Tíminn - 01.06.1996, Blaðsíða 5

Tíminn - 01.06.1996, Blaðsíða 5
Laugardagur 1. júní 1996 Frá eldhúsdagsumrœbum á Alþingi í vikunni. Tímamynd: cs Jón Kristjánsson: Þegar hinum löngu ræöum lýkur Nú í vikunni voru eldhúsdagsumræður frá Alþingi. Þetta er ein af þeim hefð- um sem gilda í starfi þingsins, að al- mennar stjórnmálaumræður séu í lok- in. Nú er þjóðinni það að vísu ekki eins mikið nýnæmi, að sjá framan í andlit- ið á þingmönnum þar sem sjónvarpað er frá þingfundum alla daga. Hins veg- ar voru þessar umræður með nýju sniði. Ræðutími var styttur, einn full- trúi flokks talaði í hverri umferð sem voru þrjár. Umræðurnar stóðu í tvo tíma. Þetta fyrirkomulag er til mikilla bóta og þokaði hinu staðnaða formi í átt til meira lífs. Efni gagnrýninnar Ræður stjórnarandstæðinga vi þessa umræðu voru efnislega framlenging á hinum löngu ræðum þeirra að undan- förnum en efnið hafði verið skorið nið- ur í knappara form. Það má draga efn- isþættina saman í nokkrum atriðum. í fyrsta lagi að ríkisstjórnarflokkarn- ir leggi sig fram um að níðast á þeim sem minna mega sín í þjóðfélaginu, öldruðum, sjúkum, fötluðum og lág- launafólki. í öðru lagi að Framsóknar- menn hafi svikið öll sín kosningalof- orð. í þriðja lagi, að verið sé að ganga erinda auðmanna og fjármagnseig- enda í þjóðfélaginu meðal annars með einkavæðingu. í fjórða lagi sé verið að níðast á hreyfingum launafólks í lan- indu. í fimmta lagi sé ekkert samráð um framgang mála við aðila út í þjóð- félaginu og í sjötta lagi sé þetta ríkis- stjórn helmingaskipta og kyrrstöðu. Margt fleira hefur flotið með en rétt er að víkja nokkuð að þeim staðhæfing- um sem að ofan greinir. Kosningatoforð Framsóknarflokksins Framsóknarflokkurinn gekk til kosn- inga undir kjörorðinu „Fólk í fyrir- rúmi". Þetta byggðist á þeim grunni að skapa skilyrði fyrir atvinnuuppbygg- ingu, fjölgun starfa og bættri afkomu fyrirtækja sem skapaði grunn fyrir vel- ferð og öryggi í landinu. Af málflutn- ingi stjórnarandstöðunnar mætti ætla að þetta kjörorð yrði best uppfyllt meö því að auka hallann á ríkissjóði. Það hefur margoft verið rakið, meðal ann- ars á þessum vettvangi að slíkt er hás- kaleikur sem leiðir til versnandi lífs- kjara og stefnnir velferðarkerfinu í stórhættu. Það aðhald sem verið hefur, er þáttur í því að styrkja grundvöll vel- ferðarinnar, þvert á móti því sem hald- iö er fram. Það er engin ástæða fyrir okkur framsóknarmenn til annars en bera höfuðið hátt eftir eins árs aðild að rík- isstjórn. Við höfum einbeitt okkur á þessum tíma að því að koma rekstri rík- issjóðs í jafnvægi, og koma í veg fyrir sjálf- virka útgjaldaaukn- ingu frá ári til árs. Jafnframt hefur verið unnið að mörgum stefnumálum, sem sett voru fram í kosninga- baráttunni meðal ann- ars lagasetningu í fé- lagsmálaráðuneytinu sem auðveldar að taka á skuldamálum einstaklinganna í landinu. Flokkurinn hefur verið í eldlínunni þetta tímabil og forustumenn hans hafa tekið á sig erfið verkefni í landsmálum og stjórn- arandstaðan hefur kosið að beina spjótum sínum að Framsóknarflokkn- um fremur en Sjálfstæðisflokknum. Við þessu er ekkert að segja. Það skiptir mestu máli fyrir forustumenn stjórn- málaflokka að hafa trú á því sem þeir eru að gera og spyrja síðan að leikslok- um. Fjármagnstekjuskattur Nú hafa staðið yfir um nokkurt skeið umræður á Alþingi um fjármagnstekju- skatt. Þetta mál er búið að vera til um- ræðu um árabil og allir stjórnarand- stöðuflokkarnir að minnsta kosti hafa lýst sig fylgjandi slíkri skattlagningu. Skoðanir eru einna skiptastar í Sjálf- stæðisflokknum um þessi mál. Fíins vegar er frumvarpið byggt á starfi nefndar sem skipuð var á mjög breið- um grundvelli með aðild allra stjórn- málaflokka og launþegasamtakanna í landinu. Megineinkenni frumvarpsins er að skattlagningin er einföld og felur í sér samræmingu á skattlagningu fjár- magnstekna, þar með arðs og sölu- hagnaðar. Það er þetta atriði sem stjórnarandstaðan byggir á flótta sinn frá málinu. Dregin er upp einföld mynd af því að þaö sé verið að hygla stóreignamönnum. Frumvarpið um fjármagnstekju- skattinn gerir ráð fyrir tiltölulega lágri skattlagningu og að mati sérfróðra manna ætti það ekki að hafa veruleg áhrif á vexti eða stuðla að fjármagns- flótta úr landi. Þetta eru tvö grundvall- aratriði sem verður að hafa í huga þeg- ar þessi mál eru rædd. íslenskt atvinnulíf vantar áhættufjár- magn og það standa ekki rök til að skatt- leggja það með öðrum hætti en innnistæður í bönkum. Hins vegar hefur verið ákveðið í meðförum þingsins að skattleggja með hefð- bundnum hætti söluhagnað yfir 3 milljónir hjá einstaklingum og 6 millj- óir hjá hjónum þegar fjármagn er tekið út úr atvinnulífinu í þessu formi. Forustumenn Alþýðusambands ís- lands hafa verið sjálfum sér samkvæm- ir og staðið við álit nefndarinnar um fjármagnstekjuskattinn og talið þetta skref nauðsynlegt til að koma skattin- um á. Það er dálítið mótsagnakennt miðað við umræður um málið á liðn- um árum ef fjármagnstekjuskatturinn kemst loks á í samstarfi við Sjálfstæð- isfflokkinn gegn hörðum mótmælum allra þeirra flokka sem telja sig til vinstri í stjórnmálum. Eins og nú horf- ir er útlit á því. Til móts við framtíbina Þegar ríkisstjórnin tók við fyrir ári síðan var línan í andófinu gegn henni að hún væri stjórn helmingaskipta og kyrrstöðu. Þversögn er einnig í því fólgin að nú er hún ýmist sögð stjórn kyrrstöðu eða ríkisstjórn sem vaði yfir aílt til þess að gjörbreyta þjóðfélaginu og þá til verri vegar. Löggjöfin um sam- skipti á vinnumarkaði og réttindi og skyldur opinberra starfsmanna er nefnd sem dæmi um þetta. í meðför- um Alþingis hefur verið komið til móts við fjölmargar tillögur og ábendingar launþega varðandi þessi mál bæði og það er alveg ljóst að þeir hefðu ekki komist lengra í samningum við vinnu- veitendur eða ríkið um skamskiptamál- in. Með löggjöfinni núna er komið miklu meira samræmi um reglur á vinnumarkaði en var fyrir, og það er sannfæring mín að löggjöfin á í engu að rýra möguleika launþega til að sækja sinn hlut frá því sem áður var. Sannleikurinn er sá að umræðan hefur snúist um samráð og vinnubrögð frek- ar en efnisatriði málsins. Ákvæði um viðræðuáætlun eru afar mikilvæg fyrir lauþega, og það er viðurkennt. Það mun í engu veikja aðstöðu til samn- inga nema síður sé að hafa allsherjarat- kvæðagreiðslu sem bakland. Það er langt í frá að kyrrstaða hafi ríkt á Alþingi í vetur. Það þing sem nú situr hefur verið mjög afkastamikið. Ný löggjöf sem hraðfara þjóðfélags- breytingar kalla á hefur tekið gildi á mörgum sviðum. Þegar hinum löngu ræðum stjórnar- andstæðinga lýkur og farið er að vinna úr þeim lagasetningum sem hafa verið á Alþingi í vetur mun það koma í ljós að það er langt í frá að stjórnarliðar hafi sett metnað sinn í að níöast á þeim sem eru minni máttar í landinu. Það gefur ekkert tilefni til að álykt svo. Þvert á móti bendir margt til þess nú að lag sé til þess að auka kaupmáttinn og auka þar með tekjur og tryggja afkomu ríkissjóðs sem er grunnur fyrir velferð- arkerfinu. Þetta markmið er í sjónmáli vegna þess að efnahagur er stöðugur og afkoma fyrirtækja batnandi. Þessum grunni má ekki raska ef það á að takast að hafa velferð fólksins í fyrirrúmi eins og við framsóknarmennn höfum orð- að það. Skuldasöfnun, vaxtahækkanir, verðbólga og gengisfellingar steypa grundvellinum undan lífsafkomunni, sérstaklega hjá þeim sem minna mega sín. Þessu samhengi mega menn aldrei gleyma. Þó þeir sem standa sem lengst í ræðustól Alþingis virðist hafa gert það. Vonanddi róast þeir þegar hinum löngu ræðum lýkur, og þingmenn ganga út í voriið. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.