Morgunblaðið - 02.01.2006, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.01.2006, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING UPPSETNING Vesturports á Woyzeck eftir George Büchner í Barbican Centre í London er meðal bestu leiksýninga ársins 2005 að mati gagnrýnanda breska tímaritsins Time Out London. Það er leiklistargagn- rýnandinn Rachel Halliburton sem tiltekur leiksýningu íslenska leikhópsins Vesturports á Woyzeck í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar en sýningin vakti sem kunn- ugt er mikla athygli og hlaut lofsamlegar umsagnir gagnrýnenda. Var hún meðal annars valin sýning vik- unnar í Time Out, en alls voru 10 sýningar haldnar á verkinu áður en það var fært heim og tekið til al- mennra sýninga í Borgarleikhúsinu. Tónlistarmað- urinn Nick Cave samdi tónlistina í verkinu og flutti hana ásamt Warren Ellis. Listar yfir bestu leiksýningar ársins 2005 eru birtir í nýjasta hefti Time Out London en þar meta gagnrýnendur á ýmsum sviðum lista bestu verkin í listalífinu í London á nýliðnu ári. Meðal þeirra leiksýninga sem tveir gagnrýnendur Time Out velja þær bestu á árinu eru uppfærsla á Mary Stuart eftir Friedrich Schiller í leikstjórn Phyllida Lloyd, uppsetn- ing Barbican Centre á Julius Caesar eftir Shakespeare í leikstjórn Edward Hall, Pillars of the Community (Stoðir samfélagsins) eftir Ibsen í leikstjórn Marianne Elliott og hin vinsæla söngleikjauppfærsla á Billy Elliot í leikstjórn Stephen Daldry með frumsaminni tónlist eftir Elton John. Woyzeck meðal bestu leiksýninga ársins hjá Time Out Morgunblaðið/Árni Sæberg Úr leikritinu Woyzeck sem Time Out valdi meðal sýninga ársins 2005. Woyzeck í uppáhaldi SKÁLDSAGAN Kertin brenna nið- ur eftir Sándor Márai, sem út kom fyrir skemmstu í þýðingu Hjalta Kristgeirssonar, bregður upp mynd af horfnum heimi. Sögusviðið er austurrísk-ungverska heimsveldið á tímabilinu frá ofanverðri nítjándu öld allt fram til upphafs síðari heims- styrjaldar. Söguhetjurnar eru vin- irnir Henrik og Konrád sem um ára- bil gegna saman herþjónustu og hafa verið óaðskiljanlegir frá barn- æsku. Þótt áðurnefnt tímabil hafi vitanlega verið umbyltingasamt eru það ekki heimssögulegir atburðir sem móta framrás bókarinnar. Við- fangsefnið er mun persónulegra en þó afskaplega flókið. Það er vinátta þessara tveggja manna og sá harm- ræni atburður sem að lokum leiðir til þess að á milli þeirra skilur. Það er þessi vinátta sem umfram styrjaldir reynist hafa mótað líf þeirra en líka valdið þeim meiri skaða en nokkur herátök. Þegar skáldsagan hefst bíð- ur Henrik, nú á áttræðisaldri, eftir heimsókn vinar síns sem hann hefur ekki hitt í rúma fjóra áratugi. Bakgrunnur vinanna tveggja er gjörólíkur en kannski er það einmitt þessi mismunur sem upphaflega lað- aði þá hvorn að öðrum. Henrik er af aðalsættum, faðir hans var lífvarða- foringi í hirð keisarans og hærra varð vart komist í félagslegu stig- veldi samtímans. Framtíð Henriks er því nokkuð ljós. Hann mun feta í fótspor föðurins, ná frama og æðstu tignum í hernum og þegar þar að kemur mun hann taka við fjöl- skylduauðnum. Fyrir Konrád horfa málin öðruvísi við. Hann hefur lítið á bak við sig, fjölskylda hans líður skort svo hann geti gengið í herskóla og þó gerir hann ekki annað en skrimta. Þessar ólíku félagslegu aðstæður speglast líka í ólíkri skapgerð mann- anna tveggja. Henrik er sjálfs- öruggur, opinn og gleðimaður mikill. Hann fellur öllum í geð; lífsánægja og hamingja virðast umlykja hann. Konrád er öðruvísi. Hann er ein- rænn, dulur og leggur mun meiri rækt við andans mál en Henrik. Hans athvarf er tónlistin og bók- menntir. Hann er gáfumaður en Henrik er maður líðandi stundar. Henrik hefur ekki áhyggjur af heim- inum vegna þess að hann veit að heimurinn tilheyrir honum; Konrád horfir hins vegar á lífið utan frá, fylgist með en tekur ekki þátt. Engu að síður myndast sterk vinátta á milli þeirra og sjálft vináttuhugtakið er án efa mikilvægasta þema verks- ins, hornsteinn og heimspekilegur grundvöllur þess, og því ekki notað með léttúð. Þeir bindast böndum sem endast ævina á enda. Drama- tískur kjarni bókarinnar er þó að vinátta þessi reynist hafa mikla óhamingju í för með sér og þótt les- andi viti að margt liggur að baki endurfundunum sem mynda ramma- frásögn bókarinnar er það ekki fyrr en undir lokin sem ástæðan fyrir löngum aðskilnaði þeirra skýrist. Á ákveðnum köflum er bókin líka borgarverk. Vínarborg er umverfi og sviðsetning æsku þeirra og Márai leggur sig fram við að birta lifandi mynd af borg sem á þessum tíma var einn af miðpunktum hins vestræna heims. Líkingar og myndmál eru reyndar að jafnaði kraftmikil í bók- inni en njóta sín einkar vel þegar að staðarpælingum kemur, en þótt að- eins afmarkaður hluti bókarinnar lýsi lífinu í Vín eru vangaveltur um heimili og verustaði gegnumgang- andi og mikilvægar. Og þær tengjast einnig umfjöllun verksins um nútíma og fortíð, minningar um veröld sem var og lífið eins og það blasir við í ell- inni. En þarna sitja þeir sem sagt, Henrik og Konrád, andspænis hvor öðrum. Hálf mannsævi er liðin síðan þeir töluðust síðast við og meðan kertin brenna niður reyna þeir einu sinni enn og í síðasta skipti að skilja vinskapinn, það sem bindur þá sam- an jafnvel núna, og það sem skiptir mestu máli, hvernig líf þeirra fór úr- skeiðis. Í bók sem að öllu leyti er listilega úr garði gerð eru þessar samræður hápunkturinn, endalaust sorglegar og áhrifamiklar. Samræð- urnar eru sálfræðileg rannsókn á manneskjunni og heimspekilegt uppgjör við lífið. Þetta er ekki stór bók að ummáli en dýptin er mikil og sú tregablandna tilfinning sem hún skilur eftir í lesandanum mun ekki gleymast fljótt. Tónkvísl tilverunnar BÆKUR Skáldsaga Eftir Sándor Márai Hjalti Kristgeirsson íslenskaði Mál og menning. Reykjavík. 2005 Kertin brenna niður Björn Þór Vilhjálmsson FLÓKIN og spennandi atburðarás, lifandi persónusköpun og nákvæmar umhverfislýsingar þar sem stíllinn flæðir lipurlega í íslensku þýðing- unni einkenna Stravaganzabækur Mary Hoffman. Í fyrra kom Grímu- borgin út, nú er það Stjörnuborgin og samkvæmt skemmtilegri vís- bendingu verður það Blómaborgin sem rekur lestina í þríleiknum. Mary Hoffman hefur skapað æv- intýralegan en sannfærandi heim þar sem nokkrir unglingar í London samtímans ferðast aftur í tímann og út í heim; til sextándu aldar á Talíu sem er hliðstæða Ítalíu. Einnig geta persónurnar í gamla ævintýraheim- inum ferðast fram í tímann; til Lond- on í nútímanum. Þetta gera þau með því að ,,stravagera“ en það geta að- eins ,,stravagantar“ gert og þeir finnast í báðum heimum. Í Grímuborginni var Lucien að- alpersónan en nú er það Georgía; bresk, fimmtán ára stelpa. Hún ferðast í gegnum tímann, til borg- arinnar Remóru sem er hliðstæða Siena á Ítalíu. Lesendur kynnast heimi hennar;fyrst og fremst áhyggjum í London en í Talíu fær hennar innri maður að njóta sín. Hún lendir þar vegna þess að henni er ætlað hlutverk, rétt eins og Luc- ien var ætlað hlutverk í fyrstu bók- inni. Hún kynnist fjöldanum öllum af fólki, góðu og slæmu og hún hittir Luciano sem eitt sinn var Lucien ásamt vinum hans og óvinum úr úr fyrsta bindi þríleiksins. Auk þess kemst hún í tæri við Chimici ættina, sem nú kveður meira að en áður, en sú ætt er hliðstæða hinnar voldugu Medici ættar frá Flórens (Blóma- borginni). Georgía á erfitt í London nú- tímans þar sem hún á í höggi við al- varlegt einelti stjúpbróður síns og á fáa vini. Gleði hennar er hins vegar áhugi á hestum og reiðmennsku sem hvort tveggja nýtist henni vel í Talíu og þar nýtur hún sín svo um munar. Það er einnig augljóst að höfundur kann á hesta og reiðmennsku. Það er líka alveg sérstakt hvernig Mary Hoffman setur sig inn í hugarheim og samskipti nútímakrakka en sýnir jafnframt hvernig mannlegt eðli er hið sama í aldanna rás. Galdur bók- anna er þó fyrst og fremst fólginn því hvernig höfundur lætur persón- urnar finna sjálfar hin sönnu gildi lífsins og hvað skiptir máli í sam- skiptum. Þetta gerir hún til dæmis í gegnum lýsingar á því hvernig ung- lingarnir upplifa fegurð hluta, orða og lista. Í Stjörnuborginni snýst allt um vængjuðu hryssuna, gljáandi svarta og boðbera hins æðra, hins góða og hins dulúðuga. Það eru vandfundnar bækur fyrir unglinga af báðum kynjum á breið- um aldri sem eru jafn spennandi, jafn djúphugsaðar og jafn aðgengi- legar og Stravaganzabækur Mary Hoffmann. Við hlökkum til þess að fá Blómaborgina að ári. Heimsmyndin víkkuð BÆKUR Skáldsaga eftir Mary Hoffman. Þýðing: Halla Sverr- isdóttir. 458 bls. Mál og menning 2005 Stravaganza Stjörnuborgin Hrund Ólafsdóttir FÁMENNI stækkar, fjölmenni smækkar. Í fámennri sveit verða flestir ef ekki allir að vera bæði gef- endur og þiggjendur. Gildir það ekki hvað síst þegar menningarmálin eru annars vegar. Í formála bókar þess- arar er Jón Jens kallaður sveit- arskáld Önfirðinga. Áður hafi Guð- mundur Ingi borið það heiti – reyndar titlaður héraðsskáld. Hann hafi á sínum tíma flutt sérstakan þorrabrag á árlegu þorrablóti hreppsbúa. Þegar hann hafi ekki lengur treyst sér til að hefja þar upp raust sína sakir aldurs hafi hann falið Jóni Jens að taka við. En því aðeins hafi hann farið þess á leit að Jón Jens hafi áður verið kunnur fyrir gam- ankveðskap og því tilvalinn í hlut- verkið. Þrír slíkir þorrabragir eru birtir í bók þessari. Jón Jens stígur þar fram með hógværð og lítillæti en leysir síðan hlutverk sitt eins og til var ætlast. Sá var þó aðstöðumunur forvera og eftirmanns að Guðmundur Ingi hafði þegar verið þjóðkunnur frá unga aldri er hann lét af hlutverki sínu en Jón Jens hefur ekki enn hafið sig upp á bekkinn þann, hvað sem síð- ar verður. Ekki vantar að sveitungar hans meti framlag hans að verð- leikum; það má ráða af inngangs- orðum bókarinnar. En þjóðfélagið hefur breyst frá því er Guðmundur Ingi sendi frá sér fyrstu bækur sínar á fjórða áratug liðinnar aldar. Sveita- lífið er ekki lengur sá kjarni þjóðlífs- ins sem þá var, nokkru meira þarf en gamankveðskap til heimabrúks ef sveitarskáld á að brjótast út fyrir girðingar þær sem fámennið í heima- högum markar honum. Yrkisefni sín grípur Jón Jens upp úr dægurmálunum á hverjum tíma, fyrst og fremst á landsvísu en lítillega einnig á heimsvísu. Sjónhringur hans er þannig nokkuð víður og síður en svo einskorðaður við heimahaga þó þeir komi líka við sögu. Margt hvað er tilefnið háalvarlegt en eigi að síður þess eðlis að henda megi á lofti mis- sagnir eða mótsagnir í alvörunni – orð eða setningar sem síðan er hægt að teygja og toga og varpa síðan fram sem skemmtiefni, oftar en ekki með smávegis heimalöguðum útúrsnún- ingi. Skýringar fylgja flestum kvæð- unum til að lesandanum megi skiljast hvar fiskur liggur undir steini. Kvæð- iskorni, sem skáldið kallar Hagstæð kjör, fylgja t.d. þessi inngangsorð: »Í fréttabréfi frá Kaupfélagi Vestur- Húnvetninga á Hvammstanga haust- ið 2003 var prentvilla á þann veg, að boðað var að uppgjör vegna slátrunar þá um haustið skyldi fara fram strax haustið áður.« Í útleggingu Jóns Jens hljóðar þetta svo: Nú búast má við að bændum fækki og breytist héruð í eyðilönd, með því að kjötverðið lækki og lækki og lítið fáist í aðra hönd. En Húnvetningar, þeir hafa trúna, og hjálpa bændunum svikalaust, því allt það kjöt sem er innlagt núna, það á að borga í fyrrahaust. Ekki er þó talin ástæða til að út- skýra hvaðeina með þessum hætti. Laxamál nefnist til að mynda kvæði, ort vegna frétta, sannra og ýktra, að eldislax hefði sloppið úr kví austur í Mjóafirði. Þar bregður svo við að Jón Jens lætur »letið« ríma á móti »net- ið«. Hvað skyldi nú svo furðulegt orð eiga að fyrirstilla? Undirskrifaður lít- ur svo til að það hljóti að standa fyrir »litið«. En hvað er skáldið þá að fara? Vafalaust að herma eftir flámælinu sem Austfirðingar voru svo þekktir fyrir á árum áður! Þorrakvæðunum fylgja ekki útskýringar; þyrftu enda að vera bæði margar og ýtarlegar ef ókunnugum ætti að skiljast hvað ver- ið er að fara. Til dæmis eru sveitung- arnir nefndir þar með nafni, þeir sem við sögu koma. Upplýst er að vinir skáldsins hafi beitt sér fyrir að þessi ljóðmæli Jóns Jens kæmust á prent. Það er vel því sveitarskáld gerir meira en að stytta stundir vinum og nágrönnum í stórafmælum og þorra- blótum. Hann er með nokkrum hætti annálaritari sveitar sinnar. Kápu- mynd, tekin í logni og sólskini á fögr- um sumardegi þar sem sýn gefur til sjávar og fjalla, hæfir sem best inni- haldi bókarinnar. Gamanmál BÆKUR Kvæði Gamankvæði og tækifærisvísur eftir Jón Jens Kristjánsson. 62 bls. 2005 MILLI FJALLS OG FJÖRU Erlendur Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.