Morgunblaðið - 02.01.2006, Side 26
26 MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Kristín Sigurð-ardóttir Gjøe
fæddist í Reykjavík
14. febrúar 1952.
Hún lést á heimili
sínu í Hellerup í
Danmörku 25. des-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hennar
eru Ragna Blandon
f. 1. janúar 1924 og
Sigurður Haukur
Lúðvígsson f. 12.
febrúar 1921. Syst-
ur hennar eru Ingi-
gerður, f. 1944,
Ragnheiður, f. 1948 og Louisa
Ragna, f. 1963.
Eftirlifandi maður Kristínar er
Mogens Kayser Gjøe, f. 8. septem-
ber 1947. Foreldrar hans eru Gud-
run og John Kayser Gjøe. Börn
Kristínar og Mog-
ens eru Dennis, f.
1980 og Nikolaj, f.
1984.
Kristín stundaði
nám við Verslunar-
skóla Íslands 1967–
71, starfaði á Post-
giro um 10 ára skeið
og síðustu 20 árin
sem ritari hjá Ráð-
herranefnd Norður-
landa í Kaupmanna-
höfn.
Minningarathöfn
um Kristínu verður í
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag
og hefst hún klukkan 15.
Útför Kristínar fer fram frá
Grundtvigskirke á Bispebjerg í
Danmörku laugardaginn 7. jan-
úar og hefst athöfnin klukkan 13.
Hlátur, gleði, glampi í augum, eld-
rautt krullað óstýrilátt hár. Kvik í
hreyfingum tiplandi á háum pinna-
hælum, heimskona, dugnaðarforkur,
trygg vinkona. Þessi atriði eru nokk-
ur af ótal mörgum sem komu upp í
huga okkar saumaklúbbssystra
Kristínar er ljóst var að okkar beið
að skrifa um hana minningarorð.
Saumaklúbburinn sem stofnaður
var haustið 1968 í 2. bekk í Versló
hefur orðið fyrir miklum missi á sl.
þremur árum. Við höfum horft á eft-
ir tveimur orkumiklum vinkonum,
fyrst Hrafnhildi Sigurðardóttur og
nú Kristínu sem báðar hafa látist
langt um aldur fram. Það er erfitt og
einkennileg tilfinning að standa
frammi fyrir því að hafa misst þær
báðar. Við erum harmi slegnar, við
fimm sem eftir stöndum.
Kristín kynntist Mogens sumarið
1970 er hún og Hildur gerðust vinnu-
konur sumarlangt í Danmörku. Í
febrúar 1971 kom Mogens til Íslands
eins og riddari á hvítum hesti með
trúlofunarhringa í farteskinu og
festi sér stúlkuna. Þótti okkur vin-
konunum þetta óendanlega róman-
tískt. Sama vor flutti Kristín til
Kaupmannahafnar og hefur búið þar
síðan. Kristín og Mogens giftu sig
heima á Íslandi sumarið 1972 og
eignuðust síðar drengina sína tvo, þá
Dennis og Nikolaj sem hún var ákaf-
lega stolt af.
Þó að Kristín ætti heimili í Köben
var hún áfram í saumaklúbbnum
okkar og var alltaf slegið upp klúbb
þegar hún kom til landsins sem var
nokkuð oft. Með henni kom alltaf
ferskur heimskonublær inn í okkar
litla hóp. Sumarið 1983 hélt hópur-
inn til Kaupmannahafnarí sauma-
klúbb og hýsti Kristín okkur allar í
húsinu sínu. Mogens þótti líklega
nóg um fyrirferðina og rassaköstin í
kellunum en okkur þóttu endurfund-
irnir yndislegir. Í þá daga var ekki
eins sjálfgefið að stökkva milli landa
og nú er. Þessi ferð varð sú fyrsta af
ótal ferðum sem við höfum farið
saman til útlanda, stundum bara við
stelpurnar en nokkrar ferðir með
körlunum okkar. Alltaf nema einu
sinni kom Kristín frá Kaupmanna-
höfn á þann áfangastað sem við völd-
um og hitti okkur og var það ómet-
anlegt. Hún hafði ennfremur
óendanlegt úthald á kvöldin og
fannst við hinar stundum úthaldslitl-
ar og fara fullsnemma að sofa. Síðast
fórum við saman til Madrídar í maí
2005 og eigum við ómetanlegar
minningar úr þeirri ferð.
Kristín hefur alltaf verið hrókur
alls fagnaðar og naut sín vel í
veislum og öðrum mannfagnaði. Hún
var einnig einstaklega rausnarlegur
gestgjafi og hafði gaman af því að út-
búa veislur sem voru ófáar á heimili
þeirra Mogens og lagði mikla
áherslu á öll smáatriðin. Þrátt fyrir
mjög mikla vinnu undanfarin ár gaf
hún sér tíma til að læra blóma-
skreytingar ásamt Susan vinkonu
sinni og þar komu listrænir hæfileik-
ar hennar mjög vel í ljós.
Kristín var geislandi og glæsileg
kona, alltaf fallega klædd með fallegt
skart og vel tilhöfð. Hvar sem Krist-
ín kom vakti hún athygli fyrir skóna
sína sem voru ótrúlega glæsilegir
með háum pinnahælum. Hún tiplaði
léttfætt um stræti stórborga dag-
langt á slíkum skóm án þess að finna
fyrir því en við hinar vorum sárfætt-
ar og lúnar á okkar „skynsamlegu“
götuskóm. Það var ótrúlega gaman
að fara með henni í skóbúðir, enda
átti hún ekki langt að sækja áhug-
ann, því foreldrar hennar ráku um
árabil skóverslunina Víf á Laugavegi
11.
Kristín vann í tæp 30 ár hjá Nor-
rænu ráðherranefndinni í Kaup-
mannahöfn. Hún var hörkudugleg til
vinnu, vel liðin af öllum og hafði yf-
irgripsmikla þekkingu á þeim mál-
efnum sem snertu starfssvið hennar.
Hún var mjög ánægð með starfið
sitt, það gaf henni einnig mikið og
hún naut sín vel.
Í ferðinni okkar til Madrídar í vor,
var Kristín farin að finna fyrir veik-
indum sínum en lét það ekki á sig fá.
Hún og Mogens komu heim í sumar
og áttum við þá yndislega stund með
þeim ásamt eiginmönnum okkar.
Fljótlega eftir það veiktist hún hast-
arlega og var mikið á sjúkrahúsi í
kjölfarið. Við fylgdumst vel með
henni, hringdum reglulega og
nokkrar okkar heimsóttu hana á
spítalann.
Við kveðjum Kristínu okkar kæru
vinkonu með harm í hjarta. Við
þökkum Guði fyrir að hafa átt hana
og hennar tryggu vináttu. Við sökn-
um hennar.
Við vottum fjölskyldu hennar allri
okkar dýpstu samúð.
Við kveðjum Kristínu með sömu
orðum og við kvöddum Hrafnhildi
fyrir þremur árum
Hneig eyra þitt, Drottinn,
og bænheyr mig,
því að ég er hrjáður og snauður.
(Davíðssálmur 86,1.)
Alma, Áslaug, Guðlaug,
Hildur og Margrét.
„Ég fer ekki að gefast upp núna
fyrst ég er komin þetta langt,“ sagði
Kristín þegar ég hringdi í hana í
byrjun desember, næstsíðasti dagur
geislameðferðarinnar runninn upp
og hún var á leiðinni heim af spít-
alanum. Það var ekki í hennar anda
að gefast upp eða bera sig illa en lík-
aminn var ekki eins seigur og andinn
og hún lést á heimili sínu að morgni
jóladags 2005 eftir harða baráttu síð-
ustu mánuði.
Það er svo margt sem kemur í
hugann þegar elsku besta vinkona
mín er horfin en um leið er mér orða
vant. Minningabrotin hrannast upp:
Stelpan með eldrauða hárið og
glettnina í augunum sem heillaði alla
hvar sem hún kom, gat svo margt og
kunni svo margt. Samt hafði hún
ekki trú á sjálfri sér og var alltaf
duglegri að finna kosti annarra en
sína eigin. Við tvær, dansandi tangó
með tilþrifum eftir ganginum í „nýja
húsinu“ í Versló, orðnar of gamlar til
að láta eins og kjánar en galsinn var
mikill og okkur stóð rétt á sama hvað
samnemendum okkar fannst. Sum-
arið 1970 þegar við fórum saman til
Danmerkur til að vinna á búgarði
vinafólks foreldra minna, vorum þar
saman heilt sumar upp á hvern dag,
deildum saman herbergi og sögðum
hvor annarri trúnaðarsögur á kvöld-
in. Á þessum mánuðum bundumst
við þeim sterku vináttuböndum sem
stóðu alla tíð síðan.
Vikuna áður en við snerum til Ís-
lands þetta sumar hitti Kristín ást-
ina í lífi sínu, hann Mogens. Hann lét
fjarlægðina og stutt kynni ekki aftra
sér og skrifaði henni daglega bréf í
marga mánuði. Pósturinn í hverfi
Kristínar var orðin svo kunnug þess-
um bréfum að einn daginn þegar
ekkert bréf barst spurði hún móður
Kristínar, hvort slitnað hefði upp úr
sambandinu! Svo var þó ekki heldur
birtist Mogens í eigin persónu með
hringa í farteskinu og þau trúlofuðu
sig á 19 ára afmælisdegi hennar.
Sama vor flutti Kristín til Danmerk-
ur þar sem hún bjó alla tíð síðan. Ég
heimsótti hana sama sumar og man
hvað mér þótti litla íbúðin þeirra
rosalega flott og hvað hún var stolt
yfir því að vera farin að búa.
Kristín hóf fljótlega störf, fyrst
hjá Postgiro og síðan hjá Norrænu
ráðherranefndinni þar sem hún
starfaði sem ritari til dauðadags.
Meiri dugnaðarfork er varla hægt að
finna og var hún margra manna
maki til vinnu. Þrátt fyrir ýmsa
krankleika eins og alvarlega heyrn-
arskerðingu, hjartagangráð, brjósk-
los og krabbamein sinnti hún starfi
sínu öll árin af aðdáunarverðum
dugnaði. Öfugt við marga aðra sem
eru heyrnarskertir fór hún ekki
leynt með það heldur fannst betra að
fólk vissi af því til þess að það gæti
tekið tillit til þessarar fötlunar henn-
ar. Aftur á móti kom fyrir oftar en
ekki að yfirmenn hennar, samstarfs-
menn og vinir gleymdu að taka tillit
til þess vegna þess að hún var svo
dugleg að bjarga sér.
Kristín var ein af örfáum starfs-
mönnum sem höfðu langan starfs-
aldur hjá ráðherranefndinni og var
því iðulega leitað til hennar til að
leysa úr hinum ýmsu vandasömu
málum. Hún var mjög trygg vinnu-
stað sínum og yfirmönnum og tók
iðulega á sig of mikla vinnu vegna
samviskusemi sinnar. Þó svo að hún
gerði sér grein fyrir að vinnudag-
urinn væri alltof langur og álagið
væri mikið átti hún erfitt með að
segja nei, en taldi sjálfri sér og öðr-
um alltaf trú um að nú færi þetta að
lagast. Svo trygg var hún vinnu-
staðnum að meira að segja fárveik
talaði hún um að hún myndi fljótlega
snúa aftur til vinnu og að hún von-
aðist til að geta mætt á ráðherra-
fundinn sem haldinn var á Íslandi í
október sl. þó að hún gerði sér smám
saman grein fyrir að hún gæti ekki
undirbúið hann.
Við Bjarni vottum Mogens, Denn-
is, Nikolaj, Rögnu, Sigurði, systrun-
um og fjölskyldunum öllum samúð
okkar.
Men – veninde – om du vidste
om et hjertes dumme veje
idets lykke ved at eje
og dets skælven for at miste.
Å, du ved det? Også dine
kære smil har drukket skygge?
Også al din lyse lykke
har en underbund af pine?
Men så ræk mig dine hænder,
og jeg sværger – nej, jeg smiler,
for det er, som lykken siler
over to af sine venner.
(Nis Petersen.)
Hildur Friðriksdóttir.
Látin er fyrir aldur fram elskuleg
æskuvinkona og bekkjarsystir í Mið-
bæjarskólanum og Versló til marga
ára. Við Kristín vorum nágrannar í
Þingholtunum og samferða í bekk
frá því að við stóðum vart út úr hnefa
og allt til þess að við vorum orðnar
gjafvaxta 18 ára stúlkur, en þá
kynntist hún mannsefni sínu og flutti
í kjölfar þess til Danmerkur og sett-
ist þar að.
Kristín var orkuboltinn í bekknum
okkar. Auk þess að vera góður
námsmaður var hún ætíð fremst í
leikfimi, sundi og öllu sem sneri að
líkamlegu atgervi. Í æsku var það
hún sem dró mig út að leika á björt-
um sumarkvöldum og það var enda-
laust hoppað í teygjutvist og snú,
snú. Það var alltaf skemmtilegt að
vera með Kristínu. Við fórum á
Grettisgöturóló, því þar voru hæstu
vegasöltin. Á vetrum voru það skaut-
arnir og Tjörnin í Reykjavík sem
heilluðu. Á eftir fórum við stundum
heim til hennar og fengum kókómalt
sem var mikill munaður í þá daga.
Báðar vorum við einstaklega ljós-
ar á húð og saman biðum við eftir því
að vera „pikkaðar“ út og sendar í
ljós, sem var gert í þá daga til að
gera börn hraustari. Alltaf þótti okk-
ur þetta jafnfyndið, því ekki var
heilsuleysi þá fyrir að fara, við vor-
um einfaldlega með ljósari húð en
flestir hinna. Til að fá tímann til að
líða skrifuðum við oft ósýnilega
skrift á bakið hvor á annarri og
reyndum svo að geta hvað var skrif-
að.
Mér er það minnisstætt þegar hún
eignaðist litla systur þegar við vor-
um komnar sjálfar á aldur til að
passa börn. Það fór ekki af henni
brosið í marga daga enda varð
Louisa yndi hennar og eftirlæti.
Eftir að hún flutti til Danmerkur
hittumst við ekki oft en það voru
miklir fagnaðarfundir þegar það
gerðist, því strengir sem myndast á
æskuárum rofna í raun aldrei. Í síð-
asta útskriftarafmæli, faðmaði hún
mig svo hraustlega að gleraugun
fuku af mér.
Kristín hafði óvenjulega sterka
nærveru og það er mikill missir að
slíku fólki. Ég votta öllum þeim sem
eiga um sárt að binda vegna fráfalls
hennar mínar innilegustu samúð um
leið og ég þakka henni allt. Hvíl þú í
friði, kæra æskuvinkona.
Margrét Auðunsdóttir.
KRISTÍN SIGURÐAR-
DÓTTIR GJØE
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Ástkær dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ELÍSABET JÓHANNA SIGURBJÖRNSDÓTTIR
(Hanna Beta),
Gnoðarvogi 20,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju miðviku-
daginn 4. janúar kl. 13.00.
Sigríður María Tómasdóttir,
Garðar Skúlason, Guðrún Kristinsdóttir,
Gísli Skúlason, Áslaug Baldursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
INGIMUNDAR ÓLAFSSONAR
kennara,
Langholtsvegi 151,
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
4. janúar kl. 13.00.
Ingibjörg Guðlaugsdóttir,
Böðvar Ingi Ingimundarson, Halldóra Guðmundsdóttir,
Ólafur Örn Ingimundarson, Guðrún Þorsteinsdóttir
og afabörn.
Okkar elskulega
AÐALBJÖRG S. GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Mosfelli,
Hlíðarvegi 46,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju miðviku-
daginn 4. janúar kl. 15.00.
Bjarki Bjarnason, Þóra Sigurþórsdóttir,
Sif Bjarnadóttir, Hilmir Þór og Ásbjörn Ibssynir,
Ýr Þórðardóttir, Hlynur Þórisson,
Bjarni Bjarkason, Þóra Björk Gísladóttir,
Vilborg Bjarkadóttir, Guðmundur Bjarkason,
Aðalbjörg Egilsdóttir, Óskírður Hlynsson.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Myndir Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
er ráðlegt að senda hana á
myndamóttöku: pix@mbl.is og
láta umsjónarmenn minningar-
greina vita.
Minningar-
greinar