Tíminn - 25.05.1996, Page 11

Tíminn - 25.05.1996, Page 11
Laugardagur 25. maí 1996 11 Abraham Lincoln lét fyrir öllu ööru ganga aö koma í veg fyrir aö Suöur- ríkjunum tœkist aö slíta sig frá Banda- ríkjunum. Hann var örlagatrúar og átti fremur auövelt meö aö létta afsér þungri ábyrgö meö því aö varpa henni á Cuö og/eöa ör- lögin. Abraham Lincoln (f. 1809, Banda- ríkjaforseti frá 1861 til dauöadags 1865) hefur oröið aö einskonar þjóðardýrlingi hjá Bandarí k j amönnum, a.m.k. öörum en hvítum Suðurríkjamönnum. í augum þeirra var hann lengi fyrst og fremst harðstjóri sem braut þá undir alríkisvaldiö meö báli og brandi. Þjóðardýrlingsímyndina á Lincoln einkum því aö þakka aö undir hans forystu afnam Bandaríkjastjórn þrælahald þarlendis og vann bandaríska borgarastríðiö (1861-65). Meö þeim sigri var komið í veg fyr- ir að Bandaríkin klofnuöu í tvö ríki. Verulegan þátt í þjóð- ardýrlingsímynd „fööur Abra- hams" átti og píslarvotts- ímynd, sem myndaðist um hann vegna þess að hann var myrtur. Átök um vestursvæði Bandaríkjaforseta þennan hefur undanfarið borið nokk- uð á góma í blöðum, vegna nýútkominnar bókar um hann, eftir þarlendan sagn- fræðing, David Herbert Don- ald. Er því riti mjög hrósað og jafnvel kallað besta bókin um Lincoln til þessa. í þessari grein er höfð hliðsjón af þeim skrifum og öðrum um „Old Abe." Lincoln var frá Kentucky og ól meirihluta aldurs síns í vesturríkjunum eða jafnvel vestan hinna eiginlegu Bandaríkja eins og þau voru þá, í Kentucky, Indiana, 111- inois. Hann var af fátæku fólki, en vann sig upp og varö sterkefnaður málaflutnings- maður. Hann var hrjúfur (og raunar forljótur) í augum austurfylkjamanna, laginn við að laða að sér óbrotið fólk, forðaðist málskrúð í ræðu- mennsku sem þá var vani með stjórnmálamönnum. Hann átti það til að taka af- stöðu með verkamönnum í kjarabaráttu, stighækkandi skattar eftir efnahag voru í hans augum eðlilegir en hann haföi litlar áhyggjur af vax- andi misskiptingu auðs; taldi að hver og einn gæti unnið sig upp ef hann legði nógu hart að sér. Bandaríkin þönd- ust þá hratt út í vestur á menn yröu áfram í Bandaríkj- unum. Framan af forsetatíð sinni var hann á því að best væri að bandarískir blökku- menn fljdtu til einhvers heit- ara lands, t.d. Líberíu (sem hafði verið stofnuð einmitt í þeim tilgangi). Hann var og á móti hjónaböndum hvítra og svartra og almennum kosn- ingarétti fyrir blökkumenn. Suðurríkjamenn héldu eigi að síður að Lincoln væri rót- tækur þrælahaldsandstæðing- ur. Vera kann að hann hafi í þeirra augum verið fulltrúi róttækra þrælahaldsandstæð- inga á vesturmarkasvæðun- um og þar að auki var hann kosinn forseti sem frambjóð- andi repúblíkana, sem þá voru svo til eingöngu norður- ríkjaflokkur. Með kosningu Lincolns varð með sunnan- mönnum ofan á sú skoðun að þeir ættu ekki annars kost en að segja sig úr Bandaríkjun- um. Mikill hiti var þá hlaup- inn í deilurnar út af þræla- haldinu, m.a. vegna keppn- innar um vestursvæðin. I því sambandi skipti og talsverðu skelfing sem greip um sig í Suðurríkjunum 1859 út af at- höfnum Johns Brown, hálf- ruglaðs trúarofstækis- og hryðjuverkamanns sem var ákafur þrælahaldsandstæð- ingur. Brown varð þjóðhetja („his soul goes marching on") af því að „hans menn" unnu borgarastríðiö. Frelsunaryfirlýsingin og herferö Shermans Að sögn Donalds var Linc- oln örlagatrúar og tengdi ör- lögin Guði. Virðist hann hafa litið svo á aö allt sem gerðist væri forákvarðað. Má því vera að honum hafi veist frekar létt að halda hugarró með því að kasta af sér ábyrgðinni á stríðinu og hryllingnum, sem því var samfara, á örlögin/ Guð. Sú ráðstöfun, sem Lincoln hefur hvað mest verið rómað- ur fyrir, var yfirlýsing hans birt í september 1862, þess efnis að frá næstu áramótum skyldu allir þrælar á yfirráða- svæði Suðurríkjanna teljast frjálsir. Á bak við það kann að hafa legið sú hernaðarlega nauðsyn að fá sem flesta blökkumenn í bandaríska stjórnarherinn (Norðurríkja- herinn). Sumarið 1862 sagði Lincoln: „Við verðum víst að frelsa þrælana, annars verð- um við yfirbugaðir." Önnur ástæða kann að hafa verið að Lincoln hafi talið nauðsyn- legt að stæla stríðsþreytta Norðurríkjamenn með hug- sjónaeldmóði. En I Suðurríkj- unum og einnig í Bretlandi var litið á frelsunaryfirlýsing- una sem tilraun til að koma af stað þrælauppreisn með fjöldamorðum á varnarlausu hvítu fólki. Ýmsir sagnfræð- ingar telja og að Lincoln hafi með þessu verið að eggja þrælana til uppreisnar, með það fyrir augum að lama Suð- urríkin innan frá. í sveitunum þar var þá fátt eftir hvíts fólks annars en kvenna, barna og gamalla manna. Varla telst vafamál að her- ferð Williams Tecumseh Shermans hershöfðingja gegnum Georgíu og Suður- Karólínu 1864-65, sem Linc- oln mun hafa hvatt til, hafi verið farin fremur gegn óbreyttum borgurum þar en beinlínis her Suðurríkjanna. í þeim leiðangri eyddi Norður- ríkjaher byggðina, hvar sem hann náði til, og olli hungurs- neyð og gífurlegum hörm- ungum. ■ Faðir Abraham kostnað indíánaættbálka. Norðurríkjamenn vildu að „nýju" svæðin yrðu þræla- laus, Suðurríkjamenn vildu innleiða þar þrælahald. Hér rákust á efnahagslegir og pól- itískir hagsmunir Norður- og Suðurríkja. í Norðurríkjunum var iðnbylting á fullri ferð og þau efldust óðum efnahags- lega í hlutfalli við Suðurríkin. Þangað náði iðnvæðingin lítt og þar óttuðust menn að óð- um myndi draga úr áhrifum þeirra innan Bandaríkjanna. Gert var ráð fyrir að nýju ríkin í vestri yrðu Suður- eða Norð- urríkjamegin i stjórnmálum, eftir því hvort þrælahald yrði leyft þar eða ekki. Átök Norð- urs og Suðurs um „nýju" vest- ursvæðin urðu hörð. Það var BAKSVIÐ DAGUR ÞORLEIFSSON einkum á grundvelli and- stöðu við útbreiðslu þræla- halds í vestur sem repúblík- anaflokkurinn var stofnaður (1854). Demókrataflokkur- inn, sem er eldri, var sterkast- ur í Suðurríkjunum. Vildi a& blökkumenn færu Sem andstæðingur þræla- halds var Lincoln „hægfara", vildi lengi vel umbera það í þáverandi þrælahaldsríkjum en banna útbreiðslu þess út fyrir þau. Hann taldi að það dygði til þess að þrælahaldið hyrfi af sjálfu sér, þar eb það væri efnahagslega óhag- kvæmt (ræktarjörð ofboðið, of vinnuaflsfrekt). En hann var eindreginn sambands- sinni og stuðlaði meira að sterkri miðstjórn en nokkur af fyrirrennurum hans á forseta- stóli. Aðalmarkmið hans sem forseta virðist hafa verið að koma í veg fyrir að Suðurríkj- unum tækist að slíta sig frá Bandaríkjunum. Hættu þau við það, var hann tilbúinn aö koma til móts við þau með því að fresta afnámi þræla- halds. Lincoln efáðist, líkt og t.d. Thomas Jefferson, um að ákjósanlegt væri að blökku-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.