Tíminn - 11.05.1996, Side 13

Tíminn - 11.05.1996, Side 13
Laugardagur 11. maí 1996 13 vera í myndinni. En kemur til greina að hætta baráttunni í ljósi afar slæmra talna í skoðanakönnunum? „Nei, sú hugsun læðist ekki að okkur, sem erum í öðru sæt- inu. Skoðanakannanir eru ekki heilagur sannleikur, bara vís- bending um daginn í dag, en auðvitað mjög sterk vísbend- ing. En það hvarflar ekki að okkur að hætta baráttunni. Það er margt í pokahorninu og ým- islegt, sem sáð hefur verið, á eftir að skila mikilli uppskeru," sagði Þórunn Sigurðardóttir. Áfall ab sjá 0,0% í skoðanakönnun Fyrsta heilsíðuauglýsing Guð- mundar Rafns Geirdals birtist í vikunni, í Helgarpóstinum. Fylgi Guðmundar Rafns sam- kvæmt skoðanakönnunum er enn sem komið er rétt við frost- markið, nánast ekkert. En fylgi hinna er heldur ekki mikið. „Aðaleinbeitingin er að reyna að afla meðmælenda. Það eru komnir á bilinu 100 til 200 manns á lista. En nú eru með mér sjö manns að safna, fyrst var ég einn í þessu. Með þeim hraða, sem núna er, ætti það að hafast að ná 1.500 manns sem meðmælendur, en það má ekk- ert bregðast", sagði Guðmund- ur Rafn. „Það er náttúrlega áfall að sjá 0,0% fylgi í skoðanakönnun eins og hjá Gallup. Þau, sem eru aö safna fyrir mig, eru ekk- ert sátt við að hætta í miðju kafi. Núna látum við berast með straumnum og sjáum til hvort tekst að afla meðmæl- enda. Takist það ekki, þá er sjálfhætt, og ég bara þakka fyrir mig. Ef það tekst, þá er ég orð- inn forsetaefni. Þá get ég ímyndað mér að fylgið snar- aukist, vegna þess að þá sér fólk að þetta er ekki furðuframboð, heldur full alvara," sagði Guð- mundur Rafn. Hann segist hafa mörg járn í eldinum varðandi kynningu á sér. Guðmundur Rafn hefur fengið þónokkra kynningu í fjölmiðlum að undanförnu. Þessa stundina vinnur hann 6- 7 tíma við Nuddskóla sinn, en þar eru próf framundan. í 5-6 tíma starfar hann við fram- boðsmál. Friöarsinni í framboð Fari Jón Baldvin fram, eru frambjóðendur orðnir 6 talsins. Enn er von á einum. Ástþór Magnússon, friðarsinninn sem vill Virkja Bessastaði, er tilbú- inn að „dúsa á Bessastöðum", finnist ekki betri maður til starfans. Öll hans aðgerð og tugmilljóna fjárútlát miða vart að öðru en að reyna að hreppa forsetaembættiö. Nema einhver bendi honum á, að allt hans ómak er til lítils. „Landslagib'7 kann aö breytast Fari Jón Baldvin fram, sem flest bendir til, má búast við miklum breytingum á fylgi í skoðanakönnunum. Menn pæla djúpt. Sagan segir að framsóknarmenn á landsbyggð- inni horfi í meira mæli á Pétur Kr. Hafstein sem góban kost, fremur en hinn gamla flokksfé- laga sinn Ólaf Ragnar. Margir telja að Pétur muni styrkja sig verulega í sessi í næstu skoð- anakönnun. Guðrúnarnar tvær eru sagðar sitja eftir í vinsældakapphlaup- inu, alltjent um sinn. Þó er aldrei að vita hvað gerist á næstu vikum. Athugulir blaða- lesendur hafa bent á að þrír í hópi helstu stuöningsmanna Guðrúnar Pétursdóttur hafi birst með henni á blaðamynd þegar hún lýsti yfir framboði sínu. Þeir séu allir í reynd ákafir Jóns Baldvins-sinnar, þau Jón Bragi Bjarnason, prófessor og vinur Jóns, Þóra Árnórsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands ungra jafnaðarmanna, og Ás- laug Ragnars blaðamaður. Framboð Jóns Baldvins þýddi að hann verður kominn í keppni við mágkonu sína, Guð- rúnu Pétursdóttur, en sambýlis- maður hennar er Ólafur Hanni- balsson, blaðamaður og áður bóndi í Selárdal. Framboð Jóns yrði því fjölskyldu„vanda"mál á Vesturgötunni og víðar. Varfærnlsleg skrif um frambjóöendur Forsetaframboð er komið á hálfan skrið. Frambjóðendur hafa opnað kosningaskrifstofur, sem þeir velja allir að kalla kosningamiðstöðvar, sem er virðulegra nafn. Þar starfa kosningastjórar ásamt sjálf- boðaliðum. Auglýsingar birtast í Mogganum og berast inn á 6 af hverjum 10 heimilum lands- manna, allt frá litlum eindálk- um Guðmundar Rafns Geirdals og upp í litfagrar heilsíður hinna frambjóðendanna. And- lit frambjóðendanna eru orðin næstum eins þekkt og starfsfólk Shell-stöðvanna, sem er að öðl- ast þjóðfrægð vegna auglýsinga félagsins. Blaðagreinar um frambjóð- endur og framboðið eru enn sem komið er varfærnislegar. Þar skrifa mest gallharðir stuðningsmenn og textinn afar klisjukenndar tuggur. Undan- tekning er „afhjúpun" frúar einnar, sem benti á að Ólafur Ragnar hefði farið inn í sovéska sendiráðið, hún hefði séð þab sjálf í baksýnisspegli bíls síns. í gær var þó komið bréf frá ís- lendingi á Flórída, sem heimtar Jón Baldvin í forsetann, og Ól- afur Ragnar þá í leiðinni sakað- ur um tækifærismennsku og lýðskrum. í sama bréfadálki, sem helgaður er forsetakjöri, skrifar Friðrik Þór Guðmunds- son, hinn hugaði blaðamaður Víkurblaðsins, málgagns Al- þýðubandalagsins. Hann skrifar frá heimili sínu við Miðstræti og er ekki að leggja fyrrum flokksformanni sínum lið. Öðru nær. Hann biður lands- menn að kjósa Guðrúnu Pét- ursdóttur. Búast má vib hör- kunni sex þegar á líður í les- endadálkum blaða. Sú hefur alltjent verið raunin. Ferbalög frambjóðenda út um landsbyggðina eru hafin, og frambjóðendur á þönum á vinnustaðafundum og fundum félaga. Þeim er vel tekið, en ekki á vísan að róa, þótt mót- tökur séu elskulegar. Þá eru margir á ferbinni með með- mælendalista fyrir sína fram- bjóðendur og mun aflinn dá- góður hjá flestum. ■ Ein með öliu FYRIR FYRIRTÆKIÐ OG HEIMILIÐ HUSIÐ & GARÐINN Mjög auðveld og þægileg í notkun Ekkert rispar lakkið meira á bílnum en drullugir og tjaraðir þvottakústar. KEW KEW X-tra er mjög öflug og einstaklega þægilega útbúin háþrústidæla með öllum búnaði og fylgihlutum til þrifa utanhúss. REKSTRARVÖRUR Réttarhálsi 2, 110 Reykjavík Sími 587 5554, Fax 587 7116

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.