Tíminn - 25.05.1996, Síða 16
16
Laugardagur 25. maí 1996
JONA RUNA á mannlegum nótum:
Pukur
Mörg okkar hafa uppgötvað sér
til undrunar og vonbrigða að
aðrir hafa verið að bralla og
hvískra í kringum okkur, jafn-
vel á lymskulegan og óviðfelld-
inn hátt. Viðlíka reynsla er
ómakleg vegna þess að við get-
um vissulega orðið fyrir óþæg-
indum og skaða af völdum
leynibruggs og laumuspils. Sér-
staklega þó ef verið er að pukr-
ast og paufast með það sem
okkur viðkemur, vanhugsað og
neikvætt, án ábyrgðar og vel-
vilja.
Hvers kyns baktjaldamakk er í
raun ranglátt og óviðfelldið.
Við sem erum opinská og heið-
arleg, kærum okkur ekki um að
taka þátt í laumuspili varðandi
menn og málefni. Við viljum
ganga hreint til verks varðandi
flest mál og forðumst því alla-
jafna pukur og pauf. Það er
þreytandi að þurfa að varast
fólk vegna þess að það er lúmskt
og óheilt.
Þegar um grundvallarsam-
skipti er að ræða, sem varða t.d.
samneyti okkar við okkar nán-
ustu, er nauðsynlegt að við sé-
um hreinskiptin og heiðarleg.
Það er ekkert sem réttlætir það
að við séum að ástunda van-
hugsaö laumuleiki í samskipt-
um. Það er staðreynd að ef okk-
ur skortir heiðarleika og hrein-
skilni, völdum við hvert öðru
leiðindum og tjóni.
Best er, ef okkur skortir þrek
til þess að segja satt og rétt frá
ákveðnum staðreyndum, að við
minnum okkur á að það er al-
varlegt og varhugavert að við-
hafa leynd og pukur þar sem
færi betur á því að segja satt og
rétt frá málavöxtum. Afleiðing-
ar lymsku og laumuháttar eru
slæmar og það er því ákjósan-
legt að við hlífum hvert öðru
við slíku samskiptaatferli.
Við sem höfum fundið fyrir
vanlíðan og ótta, vegna þess að
við höfum valið að leyna okkar
nánustu ýmsu varðandi líf okk-
ar og tilveru, höfum oftast
áhyggjur af því að upp um okk-
ur komist og öðrum verði ljóst
hvernig hugsunum okkar og
framkvæmdum er fyrirkomið.
Ágætt er að við minnum okkur
á þá staðreynd að við höfum
ekki þörf fyrir að pukrast og
laumast með raunveruleikann,
ef við erum ábyrg og hreinskil-
in.
Vissulega er ekkert að því að
við eigum okkar leyndarmál, en
ef viö erum óhreinlynd og fölsk
vegna þeirra, þá er mál að linni.
Lymska í öllum myndum er
neilæg og óviturleg. Hyggilegast
er að við séum einlæg og opin
hvert við annað og séum ekki
að róa gegn hvert öðru á bak við
tjöldin. Við eigum ekki að
vinna gegn velferð okkar sjálfra
og annarra með baktjaldamakki
og óheilindum.
Við sem höfum ekkert að fela
og veljum að tjá okkur hindrun-
arlaust um hlutina án vafning-
sviöja leyndar og pukurs, styrkj-
um tiltrú annarra á manngildi
okkar og sjónarmið. Við vekjum
traust og virðingu annarra,
enda veljum við að vera hrein-
skilin og sannorö. Þetta gerum
við af því að við metum gildi
heiðarlegra og afdráttarlausra
samskipta. Við kærum okkur
ekki um að taka þátt í því niður-
rifi og neikvæði sem liggur í
laumuviðhorfum og lymsku.
Viö metum drenglyndi og
hreinskilni meira en pukur og
óheilindi. ■
m
ÍMWSWf KROSSGÁTAN NR. 21
C
LANDSVIRKJUN
ÚTBOÐ
Þéttavirki
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í 220 kV og 132 kV
þéttavirki í samræmi við útboðsgögn SAN-01.
Verkið felst í framleiðslu, prófun, flutningi, uppsetningu og
gangsetningu á 30 MVAr raðþétti fyrir Búrfellslínu 3B/2, 100
MVAr samsíðaþétti í 4 þrepum fyrir aðveitustöðina á Geithálsi
og 35 MVAr samsíðaþétti fyrir aðveitustöðina í Hamranesi.
Útboðsgögn veröa afhent á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitis-
braut 68, 103 Reykjavík, frá og meö miðvikudeginum 29. maí
1996 gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 10.000 m.VSK
fyrir hvert eintak. Tilboðum skal skila á sama stað, fyrir kl.
12.00 föstudaginn 19. júlí 1996.
Tilboöin verða opnuö í stjórnstöö Landsvirkjunar að Bústaöa-
vegi 7, Reykjavík, sama dag, 19. júlí, kl. 14.00. Fulltrúum bjóð-
enda er heimilt ab vera viðstaddir opnunina.
LAUSN Á GÁTU NR. 20
KV£RK VEiK V / 0 > FLOKNI L£ir fí EKKI DÝAKA V DUfL LAHD F 0 c kWDUM HSlori A fA
1 5 7 h / ol K —> T / L TÍf- h 7 N TÖf
ik j; R '0 0 SlÍLO TAHGA tU £ i BE-ST fti'ÓG, % <x Æ2 T fí s T
Tr /íT R 1 K K SiF u £ -0 U G MLGNA G E T
' j \i KvAA 1 VMiHC SKAGA
sAlo 1 FÁTAK TPé "0 K h Flftl ELb- ST/tQ\ L £ 1 K H / «ASKI ÍRÚSAR Nl /) H G 1 v//
'S 7 fí STLINS flSKAR ‘u ? A Lk 5 SL'iPa HESTA V !\ N í) A STAKuR ÍLMtuH £ 1 N N
11 s K R n R TALA ÓKug s ó "V OutóS ÆTT K u R f 5 H'AftS- ÚRi'-irJ K RÖ00
> X. K A íiRl AO R l f HAKArí SHPAb (A L K Pf N SKDRuR TAUTA fL 1 F U R
ÍÁÁfTA ioPiR &AC.A ip u Rs T 6AUP ÖCilLTU K 0 L L R/ÍKT- MJ, hiö ITuR y L K T 1 klÓTA GRLHJA f H fí
’H "0 K F I R UTTIF ftiHO SKlÁLfA L 7 K f\ rf R'IK F)fL A u 6 U g? MlA'A u
,'fí t G'KEirl A t- 1 H FA0ST- iKEftftO 'ATT K A L A&bc 1 HÓTA A fi u R ftBrtb - ULL SPiAlA 'R s
sALÚ' HlUlúrf T » r enNOlN KVÆfllS F o 0 s T DOLLA VEHJU f '0 5 'OTTI PEGAR fl H 0* 1 S T
’K U L EVKTA- AIAAK ftiririi ‘0 T T fír Itfrt- SlthLI GiLTU £ 1 & N £ i EIRA P'lPA u K fí SKÓU
"o M ro 0 U R —> $ 1 K H F R MlKLuft £ L H U A)
S K h £ s UM- HiGGJA A L u Ð RiK- KoRtJ F R ÓSLAOl '0 ð skel A & fi