Tíminn - 13.01.1996, Síða 4

Tíminn - 13.01.1996, Síða 4
4 ffwDtfílMlflnlTnfllllií Laugardagur 13. janúar 1996 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: |ón Kristjánsson Ritstjórnarfulltrúi: Oddur Olafsson Fréttastjóri: Birgir Gu&mundsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 563 1600 Sfmbréf: 55 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmibja hf. Mánabaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 150 kr. m/vsk. Víba pottur brotinn Skattsvik, neðanjarðarhagkerfi og svört atvinnustarfsemi eru nátengd fyrirbæri sem naga undirstöður samfélagsins. Annað slagiö blossa upp umræður um þetta andfélagslega athæfi og nefndar eru ótrúlega háar upphæðir, sem stolið er frá sameig- inlegum sjóðum með þessum hætti. Nýverið efndi Verslunarráð til fundar um skýrslu, sem unn- in var á vegum ráðsins um neðanjarðarstarfsemina. Þar lýsti skattrannsóknarstjóri því yfir að nokkuð hafi áunnist í barátt- unni við skattsvikin, en betur má ef duga skal. Aö venju veröa nokkrar umræöur í fjölmiðlum og manna á meðal, þegar upp- lýsingar um skattsvikin berast. Allir eru afskaplega hissa á ástandinu og hinir ábyrgu í þjóðfélaginu lofa að gera eitthvað í málunum og ræða mikið um að uppræta beri skattsvikin. Svo er látið kyrrt liggja þar til málin komast aftur á dagskrá. En til að allrar sanngirni sé gætt, hefur nokkuð áunnist og embætti skattrannsóknarstjóra herðir tökin á þeim brotlegu. Samt blómstrar neðanjarðarhagkerfið og svikararnir auðgast á kostnað þeirra sem hvorki hafa tækifæri né áhuga á að svindla á samborgurum sínum. Menn greinir á um hve miklu er skotið undan af skattfé, og eru nefndar upphæöir eins og 14 og upp í 20 milljarðar króna árlega. En ekki er til nein áreiðanleg tala um hver sé skaði rík- issjóðs og sveitarsjóða vegna skattsvika. En svo mikið er víst að upphæðin er svimandi há. Samtímis því að upplýsingar berast um að opinberir sjóðir séu sviknir um gríðarlegar upphæöir, er þjóðin mötuð á því upp á hvern dag að verið sé að hagræða og spara í opinberum rekstri. Draga úr þjónustu við almenning á nær öllum sviöum. Samt verður landssjóðurinn rekinn með halla. Heilbrigðisþjónustan og menntamálin eru þjóðinni ofviöa, eins og þau mál hafa verið rekin, og niöurskurður og sam- dráttur á þeim sviðum blasir við. Sveitarfélög eru að leggja fram sínar fjárhagsáætlanir og eru þær ekki allar kræsilegar. Skuldabyrði og tekjutap kallar á sam- drátt og áframhaldandi rekstrarhalla. En það eru fleiri en skattsvikarar sem borga ekki. Þannig mun skorta um 4,5 milljarða í barnsmeðlög og munar um minna. Ríkisendurskoðun finnur gögn sem sýna að Laxárvirkjun skuldar ríkinu stórfé, sem Landsvirkjun hafði á sínum tíma milligöngu um að útvega að tilstuðlan Seðlabankans. Ef trúa má Ríkisendurskoðun, er yfirvinna starfsmanna ráðuneyta 37% af launum þeirra. Hluti yfirvinnunnar er unn- inn í dagvinnu, án þess að aukið vinnuframlag komi til. í nokkrum ráðuneytum eru 60 af hundraöi starfsmanna yfir- menn. I fyrra var upplýst að ærið margir af æðstu mönnum heil- brigbisþjónustunnar þáðu laun fyrir mörg störf samtímis. En reiknað er með að launakostnaður sé um 60% af útgjöldum til heilbrigðismála. í síðasttöldu dæmunum er alls ekki um neitt nebanjarðar- hagkerfi aö ræða eða tekjur hirtar með sviksamlegum hætti. En ljóst má vera að það eru fleiri en þeir, sem stunda svarta at- vinnustarfsemi, sem eru ríki og sveitarfélögum dýrir. 36 milljarðar króna fara ár hvert úr landinu sem afborganir og vextir af lánum, sem er nær þriöjungur niðurstöðutölu fjár- laga. Sé litið yfir sviðib, er augljóst að hagræðing, sparnaður og samdráttur er þjóðarnauðsyn og helst þarf að hækka skattana á þeim sem þá borga, til að mæta útgjaldaþörfinni. Að minnsta kosti ef halda á í horfinu, svo ekki sé meira sagt. Birgir Guömundsson: Kartaflan í lófa guðs í nýrri bók Einars Más Guðmundssonar, „í auga óreiðunnar", eru fjölmörg ljóð eða eitthvað í þá áttina sem aðstoða okkur þjóðmálaumræðu- og fjölmiðlafíklana við að halda geðheilsu í öllu upplýsinga- og skoðanaflóðinu. Ein- ar Már hefur oftsinnis sýnt að hann er sér- lega snjall í aö finna kjarna málsins í fáurn einföldum, en oft smellnum hending- um. Sem gamall „teoríu- gaur" og „díalektíker" úr vinstrihreyfing- unni veit Einar sjálf- sagt manna best hversu auðvelt er að flækja einfalda hluti og gera þá torræða. Hvernig beita megi útúrdúrum og mála- lengingum þannig að kjarni málsins gleym- ist með öllu. Bók Einars hefst raunar á ágætis áminningu um þetta í íjóði sem heitir „Skil- greining": Hvort sem sagan er línurit eða súlurit í auga hagfrceðingsins er heimurinn kartafla í lófa guðs. Seinni hluta þessar- ar viku hefur gengið yfir talsvert mikil rétt- arfarsleg skilgreining- arvertíð, þar sem bæði við hér á Tíman- um sem og aðrir fjölmiðlar hafa farið mikinn við að draga upp í súlurit og línurit ávinning- inn af því fyrir tjáningarfrelsið, lýðræðiö og blaðamennskuna að Hæstiréttur skuli hafa komist að því að blaðamaður Moggans þurfi ekki að gefa upp nafn á heimildarmanni. Hvorki Morgunblaðið né Agnes Bragadóttir eru kjarni málsins að þessu sinni, þó þau taki sig vel út í „súluritum og línuritum" um trúnað fjölmiðla við heim- ildarmenn. Kjarni málsins — „kartafl- an í hendi guðs" — felst í því aö banka- leynd hefur verið rofin með ámælis- verðum og jafnvel refsiverðum hætti. Og það sem meira er, þetta rof verður einhvers staðar í allra efsta stjórnun- arlagi bankans, þannig að aðeins örfáir einstaklingar gætu hafa rofið þessa leynd. Bank- inn sjálfur virðist ófær um að taka á málinu og Banka- eftirlitið vísar því til RLR. Innra eftirlit Landsbankans og Bankaeftirlitsins er einfaldlega ekki trú- verðugra en svo, að það ráði við banka- leyndarleka af þessu tagi. Það væri í sjálfu sér fróðlegt að vita hvaö heföi gerst og hvort innra eftirlit bankans hefði virkað betur, ef ljóst væri að nokkrir óbreyttir starfsmenn af „gólfi" bankans hefðu átt í hlut, en ekki háttsettir „stjórar". Eðli máls- ins samkvæmt ættu stjórnendur banka aö vera þeir sem síst væru líklegir til að grafa undan stofnunum með því að rjúfa bankaleyndina gagnvart viðskiptavinum sínum. domur IDUSTARÉTTAR* $kV“/l uPPt’»nn?d(s'nHgKr’ t höf“"dur að riti, grem [rj \ ríkÍS}TlS£ rTAv- Blaö, \\\ W % % y’. Ekki gefnir upp heimildarmenn Hæstiréttur var sem kunnugt er að ógilda dóm undirréttar, sem taldi að Agnes Bragadótt- ir blaðamaður yrði sem vitni að svara spurning- um ákæruvaldsins um heimildarmenn sína ab grein um síðasta kafla vibskipta ______ Landsbankans og Sambandsins, en augljóst er taliö að banka- leynd hafi verið rofin af ein- hverjum mjög hátt settum * starfsmanni Landsbankans. | Umræðan um þetta mál hefur , upp á síökastið að mestu snúist LlHlðnS um réttindi og skyldur blaöa- ' manna og hvort og hvenær 1*15 þeim beri að virða trúnað við .. . sína heimildarmenn. Af þeim sökum er það kannski eðlilegt að Morgunblað- ið og Agnes, blaðamaðurinn, hafi verið í lykil- hlutverkum umræðunnar. Ekki skal gert lítið úr mikilvægi þeirrar umræðu og þeim réttindum sem staðfest eru með hinum nýja dómi í sjálfu sér. En þó má minna á að ein mikilvægasta ástæðan fyrir niðurstöðu Hæstaréttar er sú að rof bankaleyndarinnar í þessu tiltekna máli hafi ekki haft nægjanlega alvarlegar afleiðingar til að réttlæta þá kröfu að blaðamaðurinn gæfi upp heimildarmann sinn. Hver er kjarni málsins? En máliö snýst þó hreint ekki um blaða- manninn eða störf hans og vinnubrögð. Hvaö meö bankaleynd mína? Stórir kúnnar hljóta að spyrja sig aö því, hvort þeirra trúnaðarsamband við bankann sé líka litib svo léttvægum augum að einhver af stjórnendum bankans telji jafnvel sjálfsagt að deila því með 40-50 þúsund lesendum Morg- unblaðsins. (Að vísu hefur Morgunblaðið lýst því yfir í leiðara í vikunni að það myndi hugsanlega hafa vit fyrir slíkum bankastjórnanda og birta ekki mjög viðkvæmar uppiýs- ingar. í það minnsta er erfitt að skilja fullyrðingu blaðsins um að greinar Agnesar hefðu ekki birst ef SÍS hefði enn verið í rekstri.) Allt þetta mál er því fyrst og síbast vandamál fyrir Lands- ———— bankann og í raun mjög erfitt mál fyrir þennan banka, sem menn gjarnan vilja kalla þjóðbanka. Eftir uppá- komur og útúrdúra síðustu vikna, þar sem um- ræðan og athyglin hefur beinst aö réttindum og skyldum blaðamanna, er ágætt að staldra vib, skilgreina máliö í heild og leggja það niður fyrir sér. Þá koma líka skáldin í góðar þarfir, því það eru þau sem komast stystu leið að kjarna málsins. I dag minna þau mann á, að þó trúnað blaðamanna við heimildarmenn sé hægt að túlka í samanlagðri fjölmiðlaflóru landsins með áhrifamiklum og áberandi hætti í súlurit- um og línuritum, þá er það trúnaður banka við viðskiptamann sinn sem málið snýst um. Einar Már Guðmundsson hefur nefnilega rétt fyrir sér: heimurinn er kartafla í lófa guðs.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.