Morgunblaðið - 02.01.2006, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 33
DAGBÓK
YOGA •YOGA • YOGA
- RÉTT SLÖKUN losar um spennu í vöðvum, róar og kyrrir
hugann.
- LÍKAMLEG ÁREYNSLA Í ÆFINGUM. Þá styrkjum við vöðva,
liðbönd, liðamót, mýkjum hrygginn og örvum blóðrás.
- RÉTT ÖNDUN þýðir að anda djúpt og vel.
- RÉTT FÆÐI sem stjórnast af hófsemi og fjölbreytni.
- JÁKVÆTT HUGARFAR. Að beina huganum jákvætt að
verkefnum dagsins strax að morgni.
Morgun-, hádegis-, síðdegis- og kvöldtímar.
NÝJUNG - KRAFTYOGA
-KRÖFTUGAR YOGAÆFINGAR
Sértímar fyrir byrjendur
og barnshafandi
www.yogaheilsa.is • yogaheilsa@yogaheilsa.is
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, sími 588 5711 og 694 6103
www.yogaheilsa.is • yogaheilsa@yogaheilsa.is
Frá nemendasýningu í Borgarleikhúsinu
Innritun og upplýsingar
í síma 561 5620
frá kl. 13-17
www.ballett.is
Kennsla hefst
9. janúar
Gleðilegt ár!
Árlega eru gefin út hérlendis um 900 þús-und eintök af almanökum og dagatölumaf ýmsum gerðum. Elst þeirra erAlmanak Háskólans sem komið hefur
út síðan árið 1837 og er raunar annað elsta rit
sem komið hefur samfellt út á Íslandi. Einungis
Skírnir á sér lengri sögu og hefst hún tíu árum
fyrr.
Í Almanaki Háskólans má finna margvíslegan
fróðleik, auk hefðbundins dagatals. Þar eru sem
dæmi upplýsingar um sjávarföll og gang him-
intungla. Sérstakur kafli er um reikistjörnurnar
og annar um sólmyrkva og tunglmyrkva sem
verða á árinu. Þá er þar yfirlit um hnetti him-
ingeimsins, mælieiningar, veðurfar og ríki heims-
ins, svo eitthvað sé nefnt.
„Á bak við almanakið er löng hefð. Þetta er í
raun viðmiðunaralmanak sem önnur dagatöl hér-
lendis fara eftir svo það er talsverð ábyrgð sem
felst í að sjá til þess að það sem þar standi sé
rétt,“ segir Þorsteinn Sæmundsson, ritstjóri
almanaksins. Hann hefur starfað lengst allra við
útgáfu þess og hefur séð um hvorki meira né
minna en 43 árganga.
Þorsteinn segir að komið hafi fyrir, og þá sér-
staklega áður fyrr, að villur hafi verið í dagatölum
sem einkaaðilar hafi gefið út hérlendis. „Einu
sinni kom til dæmis fyrir í einni slíkri dagbók að
þorrinn var látinn hefjast á röngum degi, viku of
snemma. Sjónvarpið fór eftir þessari bók og
skipulagði sérstaka þorradagskrá. Þegar villan
uppgötvaðist var það orðið of seint og ekki hægt
að breyta því sem þegar hafði verið ákveðið,“ seg-
ir hann.
Þorsteinn bendir á að fólk rugli gjarnan saman
Almanaki Háskólans og Almanaki Hins íslenska
þjóðvinafélags.
„Þetta eru hins vegar tvö rit. Þjóðvinafélagið
fékk heimild til að taka Almanak Háskólans upp í
sitt almanak þegar það var stofnað árið 1875 og
sú venja hefur haldist síðan,“ segir hann og bætir
við að í því síðarnefnda sé til dæmis árbók Íslands
þar sem sagt sé frá atburðum ársins. Þorsteinn
var um tíma einnig ritstjóri þessa almanaks.
Almanak Háskólans má nálgast í bókabúðum
en einnig á vefnum. Tekin hefur verið upp sú ný-
lunda að bjóða fólki að gerast áskrifendur og
nálgast almanakið í gegnum tölvu. Á síðunni
www.almanak.is er hægt að skrá sig og á síðunni
www.almanak.hi.is geta allir nálgast viðbótarupp-
lýsingar sem ekki eru í sjálfu almanakinu. Yfir ár-
ið getur þurft að gera breytingar á textanum, til
dæmis ef ný tungl uppgötvast. Þarna er einnig
ýmis fróðleikur á borð við þann sem er í almanak-
inu og hægt er að lesa bæði um brandajól og
heimskautsbauginn, auk þess að fræðast um hve
stórt „hænufetið“ raunverulega sé.
Almanak Háskólans | Hefur komið út síðan árið 1837
Gefið út í 170. skipti
Þorsteinn Sæ-
mundsson fæddist árið
1935. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MR árið
1954, BSc. Hons.-prófi
frá háskólanum í St.
Andrews í Skotlandi
árið 1958 með stjörnu-
fræði sem aðalgrein og
doktorsprófi í stjörnu-
fræði frá Lundúna-
háskóla fjórum árum
síðar. Þorsteinn hóf störf við Raunvís-
indastofnun Háskólans þegar hún var
stofnuð árið 1966 og vann þar sem sér-
fræðingur, fræðimaður og vísindamaður allt
til starfsloka á þessu ári. Þorsteinn hefur
ritstýrt Almanaki Háskólans síðan árið
1963, fyrstu árin í samvinnu við Trausta
Einarsson prófessor.
Samgangsvandi.
Norður
♠852
♥KDG1093
♦K74
♣6
Suður
♠DG93
♥6
♦ÁD2
♣KDG97
Suður er sagnhafi í þremur gröndum
og fær út tígulgosa.
Hvernig er best að spila?
Útlitið er gott, nægt framboð af slög-
um og allir litir vel valdaðir. En sam-
gangurinn milli handanna er ekki alltof
greiður og því er mikilvægt að gera
hlutina í réttri röð. Fyrsti slagurinn er
að sjálfsögðu tekinn heima, en það væri
glapræði að spila hjarta í öðrum slag:
Norður
♠852
♥KDG1093
♦K74
♣6
Vestur Austur
♠Á107 ♠K64
♥75 ♥Á842
♦G1098 ♦653
♣10842 ♣Á53
Suður
♠DG93
♥6
♦ÁD2
♣KDG97
Austur drepur þá strax á hjartaás og
spilar aftur tígli. Við það lendir sagn-
hafi í alvarlegum samgangsvand-
ræðum og níundi slagurinn á lauf fer
fyrir lítið, því suðurhöndin þvingast illi-
lega þegar hjörtu blinds eru tekin.
Þessi vandræði má fyrirbyggja með
því að spila laufinu fyrst. Sem sagt:
taka á tígulás heima í fyrsta slag og
spila laufkóng. Ef austur drepur og
spilar tígli, tekur suður heima, hirðir
einn slag á lauf og sækir svo hjartað.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Bxc6
dxc6 5. 0-0 Re7 6. Rxe5 Dd4 7. Dh5 g6
8. Dg5 Bg7 9. Rd3 f5 10. e5 c5 11. b3 b6
12. Bb2 Dg4 13. De3 Rd5 14. De1 Bb7
15. f3 Dg5 16. Rc3 0-0-0 17. Rxd5 Bxd5
18. De2 f4 19. b4 c4 20. Rf2 Hhe8 21.
Hfe1 De7 22. a3 Kb8 23. d3 cxd3 24.
cxd3 g5 25. d4 h5 26. Dxa6 g4 27. De2
Bf6 28. Re4 Bh4 29. Hf1 Hg8 30. Kh1
Hdf8 31. Rd2
Staðan kom upp í heimsbikarmóti
FIDE sem lauk fyrir skömmu í
Khanty-Mansiysk í Rússlandi. Stór-
meistarinn Murtaz Kazhgaleyev
(2.601) frá Kasakstan hafði svart gegn
ofurstórmeistaranum Teimour
Radjabov (2704). 31. … Bg3! 32. Hfc1
hvítur hefði orðið óverjandi mát eftir
32. hxg3 fxg3. 32. … Dh4 og hvítur
gafst upp enda getur hann ekki umflú-
ið mátsókn svarts.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Að láta gott af sér leiða
af heilum hug
UNDANFARIÐ hef ég velt því
fyrir mér hvort við Íslendingar
séum að gera hlutina á réttum for-
sendum. Mikið hefur verið rætt um
að uppboð sem að einhverjir fyr-
irmenn héldu til styrktar Unicef
hafi ekki verið haldið af heilum
hug, heldur einungis sem auglýs-
ing fyrir þessa menn. Auðvitað er
besta auglýsingin sem við sem þjóð
getum fengið sú að við séum alltaf
tilbúin til að hjálpa öðrum, en
hjálpar það okkur ef við erum ekki
að gera það á réttum forsendum?
Í skólanum mínum gekk yfir
tískubylgja á dögunum. Í staðinn
fyrir nýjustu diesel gallabuxurnar
og i-podana komu börn sem njóta
styrktar ABC-hjálparstarfs.
Margir tóku að sér að styrkja
barn, en ekki allir af heilum hug.
Umræður sem áttu sér stað í skól-
anum snerust margar hverjar um
það hver hefði keypt flottari föt
eða leikföng handa barninu sem að
það styrkti. Mér hálfpartinn
blöskraði, fólk var farið að líta á
þessi aumingja börn sem minna
mega sín í samfélaginu í dag sem
tískufylgihluti. Það hjálpar þessum
börnum ekki neitt að eiga flottan
bol eða fallegt dót, reyndar tekur
ABC það meira að segja fram að
ekki sé viturlegt að senda þeim lit-
ríka og fallega hluti heldur séu
peningagjafir betur þegnar. Ég er
alls ekki að letja það að fólk taki að
sér barn og styrki það, svo lengi
sem fólk geri það á réttum for-
sendum. Það er auðgandi fyrir sál-
ina að vita að maður getur ein-
hverju breytt.
Ég hef í nokkur ár styrkt barn
hjá ABC, ungan strák í Úganda
sem á ekki gott líf. Á heimilinu er
enginn vinnufær og oft lítinn mat
að fá, þar kem ég til hjálpar. Ég
styrki skólagöngu hans og sé hon-
um fyrir læknisþjónustu og fæði.
Fyrir skitnar 2000 kr á mánuði.
Ég hvet því alla til að sleppa því
einu sinni í mánuði að fara í bíó og
fá sér popp og kók og eyða í stað-
inn peningnum til styrktar góðs
málefnis. Öll framlög, stór sem lítil
skipta máli. Einnig hvet ég alla til
þess að kaupa diskinn Hjálpum
þeim þar sem að stórsöngvarar
landsins taka sig saman og endur-
útgefa gamalt lag til styrktar góðs
málefnis.
Íris Bjarnadóttir nemi.
Kolfinna týndist
frá Álfheimum
KOLFINNA
týndist í lok
nóvember frá
heimili sínu í
Álfheimum.
Hún er svört
með hvítar
hosur á fram-
fótum og
hvítar tær á
afturfótum,
með hvítan smekk og hvítt nef.
Hún er eyrnamerkt en ekki með ól.
Ef einhver hefur orðið var við hana
endilega láta okkur vita í síma
553 5251.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is