Tíminn - 08.06.1996, Blaðsíða 1
80. árgangur
Ríki og borg ábyrgjast 3ja
milljóna halla af einum
dagskrárliö á Listahátíö:
Taka á sig
halla af komu
wsku sin-
'oníunnar
„Ríki og borg hafa samþykkt,
hvort fyrir sig, aö gangast í
ábyrgö fyrir 3 milljónum sem
nú stefnir í aö vera halli af
komu Þýsku sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í Berlín. Ég sendi
erindi til ríkis og borgar, þar
sem ég sá fram á aö þetta at-
riöi væri oröiö svo dýrt aö mér
tækist ekki aö halda fjárhags-
áætlun ef þaö yröi meö," sagöi
Signý Pálsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Listahátíöar, í
samtali viö Tímann. Ef halli
verbur á tónleikum þýsku
hljómsveitarinnar, leggja því
ríki og borg fram 1,5 milljón
hvor, enda vilji á báöum stöö-
um fyrir því ab sveitin komi
til landsins.
Óviöráðanlegir og óvæntir
kostnaðarliðir uröu til þess að
koma sveitarinnar var komin 3
milljónir fram úr upphaflegri
fjárhagsáætlun, einkum flug-
kostnaöur við flutning ríflega
80 hljóöfæraleikara og hljóö-
færa, en þess má geta aö Ashk-
enazy og hljómsveitin þiggja
ekki laun fyrir komu sína.
Að sögn Signýjar hefur miða-
salan undanfarið verið þokka-
leg, en ítrekaöi að fólk væri enn
á síðustu stundu og í gær hefði
t.d. verið rífandi sala á tónleika
Heimskórsins í dag og miðasöl-
unni veriö haldið opinni fram á
kvöld. LÓA
Hollustuvernd; Þrifum á ís-
vélum í sjoppum/ísbúöum í
mjög mörgum tilfellum
ábótavant:
58% sýna af
mjúkís stóðust
ekki kröfur
„Almennt er örveruástand
mjólkurvara mjög gott. Þab em
helst sýni af mjúkís frá útsölu-
stöbum meö ísvélar, sem stand-
ast ekki kröfur. Sérstakar úttekt-
arrannsóknir á þessílri vöm
hafa sýnt fram á, aö þrifum á ís-
vélum er í mjög mörgum tilfell-
um ábótavant. Þannig stóbust
55% sýna af mjúkís ekki kröfur
áriö 1993 og 58% árib 1994. Al-
gengustu ástæöur þessa vom of
hár örvemfjöldi og kólígerla-
mengun", segir í nýrri skýrslu
um starfsemi Hollustuvemdar
ríkisins.
Stofnunin segir að hár örvera-
fjöldi gefi til kynna að matvæli
séu ekki lengur fersk, geymsluþol
þeirra þrotiö og þau jafnvel byrj-
uð aö skemmast. Óeölilega hár
fjöldi kólígerla sé vísbending um
lélegt hreinlæti. Kólígerlar bendi
einnig til hugsanlegrar mengunar
af völdum sjúkdómsvaldandi ör-
vera sem upprana eiga í iöram
manna og dýra. ■
STOFNAÐUR 1917
Laugardagur 8. júní
% *
'metFiLí/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
107. tölublað 1996
Léttar óperuperlur
Heimskórsins á Listahatíb kl. 16 í aaq. Sunqin verba
Críbarlegur fjöldi allra þjóba söngvara kemur saman í Laugardalshöllinni til ab syngja undir nafni
Jag. Sungin verba atribi úr þekktum óperum, s.s. La Boheme, Madame Butterfly, Aida og Carmen, meb einsöngvurun-
um Olgu Romanko, Dmitri Hvorostovsky, Rannveigu Fríbu Bragadóttur og Keith Ikaia-Purdy.
Sjávarútvegsráöherra breytir litlu í ákvöröun um heildarafla frá ráb-
gjöf Hafró:
Steinbítur og
langlúra í kvóta
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
rábherra kunngeröi í gær
ákvöröun sína um leyfilegan
heildarafla einstakra fiskteg-
unda fyrir komandi fiskveiðiár
sem hefst 1. september n.k. Þar
em gerðar óvemlegar breyting-
ar um kvóta einstakra tegunda
frá því sem fram kom í ráögjöf
Hafrannsóknastofnunar í sl.
mánuði. Athygli vekur aö veib-
ar á steinbít og langlúru verba
ab þessu sinni háöar kvóta. Viö
kvótaákvörðun til einstakra
skipa veröur tekiö miö af veiöi-
reynslu þeirra á þessum teg-
undum á tímabilinu 1. júní
1993 - 31. maí 1996.
Samkvæmt ákvöröun ráðherra
verður þorskkvótinn aukinn um
31 þúsund tonn, eða úr 155 þús-
und tonnum í 186 þúsund tonn
sem er óbreytt frá ráögjöf Hafró.
Fyrir smábáta þýöir þetta að
heildarkvóti þeirra í þorski verö-
ur tæp 26 þúsund tonn, eöá
13,9% af leyfilegum heildarafla í
þorski, samkvæmt nýsamþykkt-
um lögum frá Alþingi. Þessi
aukning þorskkvótans hefur í för
með sér að útflutningsverðmæti
sjávarafurða eykst um 2 milljarða
láóna. í þorskígildum nemur
aukningin að loönu meðtalinni
um 1,9%, samkvæmt mati Þjóð-
hagsstofnunar.
Þá verður upphafskvóti ís-
lenska flotans í loönu fyrir sum-
ar- og haustvertíð alls 737 þús-
und tonn, en gert er ráð fyrir að
leyfilegur heildarafli geti numið
allt aö 1.278.000 tonnum á allri
vertíðinni. Af einstökum frávik-
um frá ráögjöf Hafró má nefna
að ýsukvótinn er aukinn úr 40
þús. tonnum í 45 þús. tonn, út-
hafsrækjukvótinn eykst um 5
þúsund tonn, eða úr 55 þús.
tonnum í 60 þús. tonn og síldar-
kvótinn er aukinn um 10 þús.
tonn, eða úr 100 þús. tonnum í
110 þúsund tonn og skarkoli um
2 þúsund tonn, eöa úr 10 þús.
tonnum í 12 þús. tonn.
Ráðuneytið vekur athygli á því
að leyfilegur heildarafli í ýsu á
næsta fiskveiðiári minnkar um
15 þúsund tonn og ufsakvótinn
um 20 þúsund tonn frá þeim
kvótum sem gilda á yfirstand-
andi fiskveiðiári. Jafnframt er
bent á aö ekki hefur tekist ab
veiða úthlutaöa kvóta í þessum
tveimur tegundum á undanförn-
um áram. Þá lækkar leyfilegur
heildarafli í grálúðu um 5 þús-
und á milli fiskveiðiára, en vegna
tilfærslu aflaheimilda á milli ára
er búist við að aflinn verði 23
þúsund tonn, þótt útgefinn kvóti
á næsta fiskveiðiári verbi 15 þús-
und tonn.
Þá stefnir sjávarútvegsráðu-
neytið ab því að gefa út reglugerð
um stjórn fiskveiða á næsta fisk-
veiðiári um næstu mánaöamót.
Hinsvegar verður endanlegur
kvóti til einstakra skipa fyrir
steinbít og langlúra ekki til-
kynntur viðkomandi útgerðum
fyrr en nokkuð verður liðið á
næsta fiskveiðiár vegna vinnu og
tæknilega útfærslu við útreikn-
ing á kvóta. Aftur á móti fá út-
gerðirnar bráðabirgðaúthlutun í
þessum fisktegundum sem send
verður til þeirra samhliba öðrum
kvótaúthlutunum til einstakra
útgerba um miðjan ágúst n.k.
-grh
„Europe Tax-free Shopping"
tekiö til starfa á íslandi:
Endurgreiösla
vsk. eykur
kaup erlendra
ferðamanna
Europe Tax-free Shopping
(ETS eba Virðisaukaskatts-
frjáls verslun) hefur nú fengið
öll tilskilin leyfi íslenskra
stjómvalda til ab annast end-
urgreibslu virbisaukaskatts af
vömm sem erlendir ferba-
menn kaupa hér á landi.
Skrifstofa ETS á íslandi hefur
tekið til starfa og ætlar m.a. að
leiðbeina verslunarfólki um það
hvernig endurgreiðsla virðisauka-
skatts getur aukið viðskipti ferða-
manna. Hérlendis mun Lands-
banki íslands annast endur-
greiðslu skattsins. Erlendir ferða-
menn á leið frá íslandi og
íslendingar á heimleiö frá útlönd-
um geta því eftirleiðis fengið end-
urgreiðsluávísanir innleystar í úti-
búum Landsbankans. Um
120.000 verslanir í 22 löndum era
merktar Europs Tax-free Shopp-
ing, sem þúsundir íslendinga
hafa notfært sér á ferðum sínum
erlendis. Að mati forsvarsmanna
ETS hvetur möguleiki á endur-
greibslu virðisaukaskatts ferba-
menn til innkaupa.
Ab ETS á íslandi standa Félag ís-
lenskra stórkaupmanna, Kaup-
mannasamtök íslands og ETS í
Evrópu, sem staðið hafa að undir-
búningi verkefnisins ásamt
Landsbanka íslands. ■