
„Himnaríki er skemmtilegt og
kröftugt gamanleikrit, ögrandi í
framsetningu og nýstárlegt að
formi. Leikritið nær vel að fanga
tilgangsleysi og firringu ungs fólks
í velferðarsamfélagi nútímans.
I.eikritið lýsir vel því nöturlega
ástandi sem gjarnan fylgir þeirri
kröfu að verða að „skemmta sér" -
þ.e. af vilja fremur en mætti. í
verkinu er dregin upp raunsönn
lýsing af ungu fólki í samfélagi þar
sem gömul og hefðbundin gildi
eru á undanhaldi, tilvistin er til-
gangslaus, hugsjónir veikar og
framtíöin marklaus; þar gildir það
eitt að lifa heitt og hratt fyrir hvert
andartak í einu, án stefnu, án tak-
marks, án ábyrgbar. Formbygging
verksins er í fullu samræmi við
efniö; nútímaleg, óvænt, endur-
tekin og klofin."
Tákn Kains, sem er eftir Morti
Vizki, er tilnefnt af hálfu Dana, ís-
blóm eftir Terje Nordby kemur frá
Noregi, Svalir á krabbameinsdeild
eftir Marianne Goldman frá Sví-
þjóð en Finnar tilnefna leikrit eftir
Paavo Haavikko, Anastasía og ég.
Hagleiksmaöurinn Siguröur
Sveinsson, sem kominn er á
92. aldursár, er á þeirri skoð-
un aö byggingarlag bæja á
19. öld í Dölum hafi verið
sérstætt, þar sem þaksperrur
hafi veriö bognar. Hann hef-
ur gert Iíkan af bernsku-
heimili sínu, Hvolsstöðum í
Dölum, og segir fróöa menn
vera sér sammála um aö þak-
sperrur hafi verib bognar í
Dölum en alls stabar annars
stabar beinar.
„Eg smíðabi líkan af Hvols-
stöðum mér til gamans fyrir
nokkrum árum til ab eiga
minningar um bæinn. Margir
hafa rekið upp stór augu og sagt
að þeir hafi aldrei séð bognar
sperrur í húsum þessa tíma en
eftir að hafa aflab mér upplýs-
inga tel ég að þetta byggingalag
hafi veriö alls staðar í Dölum,
nema á einum bæ, Skörbum."
Sigurður er fæddur 17. októ-
ber árið 1904 og telur heimabæ
sinn hafa verið byggðan rétt
fyrir aldamót. Eftir ab hann
gerði fyrrgreinda uppgötvun
sneri hann sér til Þjóðminja-
safnsins og sendi því bréf auk
nokkurra mynda af líkaninu.
Hann hefur aldrei heyrt neitt
frá þeim. „Ég skil ekki þessa
menn hjá Þjóðminjasafninu.
Þeir hafa ekki ansað mér einu
orbi. Ég er ekkert að eltast við
þá frekar," sagði Sigurður, í
samtali við Tímann í gær.
Hann er nú vistmaöur á dval-
arheimilinu Seljahlíð og eru öll
húsgögn í herbergi hans heima-
smíðub, enda Sigurður sjálf-
menntaður þúsundþjalasmiöur.
Hann starfaði lengstum sem
skrifstofumaöur í Reykjavík en
þar var hann á rangri hillu að
sögn. „Ég hef einu sinni verið
glaöur á ævinni og þab var þeg-
ar ég fór á eftirlaun."
Hann sagðist að lokum engar
skýringar hafa sjálfur á því af
hverju byggingarlag bænda í
Dölum ætti ab vera með öðrum
hætti en annarra landsmanna
en gaman væri að heyra frá les-
endum ef þeir hefðu einhverjar
upplýsingar fram ab færa. -BP
Sagt var...
Hvaba ráp er þetta á tímum
lelftursnöggra bobskipta?
„Ríkisendurskobun sýnir fram á ótrú-
lega ferbagleöi rábuneytismanna.
Ferbakostnabur rábuneytanna árib
1994 nam 211 milljónum króna og
er nánast eingöngu vegna feröalaga
til útlanda. Þetta er næsthæsti kostn-
aöarliöur rábuneytanna á eftir laun-
um. Kostnabur vib utanlandsferöir
nam rúmlega 11 prósentum af heild-
arútgjöldum ráöuneytanna."
Jónas Haraldsson í forystugrein DV
Cóba skemmtun
„Vib vibtölin, sem eru meginuppi-
staba Sæmundar á selnum, bætast
tvær greinar aö þessu sinni. Annars
vegar um hvernig meta eigi rann-
sóknir og hins vegar grein um vib-
kvæmt mál sem lítiö heftir verib til
umræbu innan Háskóla íslands til
þessa, en þaö er kynferöisleg áreitni
innan háskóla almennt og Háskóla Is-
lands sérstaklega. Ég óska þér góbar
skemmtunar. Guöbrandur Árni ís-
berg ritstjóri."
Niburlagsorb úr ávarpi í Tímariti Há-
skóla íslands
Snjóalög í New York
„Fallegasti dagurinn í New York var
þó mánudagurinn síöasti, þegar tveir
fætur af snjó höfbu falliö um nóttina
og fullkomlega lamab „Róm okkar
daga", stíflaö lestargang og kaffært
alla bíla. Lognib sem kom í kjölfar
„The Blizzard of '96" var himneskt
og breytti borginni í „winter won-
derland"; fólkiö gekk um nýruddar
bíllausar göturnar og allt varb eins
og á nítjándu öld. Brjálæbisborgin
varö allt í einu svo undursamlega ró-
leg og allir urbu svo furöulega glabir
og smelltu af sér myndum og gerbu
allt þab sem þeir gátu til ab gleyma
ekki þessum degi á nýbyrjubu ári
þegar tíminn færbist aftur um hundr-
ab ár. Og ég fór ab hugsa hvers
vegna ég kunni svona vel vib mig.
Kannski hefbi ég átt ab fæbast árib
1807? En þá væri ég náttúrlega
dauöur núna. Þannig ab ..."
Hallgrímur H. Helgason, „vikupiltur" í
Alþýbublabinu.
Fráskildlr febur ósáttir vib hlut-
skipti sitt
„Fráskildir febur sem ekki hafa forsjá
barna viröast lenda úti í kuldanum.
Vib skilnaöinn missa þeir samband
vib eiginkonu og börn, og þar meb
oftast tengdafólk, en þeir missa einn-
ig tengsl viö sína eigin fjölskyldu,"
segir Fribrik. Þab komi líka fram ab
þeir eigi oft erfitt meb svefn vegna
kvíöa og þunglyndis. Fráskildir feöur
án forsjár barna séu ósáttastir allra
foreldra vib hlutskipti sitt."
Fri&rik H. Jónsson dósent í sálfræói um
könnun sem geró var á högum fjöl-
skyldunnar hér á landi, í Sæmundi á
selnum.
Athygli vekur í uppbobsauglýsingum
Moggans í gær a& Ríki& lætur bjó&a upp
hjá sjálfu sér, sennilega til a& efla atvinnu
hjá lögmönnum. Þar er þinglesin eign
jar&asjóbs rikisins ab Nebri-Þverá í Þverár-
hreppi auglýst til uppbo&s. Ger&arbeib-
andi er Stofnlánadeild landbúnabarins. Þá
vekur þab athygli að hib vinsæla yfirvald
Húnvetninga til margra ára, Jón ísberg,
sem nú hefur látib af störfum, er í einni
auglýsngunni. Eign hans, Laxholt ÍTorfa-
lækjarhreppi erá uppbo&i 16. janúar
vegna kröfu frá Búnabarbanka og Byggba-
stofnun ...
•
Nú mun talsverbur titringur í fólki á Ríkis-
útvarpinu vegna a&halds og samdráttar og
munu þab ekki síst vera fréttamenn sem
eru farnir ab hnykla brýrnar vegna sparn-
abar. Þannig verba sporslur sem þeir hafa
haft til ab drýgja tekjurnar felldar inn í
mánabarkaupib þannig ab umsjón meb
fréttaaukum eins og „Hér og nú" verbur
ekki greidd sérstaklega. Þá mælist misjafn-
lega fyrir sú hugmynd a& sleppa 11 -frétt-
um til ab spara upp í dekkun á Ólympíu-
leikunum í sumar...
•
í pottinum var samhljóða ákveðið að velja
ummæli Slgurbar Sigurbarssonar
vígslubiskups í sjónvarpsþætti RÚV sem
orb vikunnar. Sigur&ur sagði: „Biskup get-
ur aldrei sagt prest bulla, nema hann sé ab
leibrétta hann í kenningunni." Þjóbin er
sannfærb um a& þetta sé ein af grundvall-
arkennisetningum kirkunnar en í pottinum
þykjast menn hins vegar vita a& þessi gub-
fræ&ikenning hafi verb búin til á stabnum.
Sigurbur fær hiklaust prik fyrir þessa
framsetningu ...
Árni Ibsen.