Tíminn - 01.06.1996, Blaðsíða 6

Tíminn - 01.06.1996, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 1. júní 1996 Eitt þeirra frumvarpa sem orðiö hafa efni til umræbna og gagnrýni á Alþingi er frum- varp um að breyta Póst- og síma- málastofnuninni í hlutafélag. Gagn- rýnendur frumvarpsins úr hópi þingmanna stjórnarandstöðunnar hafa meöal annars sagt ab frum- varpið sé aðeins fyrsta skrefið að sölu þessa rekstrar í hendur einka- abila og einnig hefur verib deilt á ab hlutverk og starfsöryggi starfs- manna hafi ekki veriö haft nægi- lega að leiðarljósi. Þá hafa gagnrýn- endur frumvarpsins þráfaldlega spurt í ræbum sínum hvab reki stjórnvöld til þessara breytinga þeg- ar því sé haldiö fram ab reksturinn eigi eftir sem ábur ab vera á hendi hins opinbera. Magnús Stefánsson, þingmabur Vesturlands, á sæti í samgöngunefnd Alþingis og hefir kynnt sér efni frumvarpsins um breytingu rekstrarforms Pósts og síma til hlítar. - Hvað rekur ráðmerm þjóðarinnar til þess að breyta rekstrarformi Póst- og símamálastofnunar- innar í hlutafélag á þessum tímaþunkti? „Fjárhagsleg velta Póst- og símamálastofnun- arinnar er allt að 12 milljarbar króna á ári en vegna núverandi rekstrar- forms heyrir hún beint undir fjárlög íslenska ríkisins og þar með beint undir Alþingi með allar stærri ákvarðanir. Þetta er að mínu mati mjög óeðli- legt rekstrarform fyrirtækis af þessu tagi og samrýmist á engan hátt nútímalegum stjórnunarháttum. Starfsum- hverfi stofnunar á borð vib Póst og síma felst í stöbugt harðnandi samkeppni þar sem oft þarf að taka skjótar ákvarðanir og hrinda þeim í framkvæmd. Þá mun þetta fyrirtæki í auknum mæli þurfa að gera ýmsa samninga við erlenda aðila sem búa vib mjög alþjóðlegt rekstrarum- hverfi. Ríkistofnun á borð við Póst- og símamálastofnun hefur á hinn bóginn tak- markað svigrúm og sveigjan- leika til þess að bregðast við slíku umhverfi á eðlilegan hátt og er því hætt við að dragast aftur úr samkeppn- isaðilum jafnt hvað varðar tæknilega þætti sem fjár- hagslega þótt það hafi ætíb staðið sig vel að öðm leyti. Dragist stofnunin aftur úr vegna þunglamalegs stjórnkerfis kemur það fyrst og fremst niður á neyt- endum, það er landsmönnum sjálfum." Hlutafélagsformib orðið ofaná í nágrannalöndunum - Var hlutafélagsformið eina rekstrarformið sem kom til greina varðandi breytingar á rekstri Pósts og síma? „Við endurskoðun á rekstrarformi Pósts og síma komu í raun ýmis rekstrarform til greina en eðlilegt var að horfa til nágrannalandanna í þessum efnum og kanna á hvern hátt þær þjóðir reka sína póst- og síma- þjónustu. í nágrannalönduhum hafi stjórnvöld tekið ákvarbanir um að bregðast við hinum miklu breyt- ingum á alþjóðlegu rekstrarumhverfi síma- og marg- miðlunarfyrirtækja meb því að breyta rekstrarformi þeirra í hlutafélög. í flestum tilfellum hafa þessi fyrir- tæki verið rekin sem ríkisstofnanir eða ríkisfyrirtæki sem nú hefur verið breytt í hlutafélög. Að vísu er póstþjónustan í Danmörku og Noregi enn rekin af ríkisfyrirtækjum en engu ab síður eru komnar fram hugmyndir í þessum löndum um að breyta rekstrar- forminu í hlutafélög. Þessar nágrannaþjóðir okkar hafa metið stöbuna svo að til þess að geta mætt auk- inni samkeppni og miklum breytingum á rekstrarum- hverfi hafi verið nauðsynlegt að breyta rekstrarformi póst- og símafyrirtækjanna úr ríkisstofnunum eða rík- isfyrirtækjum í hlutafélagsform." Abeins Alþingi getur tekib ákvörbun um sölu - Stjómarandstœðingar hafa meðal annars gagnrýnt frumvarpið á þeirri forsendu að þetta sé aðeins fyrsta skrefið að sölu Pósts og síma og sumir látið liggja orð að því að ákveðnir fjársterkir aðilar í þjóðfélaginu bíði eftir Magnús Stefánsson alþingismaöur um frumvarpiö um Póst og síma: Verið ab mæta þróun fjarskiptamála og breytingum á rekstrarumhverfi því að það verði boðið til sölu. Hverju vilt þú svara þeirri gagnrýni? „Þessi gagnrýni er ástæðulaus. Mikilvægt er að tryggt veröi ab ríkið eigi fyrirtækið framvegis á sama hátt og nú og í frumvarpinu er tekið á því máli. Með þeirri breytingu að Póstur og sími verði gert að hluta- félagi mun samgönguráðherra fara með eignarhald á félaginu fyrir hönd ríkissjóðs. Framsóknarflokkurinn er andvígur sölu Pósts og síma og hefur lagt mikla áherslu á að tryggja ákvöröunarvald Alþingis hvað varðar hugsanlegar hugmyndir um sölu á fyrirtækinu þannig að í lögum verði kveðið skýrt á um að ein- göngu Alþingi geti tekið ákvörðun um hvort Póstur og sími eða hlutar fyrirtækisins verði seldir. Ég legg mikla áherslu á þetta atriði, ekki síst vegna þeirrar reynslu sem fengist hefur af sölu opinberra fyrirtækja, því dæmi eru um að óeðlilega hafi verið staðið að sölu slíkra fyrirtækja sem hefur verið á hendi einstakra rábherra án þess að Alþingi hafi komið þar nærri." Ekki hægt ab binda hendur Alþingis um alla framtíb - En hvemig er unnt að tryggja að ekki verði rasað um ráð fram í þessu máli og nýjum aðilum boðið að gerast hluthafar í Pósti og síma hf. „Frumvarpið gerir ráð fyrir ab Póst- og símamála- stofnuninni verði breytt í hlutafélag sem verði að öllu leyti í eigi ríkisins en aðeins Alþingi geti tekið ákvörð- un um slíka sölu. Fmmvarpið kvebur á um að einung- is verði gefið út eitt hlutabréf fyrir öllu hlutafénu og að samgönguráðherra fari með eignarhald þess fyrir hönd ríkisins. Samgönguráðherra mun skipa. sjö manna stjórn sem fer með rekstur Pósts- og síma hf. eins og í hverju öðru hlutafélagi þótt ráðherra fari með forræði í umboði eigandans sem er ríkissjóður." Magnús segir að sjálfsögbu geti enginn fullyrt um það í dag hvort Alþingi telji nauðsynlegt eða eðlilegt einhverntímann í framtíbinni að gera breytingar á eignarhaldi í fyrirtækinu. Hann segir að þótt þær breytingar, sem nú sé unnið að, yrðu ekki fram- kvæmdar þá geti enginn fullyrt um hvort slíkar ákvarðanir verbi teknar síðar og einnig sé þá auð- velt að taka ákvörbun um sölu stofnunarinnar í leiðinni. Þannig geti enginn bundið hendur Al- þingis um ókomna tíma og verði vilji til sölu Pósts og síma að veruleika innan þingsins í fram- tíðinni þá skipti í sjálfu sér engu máli hvort um ríkisstofnun eða hlutafélag í eigu ríkisins verði að ræba. Alþingi hafi eftirlit meb fram- kvæmd - Hvemig verður undirbúningi þessara breytinga og starfsemi hlutafélagsins um Póst og síma háttað? „Frumvarpið gerir ráð fyrir að skipuð verði sér- stök þriggja manna undirbúningsstjórn er fái heimildir til þess ab framkvæma ýmsa nauðsyn- lega löggerninga og samninga vegna stofnunár hlutafélagsins og til ab undirbúa starfsemi þess, sem mun hefjast þann 1. janúar 1997 eða um næstu áramót. Annarri þriggja manna nefnd er síðan ætlað að meta eignir stofnunarinnar, skuld- bindingar hennar og vibskiptavild auk þess að leggja mat á abra eigna- og skuldaliði efnahags- reiknings. Frumvarpið gerir ráb fyrir ab stofn- fundur hins nýja hlutafélags verbi eigi síðar en 27. desember á þessu ári en hinn 1. október næst komandi liggi fyrir mat þeirrar þriggja manna nefndar og verður upphæð hlutafjár metin á grundvelli niðurstaðna hennar." Magnús segir að í meirihluta samgöngunefndar hafi verið rætt um nauðsyn þess að nefndinni verði gert kleift að afla upplýsinga um framgang þessara mála og fylgjast meb öllum undirbúningi að stofnun hlutafélagsins og störfum þess eftir að Póstur og sími hf. hefur tekið til starfa. Hann seg- ir að sá háttur hafi verið hafður á í Noregi þegar norsku símamálastofnuninni var breytt í hlutafélag. Það muni veita nauðsynlegt eftirlit og að- hald fyrir utan að eðlilegt og sjálfsagt verði ab teljast að Al- þingi hafi aðstöðu og aðgang til að fylgjast með framkvæmd þessara mála. Starfsmenn halda réttindum - Á gagnrýni um að réttindi starfsfólks Pósts og síma verði fyr- ir borð borin og að ekki hafi verið haft samstarf við það við rök að styðjast? „Að mínu mati á hún ekki við rök ab styðjast. Allir starfsmenn Póst- og símamálastofnunarinn- ar eiga kost á ab halda störfum sínum. Ákvæði er í fmmvarpinu um að starfsmenn haldi lög- bundnum réttindum samanber lög um réttindi starfsmanna rík- isins er verða í gildi þegar lögin um Póst og síma hf. taka gildi. Þetta gildir einnig um ákvæði laganna um biðlaun. Þá verður starfsmönnum boðinn sá valkostur að greiða áfram í lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins og halda lífeyrisréttindum sínum þar. Þá má geta þess að samkvæmt ákvæðum laga nr. 77 frá 1993, um réttarstöðu starfsmanna við aðila- skipti að fyrirtækjum, halda starfsmenn kjarasamn- ingsbundnum réttindum sínum samkvæmt gildandi kjarasamningum. Á þann hátt yfirfærist gildandi kjarasamningur starfsmanna Pósts- og símamála- stofnunarinnar yfir til Pósts og síma hf. um næstu áramót." Landib eitt gjaldsvæbi 1. júlí 1998 - Eitt mál hefur verið lítið í umrxðunni varðandi mál- efni Pósts og síma en það em fyrirhugaðar breytingar á gjaldskrá fýrir símaþjónustu. Hvaða breytingar em fyrir- hugaðar samhliða breytingunni á rekstrarforminu úr stofnun í hlutafélag? Magnús segir rétt að fyrirhugaðar breytingar á gjaldskrá hafi ekki verið dregnar með nógu áberandi hætti fram í dagsljósið. Málið hafi verið mikið verið rætt - einkum á meöal stjórnarþingmanna lands- byggðarinnar og áhersla verið lögð á að ein af for- sendum formbreytingarinnar á rekstri Pósts og síma væru að þessar breytingar á gjaldskrá næbu jafnhliða fram að ganga. Nú eigi að fækka töxtum úr þremur í tvo sem muni þýða um 300 milljóna króna hagnað fyrir símnotendur. Að þessari breytingu lokinni verði aðeins um að ræða dagtaxta er gildi fram til kl. 19.00 á virkum dögum en þá taki við nætur- og helgildga- taxti. Við þessar breytingar lækki kostnabur fyrir þriggja mínútna samtal á langlínusamtali að degi til um allt að 28%. Magnús segir að samkvæmt frum- varpi til fjarskiptalaga sem flutt sé samhliða frum- varpinu um Póst og síma sé ákveðið að gera landið að einu gjaldsvæði eigi síðar en 1. júlí 1998 og með því sé áralangt baráttumál landsbyggðarinnar farsællega leitt til lykta. -ÞI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.