Morgunblaðið - 02.01.2006, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 02.01.2006, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 29 Smáauglýsingar Námskeið Reykstopp árið 2006 Sjálfstyrking - reykstopp - frelsi frá streitu og kvíða. Notuð er m.a. EFT (Emotional Freedom Techniques) og dáleiðsla (Hypnotherapy). Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslu- fræðingur, sími 694 5494, www.EFTiceland.com . Til sölu Bílamottur - snjómottur í miklu úrvali. 20% afsl. í desember. Póstsendum samdægurs. G.S. varahlutir ehf., Bíldshöfða 14, sími 567 6744. Ýmislegt Fjarnám á vorönn 2006. Þriðja og fjórða árið á stúdentsbrautum. 30 rúmlesta skipstjórnarréttindi. Allir áfangar í WebCT. Námið kostar einungis 4.250 krónur á önn fyrir utan náms- gögn. Skráning á vef skólans. Umsóknarfrestur til 12. janúar. www.fas.is . Sími 470 8070. fas@fas.is . Skólameistari. Bílar Toyota Avensis Wagon, 1,8 sjsk., árg. '03, ek. 49 þús. ABS hemlar, fjarstýrðar samlæsingar, hiti í sætum, litað gler o.fl. 1.800 þús. kr. stgr. S. 861 8691. Til sölu VW Caravella TDI langur 4 dyra,11 manna, framhjól- adrif, 2500 cc, dísel. Uppl. í s. 892-1818/462-1224 Til sölu Jeep Grand Cherokee Limited 4,7, V8, árg. 2003, keyrður 38.000 km (24.000 m). Nánari upplýsingar veitir Helgi Bragason gsm 893 1068 Nissan Almera 4 SLX.1600 Bíllinn minn er til sölu árg. 1996, lítið keyrður aðeins 130.000 km. Sjálfskiptur, rafmagn í rúðum, sumar- og vetrardekk. Skoðaður án athugasemda, mjög vel hugsað um hann að öllu leyti. Upplýsingar í síma 694 2326. Ökukennsla Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla akstursmat. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat, '05 892 4449/557 2940. Vagn Gunnarsson Mersedes Benz, 894 5200/565 2877. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '02, 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza, 696 0042/566 6442. Gylfi K. Sigurðsson Suzuki Grand Vitara, 892 0002/568 9898. Snorri Bjarnason BMW 116i, nýr, 892 1451/557 4975. Glæsileg kennslubifreið, Subaru Impreza 2004, 4 wd. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, símar 696 0042 og 566 6442. JÓLASKÁKMÓTIÐ í Hastings var eitt þekktasta og virtasta al- þjóðaskákmótið fyrir og um miðja síðustu öld. Í efsta flokki tefldu þá 10 skákmeistarar og þótti mikill heiður að fá boð um að tefla þar, enda tefldu flestir sterkustu skákmenn heims á því tímabili einu sinni, eða oftar, í Hastings. Mótin hafa reynst íslenskum skák- meisturum happadrjúg. Í Hastings hóf fyrsti stórmeistarinn okkar, Friðrik Ólafsson, frægðarferil sinn og Guðmundur Sigurjónsson og Margeir Pétursson náðu lokaáfanga að stórmeistaratitli þar. Mótið, sem nú er nýhafið, er 82. Hastingsmótið frá upphafi. Það stendur frá 28. desember til 6. jan- úar, tefldar verða 10 umferðir, eftir svissneska kerfinu, og eru tíma- mörkin 80 mín. á fyrstu 40 leikina og 20 mínútur til að ljúka skákinni, með 1 mínútu viðbótartíma á hvern leik frá byrjun. Efsti flokkur er breyttur, því að lokaði úrvalsflokkurinn var lagður af á síðasta ári og teflt með útsláttar- fyrirkomulagi, en núna tefla 100 skákmeistarar í efsta flokki (Hast- ings Masters) um Golombek verð- launastyttuna. Íslensku þátttakendurnir eru fimm, þeir Stefán Kristjánsson og Jón Viktor Gunnarsson, alþjóðlegir meistarar, Snorri G. Bergsson, FIDE-meistari, Dagur Arngrímsson og Guðmundur Kjartansson. Þeir hafa byrjað vel. Eftir tvær umferðir hefur Stefán 2 vinninga, Snorri og Dagur 1½ v., og Jón Viktor og Guð- mundur 1 v. Dagur er með jafntefli við sterkan úrkraínskan stórmeist- ara, Kuzubov, og tap Jóns Viktors er gegn stigahæsta manni mótsins, rússneska stórmeistaranum, Belov, sem varð efstur í úrvalsflokki í Hast- ings í fyrra. Segja má, að Snorri, aldursforset- inn í hópnum, hafi gefið tóninn, með 1½ vinningi við tvo stórmeistara. Við skulum nú sjá sigur hans á hinum reynda skoska stórmeistara, Colin McNab, sem tefld var í 1. umferð mótsins. Hvítt: Colin McNab (Skotlandi) Svart: Snorri G. Bergsson Enski leikurinn 1.c4 Rf6 2.Rf3 c6 3.Rc3 d5 4.e3 Bg4 5.Be2 e6 6.b3 – Nýr leikur, en venjulega hrókar hvítur stutt í þessari stöðu. Rbd7 7.Bb2 Bd6 8.h3 Bxf3 9.Bxf3 Da5 10.a3 dxc4 11.bxc4 Re5 12.Be2 Rg6 13.Dc2 Hd8 14.d4 Dg5 15.0– 0–0!? – Leikið í þeirri von, að ná sókn á kóngsvæng, eftir að svartur tekur peðið á g2, en það var aldrei ætlunin. 15...Da5 16.c5 Bb8 17.f4 Re7 18.Bf3 Rfd5 19.Rxd5 cxd5! 20.Hd3 0–0 21.Hc3 Hc8 22.Kb1 Dd8 23.Hc1 Rc6 24.Be2 Bc7 25.f5 – Þessi leikur er svarti í hag, en hvítur finnur enga aðra leið til að sækja að svarta kóngnum. 25.— e5 26.Hb3 Dg5 27.g4 Ra5 28.Hc3 Rc6 29.Hd1 e4 Svartur verður fyrr, eða síðar, að leika þennan leik, t.d. 29...Hfd8 30.Bb5 a6 31.Bf1 Ra5 32.Ka2 e4 o.s.frv. 30.Db3 Ba5 31.Hc2 Hfd8 32.Hh1? – Ekki verður annað séð en hvítur megi taka peðið á b7, t.d. 32.Dxb7 Hc7 33.Da6 Hb8 34.Bb5 Hxb5 35.Dxb5 Dxe3 og svartur hefur tæp- lega nægar bætur fyrir skiptamun- inn, sem hann fórnaði. 32...Dh4 33.Bb5 Re7 34.Ka2 a6 35.Bf1 Hd7 36.Bg2 Rc6 37.Hf1 He8 38.Da4 Dg3 39.He2 Hb8 40.Bc1 b5 41.cxb6 Hxb6 42.Hc2 h6?! Taflmennska beggja hefur verið nokkuð óörugg síðustu 10-12 leikina og má trúlega kenna tímahraki um. Nú sofnar Snorri á verðinum í mun betri stöðu og gefur andstæðingi sín- um kost á jafnteflisleið. Sjálfsagt var að leika 42...Hc7 o.s.frv. 43.Hff2? – McNab missir af 43.Bxe4! dxe4 44.Hxc6 Hxc6 45.Dxc6 Dg2+ 46.Bb2 Dxf1 47.Dxd7 Dc4+ 48.Ka1 Df1+ 49.Ka2 Dc4+ 50.Ka1 Df1+, með jafntefli. 43...Hdb7 44.Hfe2 Dd6 45.Hc5 Hb5 Enn betra er 45...Dd7! 46.Dd1 (svartur hótar 46.– Rb4+ og eftir 46.Hxa5? Rxa5 47.Dxa5 Dc8! á svart- ur unnið tafl) 46.Dd1 Bb4! 47.axb4 Rxb4+ 48.Ka1 Rd3 49.Dc2 Hb3 og það verður fátt um varnir hjá hvíti. 46.Hec2 Hxc5 47.Hxc5 Hb6 48.Hxa5? – Skoska stórmeistaranum hefur greinilega yfirsést framhaldið, en eftir 48.Dd1 hefði hann getað beðið og vonað það besta. 48...Rxa5 49.Dxa5 Dc7! 50.Dd2 Dc4+ 51.Ka1 Hb3! 52.h4 Hd3 53.De1 – Hvítur sparar sér miklar þjáning- ar í vonlausu endatafli, sem upp gat komið, eftir 53.Bf1 Hxd2 54.Bxc4 Hc2 55.Bxd5 Hxc1+ 56.Kb2 He1 57.Bxe4 Hxe3 58.Bb7 a5 o.s.frv. 53...Dc2 og hvítur gafst upp, því að hann á enga vörn við hótuninni 54.—Hd1. Það hefur verið teflt geysimikið hér á landi yfir hátíðarnar og verður hér á eftir gefið stutt yfirlit yfir nokkur skákmót. 9. Jólapakkamót Hellis 140 krakkar tóku þátt í Jólapakka- móti Hellis í Ráðhúsi Reykjavíkur 18. desember s.l. Fjöldi jólapakka voru veittir bæði í stelpu- og stráka- flokkum. Bæði fyrir efstu sætin og heppna keppendur. sem voru dregn- ir út. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, setti mótið og lék fyrsta leikinn. Efstu krakkar í flokkunum fjórum voru: Fædd 1990-92 Strákar 1. Daði Ómarsson, 5 vinninga. 2. Matthías Pétursson, 4½ v. 3. Vilhjálmur Pálmason, 4 v. Stelpur 1. Júlía Guðmundsdóttir, 3½ v. 2. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir, 3 v. 3. Tinna Kristín Finnbogadóttir, 3 v. Fædd 1993-94 Strákar 1. Hjörvar Steinn Grétarsson, 5 v. 2. Mikael Luis Gunnlaugsson, 4 v. 3. Eiríkur Örn Brynjarsson, 4 v. 4. Svanberg Már Pálsson, 4 v. 5. Hörður Aron Hauksson, 4 v. 6. Páll Andrason, 4 v. Stelpur 1. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, 4 v. 2. Brynja Vignisdóttir, 3 v. 3. Stefanía Bergljót Stefánsdóttir, 3 v. 4. Ingibjörg Ásbjörnsdóttir, 3 v . 5. Elísabet Ragnarsdóttir, 3 v. Fædd 1995-96 Strákar 1. Friðrik Þjálfi Stefánsson, 4½ v. 2. Guðmundur Kristinn Lee, 4½ v. 3. Brynjar Ísak Arnarsson, 4½ v. 4. Dagur Andri Friðgeirsson, 4½ v. Stelpur 1. Hrund Hauksdóttir, 4 v. 2. Hekla María Friðriksdóttir, 2 v. 3. Hanna María Geirdal, 2 v. 4. Arndís Lea Ásbjörnsdóttir, 2 v. 5. Sædís Björk Jónsdóttir, 2 v Fædd 1997 og síðar Strákar 1. Daníel Hákon Friðgeirsson, 4½ v. 2. Jón Trausti Harðarson, 4 v. 3. Kristófer Dagur Sigurðsson, 4 v. Stelpur 1. Hildur Berglind Jóhannsdóttir, 2½ v. 2. Karítas María Þrastardóttir, 2 v. 3. Unnur Elíasbet Eiðsdóttir, 2 v. 4. Dilja Guðmundsóttir, 2 v. Garðabær sigraði á Garðatorgsmótinu Arnar E. Gunnarsson, sem tefldi fyrir Garðabæ, sigraði á Garðatorgs- mótinu, Firmakeppni Taflfélags Garðabæjar, sem fram fór 22. des- ember sl. 21 keppandi tefldi fyrir jafnmörg fyrirtæki á mótinu og fékk Garða- bær í verðlaun farandbikar, gefinn af fyrirtækinu Ísspor. Tefla þurfti til úrslita, því að þrjú fyrirtæki urðu jöfn í efsta sætinu: Garðabær, Ris ehf (Magnús Örn Úlf- arsson) og Garðablóm (Björn Þor- finsson), hlutu 6 vinninga af 7 mögu- legum. Aðalvinningurinn og aukavinning- ur, sem var flugeldapakki, voru í boði TG, Plúsferða og Hjálparsveitar Skáta í Garðabæ, en einnig kom Páll Ingólfsson frá framboði Páls Ingólfs- onar færandi hendi með fjölmarga gómsæta aukavinninga. Röð efstu fyrirtækja var eftirfar- andi: 1. Garðabær (Arnar Gunnarsson), 6 v. (+1½ í aukakeppni) 2. Ris ehf (Magnús Örn Úlfarsson), 6 v. (+1 í aukakeppni) 3. Garðablóm (Björn Þorfinnsson), 6 v. (+ ½ í aukakeppni) 4. Sparisjóður Hafnarfjarðar (Hjörvar Steinn Grétarsson), 4½ v. 5.-9. Grand hótel (Ólafur Kjartansson), 4 v. Garðatorg Eignamiðlun (Stefán Kristjánsson), 4 v. Mjólkurbú Flóamanna (Jóhann Ingvarsson), 4 v. Opin Kerfi (Atli Freyr Kristjánss.), 4 v. Ísspor ehf (Svanberg Már Pálsson), 4 v. Arnar E. Gunnarsson jólasveinn TK Hið árlega jólaskákmót Taflfélags Kópavogs var teflt í fertugasta skipt- ið 26. desember sl. Sigurvegari varð Arnar E. Gunnarsson og hlaut þar með hinn virðulega titil, Jólasveinn Taflfélags Kópavogs 2005. 20 þátttakendur voru á mótinu og urðu efstu menn þessir: Arnar E. Gunnarsson, 17½ v. af 19 mögul. Bergsteinn Einarsson, 17 v. Hrannar Baldursson, 16½ v. Hlíðar Þór Hreinsson, 15½ v. Hjörvar Steinn Grétarsson, 14 v. Lenka Ptatnikova, 14 v. Halldór Brynjar Halldórsson sigraði á Jólahraðskákmóti SA Jólahraðskákmót Skákfélags Ak- ureyrar var háð 27. desember sl. Þátttakendur voru 22 og efstu menn þessir: Halldór Br. Halldórsson, 19½ v. af 21 mögul. Rúnar Sigurpálsson, 19 v. Rúnar Berg, 18 v. Ólafur Kristjánsson, 17 v. Stefán Bergsson, 15 v. Hrannar Baldursson jólasveinn TR Jólahraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur fór fram 28. desember sl. Þátttakendur voru 19 og efstu menn þessir: Hrannar Baldursson, 12½ v. af 14 mögul. Jóhann Ingvason, 11½ v. Siguður P. Steindórsson, 10 v. Daði Ómarsson, 9 v. Dagur A. Friðgeirsson, 8 v. Páll Andrason, 8 v. Að lokum óska umsjónarmenn skákþáttarins lesendum gleðilegs árs og þakka samfylgdina á árinu, sem er að líða. Fimm Íslendingar tefla í Hastings Bragi Kristjánsson SKÁK Hastings Masters Hastings, Englandi 28. desember 2005 – 6. janúar 2006 SÚREFNISÞEGUM hefur fjölg- að mjög mikið á síðustu árum eða um rúmlega 100% á fimm árum. Árið 2000 voru þeir 150 en í lok síð- asta árs nutu 305 einstaklingar slíkrar þjónustu. Á árinu 2004 fjölgaði þeim um 9%. Þetta kemur fram á vefsíðu Tryggingastofnunar ríkisins, TR. Langflestir súrefnis- þegar eru með langvinna lungna- teppu eða lungnakrabbamein en aðrir sjúkdómar koma einnig við sögu, m.a. kæfisvefn og offita. Í nýútkominni ársskýrslu Súr- efnisþjónustu TR kemur fram að súrefnisþegar eru flestir komnir á efri ár en um 200 súrefnisþegar eru fæddir á árunum 1920 til 1940. Í skýrslunni segir að súrefnisþegar með öndunarvélar hafi um síðustu áramót verið 60 talsins. Af þeim hafi 23 eingöngu þurft næturmeð- ferð en 34 þurft sólarhringssúrefni og öndunarvél, flestir vegna lang- vinnrar lungnateppu. Tveir starfs- menn sinna Súrefnisþjónustu TR, læknir og hjúkrunarfræðingur, en þjónustan nær til landsins alls. Öll- um súrefnisþegum er fylgt reglu- lega eftir, ýmist með símtölum eða heimsóknum. Í frétt TR segir að á árinu 2003 var í samvinnu við Samtök lungna- sjúklinga stofnaður hópur súrefn- isþega innan samtakanna sem hef- ur það markmið að bæta aðstöðu og lífsgæði súrefnisþega. Fram kemur í skýrslunni að súrefnisbún- aður sé í sífelldri endurskoðun og nú séu komnir í notkun svokallaðir léttkútar með hraðtengi sem eru ólíkt léttari en eldri búnaður. Súrefnisþegum fjölgar hratt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.