Tíminn - 25.05.1996, Side 10
10
Laugardagur 25. maí 1996
Haavrðingaþáttur
í handritaþætti Ómars Ragnarssonar í sjónvarpinu, sem
sýndur var í tilefni þess að 25 ár voru liðin frá komu
handritanna, kom skilmerkilega fram sú skoðun að
endurheimt handritanna hafi verið einkaverk Gylfa Þ.
Gíslasonar. Um það yrkir Gestur í Vík:
Vor sögulega handritsheimt
var hetjuverk og engum gleymt.
Sú dáð, sem þama dugði til,
var doktors Gylfa sólóspil.
Og Gestur í Vík hefur lýst þeirri skoðun við þáttinn að
Ómar hafi í fyrrnefndum þætti flutt hjartnæmt lof um
aldalöng dönsk yfirráð á íslandi, ekki síst ágæti dönsku
einvaldskonunganna, sem háðu drengilega baráttu fyr-
ir réttindum íslensks almúga gegn kúgun innlends
höfðingjavalds! Var því líkast sem þar talaði sjálfur Gísli
Gunnarsson gegnum talfæri Ómars Ragnarssonar. Af
því tilefni orti Gestur í Vík:
Á góðu þykir varla von,
verða margir hnökrar á,
þegar Gísli Gunnarsson
gegnum Ómar segir frá.
„Strandaglópur" sendi þættinum línu og sagði að í
þætti í vetur hefðu verið stökur eftir Pétur Stefánsson
þar sem hann taldi upp nokkra af þeim sem hafa látið
til sín heyra hér í þættinum. Og þótt Pétur hafi metið
Búa mest, eggjaði hann minni spámenn til dáða og seg-
ist Strandaglópur vilja taka undir þau orð:
Þótt Búi kœti bragna gerð
með Bragalistir slyngar,
zkaðar ekki að mauli með
miðlungs hagyrðingar.
eða:
Þótt Búi ausi úr orðasjóð
og iðki listir slyngar,
dugir ekki að missi móð
miðlungs hagyrðingar.
Og síðan fær Framsóknarflokkurinn tiltal frá Stranda-
glópnum, sem ekki er alls kostar ánægður með hvernig
þetta stjórnarsamstarf hefur þróast:
Ekki get ég unað því,
og upphef kröftugt múður,
að Framsókn er að flœkjast í
frjálshyggjunnar klúður.
Og Búi sendir þættinum skammt að þessu sinni. Fyrsta
vísan kemur í framhaldi af því að eftir kosningarnar í
ísafjarðarbæ bárust fréttir af athyglisverðri neðanjarðar-
starfsemi í nýju göngunum þar sem samstarfssáttmáli
var undirritaður:
Æðstu prestar ísafjarðar
iðka göfug skylduverk
nú um stundir neðanjarðar,
nýjung sú er frœg og merk.
Búi yrkir um allt milli himins og jarðar og þessa kallar
hann einfaldlega „í gamla daga":
Húskarlitm hafði þann ósið
á haustin að blása á Ijósið.
í myrkri var duflað,
daðrað og gmflað,
er Möngu hann fyigdi í fjósið.
Og þessa kallar hann „Nú er gaman":
íslensk þjóð er œrslagjöm og œtlar bráðum
að flytja snjallan, fólks úr röðum,
forseta að Bessastöðum.
Botnar og vísur sendist til Tímans
Brautarholti 1
105 Reykjavík P.s. SKRIFIÐ GREINILEGA
Allir skyldu verja andlitib fyrir sólinni eins og unnt er:
Kossar sólarinnar oft
alltof heitir fyrir hvíta
húð
„Blessuð sólin elskar allt, allt með kossi vekur,"
segir í upphafi kvæbis sem allir sólarhungraðir
íslendingar læra. Á undanförnum árum hefur
verið að koma betur og betur í ljós að kossar
sólarinnar geta orðið allt of heitir og í versta
falli banvænir, ekki síst fyrir hina bleiku íbúa
norðurslóba. Fólki, sem gegnum árin hefur
baðað sig í sólskini í þeirri góðu trú að með því
bæti það bæði heilsu sína og útlit, er nú sagt að
sólin sé mesti óvinur húöarinnar. Ekki aðeins
geri hún húðina hrukkótta og skorpna fyrir
aldur fram, heldur fjölgi þeim ógnvænlega sem
fái húðkrabbamein.
Eina þeirra ótal kvenna, sem hlupu út í garð-
inn sinn til að njóta fyrstu „sumarhelgarinnar"
þetta árið og uggði ekki að sér fyrr en hana var
fariö að hita í kinnarnar, langabi að fá nokkrar
ráðleggingar frá Heiðari um hvernig hún ætti
að verja húð sína fyrir ofurkossum sólarinnar
næstu mánuðina. Hvort það sé t.d. sæmileg
vörn í þeirri sólarvörn (UVA) sem gjarnan er
getið um á ýmsum snyrtivörum, en án þess að
nokkuð sé sagt um styrkleikann. Og hvernig
hægt sé að komast hjá því að andlitið verði allt
glansandi af fitu í sólarhita?
Andlit og hendur þessarar öldrubu konu gœtu bent
til ab sólin hafi kysst hana of heitt og of oft, enda
sólargeislarnir fremur taldir hollir en hœttulegir í
hennar ungdœmi.
Sólarvörn nú í
flestum dagkrem-
um
Heiðar: Það eiga allir að
verja andlitið eins og hægt er
fyrir sól. Það er allt í lagi að fá
á sig svolítinn lit, en fólk þarf
að varast að brenna.
En í dag er sólarvörn í öllum
dagkremum og öllum „meik-
um", þ.e.a.s. í öllum vibur-
kenndum snyrtivörumerkjum.
Þannig að kona, sem er með
ný krem og farða í andlitinu,
hún er með sólarvörn, en fær
samt svolítinn lit í gegn. Öll
ný púður eru einnig meb sól-
arvörn. Kona, sem er með
andlitsfarða, er því varin fyrir
sólinni, bæði af kreminu sem
er undir og af farðanum.
Styrkleiki þessarar sólarvarn-
ar er misjafn eftir tegundum.
Þegar um venjulegt krem er að
ræða, en ekki beinlínis sólar-
hrem, þá erum við ab tala um
sólarvörn á bilinu 2-4, nema
Þau mistök, sem algengast er
ab fólk geri og skaba húb þeirra,
eru: sólböb án góbrar sólar-
varnar, „ofhreinsun" sem of-
þurrkar húbina og ab kreista
bólur og fílapensla, er haft eftir
dr. Nicholas Lowe, prófessor í
húbsjúkdómafrœbi, í blabinu
Hello!
Foreldrar cettu ab gera börnum sínum þann stóra greiba ab verja húb
þeirra fyrir ofsterkum sólargeislum meban þau eru of ung til ab gæta
sín sjálf.
annað sé tekið fram. Sum ný
krem, sem eru bara dagkrem,
fara þó alla leiö upp í 15, en þá
er það tekið sérstaklega fram á
umbúöunum.
Þannig að ég mundi segja að
kona, sem er utan dyra en ekki
beinlínis í sólbaði, væri nægi-
lega varin í íslenskri sól með
venjulegt dagkrem. En ætli hún
að vera úti allan daginn og líta
mikið til sólar, þá mundi ég
ráðleggja henni að svissa yfir í
andlitssólarkrem með þá meiri
vörn.
Áfram með
púbrið
Fari kona hins vegar í sólbað
og sé með hreina húð, þá þarf
hún miklu hærri vörn á andlit
og axlirnar kannski líka, a.m.k.
til að byrja með. Kona, sem t.d.
er óvön að fara topplaus í sól-
bað, hún þarf sömu sólarvörn á
andlitið og hún þarf í kringum
geirvörturnar.
Helsta ráðið til að losna við
að glansa í framan er ab vera
duglegur meb púðrið. Það eru
líka komnar á markaðinn —
t.d. frá japanska snyrtivörufyr-
irtækinu Kanebo — litlar
pakkningar af þerriservíettum
sem drekka í sig húðfitu, eins
konar þerripappír.
Kona, sem ætlar að vera mál-
uð úti í sól, þarf fyrst og fremst
að gæta þess að vera ekki með
andlitið allt of kremað og púðra
sig vel.
Heiðar
jónsson,
snyrtir,
svarar
spurningum
lesenda
Hvernig
áég að
vera?