Morgunblaðið - 02.01.2006, Side 6
KARLMAÐUR á fimmtugsaldri
var úrskurðaður í vikulangt gæslu-
varðhald á gamlársdag fyrir meinta
fíkniefnadreifingu í Vestmannaeyj-
um. Lagði lögreglan fram kröfuna í
kjölfar handtöku þriggja kvenna og
eins karlmanns vegna fíkniefna-
mála.
Við leit á heimilum kvennanna og
í bíl fannst töluvert magn af hassi
til viðbótar, alls um 100 grömm, auk
amfetamíns. Manninum var sleppt
eftir yfirheyrslur, en ekkert fannst í
fórum hans. Við yfirheyrslur játaði
ein konan umtalsverða sölu á fíkni-
efnum og í kjölfarið var maður á
fimmtugsaldri handtekinn. Við leit
lögreglu í tveimur húsum fundust
tæplega 100 grömm af hassi til við-
bótar og tæplega milljón í pening-
um, bæði í íslenskum krónum og
dollurum. Játaði maðurinn að hann
ætti fíkniefnin en neitaði ásökunum
um sölu.
Seint á gamlárskvöld var hann
úrskurðaður í gæsluvarðhaldið í
Héraðsdómi Suðurlands. Rannsókn
málsins heldur áfram og beinist að
því að upplýsa ætlaða sölu á fíkni-
efnum í Vestmannaeyjum undan-
farna mánuði, að sögn lögreglu.
Í gæsluvarð-
haldi vegna
fíkniefna-
mála í Eyjum
6 MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eldaskálinn | Brautarholti 3 | 105 Reykjavík
sími: 562 1420 | eldaskalinn@eldaskalinn.is | www.invita.com
Þrettándabrennan á eldhúsflatskjánum
Gerum okkur glaðan dag og meðan birgðir endast
gefum við 20" Toshiba LCD flatskjái með Invita eldhúsinnréttingum.
Á www.invita.com sérðu enn fleiri innréttingalausnir.
20 ára ábyrgð.
Þetta er Invita
20" LCD
flatskjársjónvarp
25 ára afmælistilboð
ELDSVOÐI í flugeldageymslu
Hjálparsveita skáta í Hveragerði á
laugardag olli tugmilljónatjóni og
mikilli eyðileggingu á húsnæði
skátafélagsins. Ekki urðu alvarleg
slys á fólki en allt að 20 manns voru
innandyra í skátahúsinu þegar eldur-
inn kviknaði. Gífurlegar sprengingar
og neistaflug fylgdu strax í kjölfarið
að sögn slökkviliðsstjórans í Hvera-
gerði.
Í húsinu stóð einnig flugeldasala
fyrir áramótin sem hæst og var húsið
rýmt á skammri stundu. Meiddist þá
einn viðskiptavinur þegar hann sneri
sig á fæti framan við húsið. Ekki hlut-
ust af önnur slys í brunanum.
Talið er að neisti úr heftibyssu, sem
notuð var við að hefta kveikiþræði á
sýningarflugeldum, hafi orsakað elds-
voðann.
Tildrög eldsins voru þau að hjálp-
arsveitamaður var að leggja lokahönd
á 200 kg flugeldapakka í herbergi inn
af sjálfri flugeldasölunni. Ólafur Ósk-
arsson, varaformaður hjálparsveitar-
innar, segir mjög undarlegt að þetta
skyldi gerast því heftibyssan var ein-
föld handknúin byssa sem notuð er
víða hjá skátafélögum við lokafrá-
gang á sýningarflugeldum. Vera kann
þó að hefti úr byssunni hafi lent í járni
og myndað neistann, segir hann.
Skátinn sem var að hefta flugeldana
forðaði sér fljótt út þegar eldurinn
kviknaði með miklum látum og rým-
ing á afgreiðslusal, sem er í næsta
rými, var framkvæmd í miklum flýti.
Sýningarflugeldarnir brunnu og
sprungu innandyra en hálft tonn af
söluflugeldum í afgreiðslusalnum er
óskemmt.
Þrír eigendur eru að húsnæðinu og
á hjálparsveitin 350 ferm. í húsinu
sem er með steyptum súlum og timb-
ureiningum á milli. Allt þak hússins
brann enda náðu eldvarnarveggir
ekki upp í loft og breiddist eldurinn
því út eftir öllu þakinu. Lögreglan
segir allt húsið ónýtt og næsta verk sé
að rífa það. Í eldsvoðanum brann mik-
ill björgunarbúnaður sveitarinnar.
Þar má nefna fjóra vélsleða og þrjár
sleðakerrur ásamt rústabjörgunar-
kerru, fjallaklifursbúnað, sjúkratjöld-
um og tölvubúnaði. Einn björgunar-
sveitarbíll skemmdist en hann stóð
utan við húsið og náði eldurinn til
hans að hluta. Hins vegar voru aðrir
björgunarsveitarbílar sveitarinnar
fjarri og sluppu því óskemmdir.
Þegar eldurinn kviknaði varð at-
burðarásin gríðarlega hröð. Slökkvi-
liðsútkallið kom kl. 13.10 og dreif að
mikið hjálparlið úr öllum áttum. Hús-
ið, sem er í Austurmörk 9, er í miðjum
bænum og hafði slökkviliðið í Hvera-
gerði áhyggjur af dvalarheimili aldr-
aðra þar skammt frá. Hafnar voru
áætlanir um að rýma dvalarheimilið
en ekki þurfti að grípa til þeirra ráð-
stafana. Milt veður, austan 2 m/sek.,
gerði sitt til að auðvelda slökkvistarf.
Í fyrstu barst reykurinn yfir bæinn en
áttin snerist síðar til suðurs, frá hon-
um. Þrátt fyrir að eldurinn byrjaði
með miklum látum voru slökkviliðs-
menn tiltölulega fljótir að ná tökum á
honum, þótt vatnsöflun væri vanda-
mál þegar leið á slökkvistarfið. Mikið
björgunarlið var kallað á vettvang að
sögn Ólafs Helga Kjartanssonar,
sýslumanns Árnessýslu, sem fylgdist
með aðgerðunum. Auk slökkviliðsins í
Hveragerði komu liðsmenn Bruna-
varna Árnessýslu og Slökkviliðs höf-
uðborgarsvæðisins. Allir vaktmenn
lögreglunnar á Selfossi og aukamenn
voru kallaðir út auk tveggja bíla frá
sérsveit ríkislögreglustjóra. Þá kom
einn bíll frá lögreglunni í Kópavogi.
Málið er í rannsókn hjá lögreglunni
á Selfossi. Að sögn hennar fengu tveir
slökkviliðsmenn og einn björgunar-
sveitarmaður súrefnismeðferð á
staðnum en þurftu þó ekki að leita
lækninga á spítala.
Formaður hjálparsveitarinnar
Lárus Guðmundsson segir að byggja
þurfi upp sveitina að nýju þar sem all-
ur búnaður félaga eyðilagðist og ekk-
ert sé eftir nema tveir bílar. Í sveit-
inni eru 24 virkir félagar og tapaði
hver þeirra persónulegum búnaði frá
50-400 þúsund krónum.
Eldsvoði í flugeldasölu Hjálparsveita skáta í Hveragerði olli tugmilljónatjóni en engum slysum
Um 20 manns
innandyra
þegar eldur-
inn kviknaði
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
Mikinn reyk lagði frá eldinum inni í miðjum bænum og sást hann víða að á Suðurlandsundirlendinu.
Morgunblaðið/Júlíus
Slökkviliðsmenn lögðu aðaláherslu á vinnu utan hússins fyrstu tvo tímana
og fóru ekki inn fyrr. Þá kom í ljós að flugeldalagerinn var ennþá heill.
TÖLUVERÐ ölvun og læti voru í
borginni á nýársnótt og var fólk á
ferli allt til klukkan 10 á nýársdags-
morgun. Mikið var að gera hjá lög-
reglunni en ekki hlutust af nein
stórslys. Fimm manns voru látnir
gista fangageymslurnar.
Þá féll maður af fjórðu hæð er
hann var að príla milli svala í fjöl-
býlishúsi í austurhluta borgarinnar
en slasaðist ekki alvarlega.
Þá slösuðust tveir menn í Grinda-
vík þar af annar illa á hendi þegar
flugeldur sprakk í höndum hans.
Þá var annar karlmaður fluttur á
slysadeild með augnáverka eftir
flugeldaslys.
Töluverð ölvun
og læti en stór-
slysalaus nótt
„ÞAÐ voru gífurlegar sprengingar
og neistaflugið náði hátt í loft upp
þegar við komum á staðinn,“ sagði
Snorri Baldursson, slökkviliðsstjóri
í Hveragerði, í samtali við Morgun-
blaðið á vettvangi. „Ég var staddur
úti í verslanamiðstöð þegar ég fékk
boðin kl. 13.08 og sá hvernig flug-
eldarnir skutust lengst upp í him-
ininn. En þetta leið hjá og síðan
urðu tiltölulega miklar spreng-
ingar. Þegar sölurýmið fór að
brenna jókst það aðeins en tvö her-
bergi með flugeldalager hússins
stóðust eldinn. Ég er ákaflega stolt-
ur af því vegna þess að maður hefur
barist í því að svona húsnæði eigi að
uppfylla lög og sú er raunin hér, og
gott betur, því húsnæðið á bara að
halda í 60 mínútur, en nú hefur eld-
urinn logað í tvo tíma,“ sagði hann
þegar klukkan var um 15.30.
Reykkafarar fóru inn í húsið um
tveimur klukkustundum eftir að
eldurinn kviknaði og sannreyndu
að báðir flugeldalagernir voru heil-
ir. Snorri sagði reykinn fyrst hafa
borist inn í bæinn og því hafi verið
byrjað á að huga að rýmingu dval-
arheimilis aldraðra í bænum en
þegar reykinn fór að leggja lóðrétt
í loft upp var horfið frá því. „Skap-
arinn var okkur hliðhollur og reyk-
urinn fór upp,“ sagði hann.
„Gífurlegar
sprengingar
og neistaflug“
MIKILL erill var hjá slökkviliði höf-
uðborgarsvæðisins á nýársnótt og
voru útköllin um 20 talsins frá því
skömmu fyrir miðnætti og til morg-
uns. Einkum var um að ræða minni-
háttar elda í ruslagámum en í eitt
skipti kviknaði í eftir að flugeldur
fór inn um íbúðarglugga í Hafn-
arfirði. Um fimmtíu útköll voru að
auki vegna sjúkraflutninga af mis-
munandi ástæðum, aðallega vegna
smærri brunaskaða, slagsmála og
ölvunar.
Slökkviliðið kall-
að út 20 sinnum