Morgunblaðið - 02.01.2006, Side 40
40 MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
RUMOR HAS IT kl. 1.40 - 3.45 - 5.50 - 9 - 11.10
RUMOR HAS IT VIP kl. 9 - 11.10
CHRONICLES OF NARNIA kl. 1 -2 -3 -4 -5 -6 -7 -8 -10 -11.10
CHRONICLES OF NARNIA VIP kl. 3 - 6
KING KONG kl. 6 - 8 - 11 B.i. 12 ára.
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN kl. 3 B.i. 10 ára.
Litli Kjúllin M/- Ísl tal. kl. 1
Rumor Has It kl. 1.50 - 3.50 - 5.50 - 8 og 10.05
The Chronicles of Narnia kl. 2 - 4 - 5 - 7 - 8 og 10.45
KING KONG kl. 4 - 8 og 10 b.i. 12 ára
Harry Potter and the Goblet of Fire kl. 2 - 5 - 8 og 10.45 b.i. 10 ára
Litli Kjúllinn (Chicken Little) kl. 2 íslenskt tal
La Marche de L´empereurkl. 2
UPPLIFÐU STÓRFENGLEGAS
BYGGÐ Á SÍGILDUM ÆVINTÝRABÓKUM C.S.
Byggð á sönnum orðrómi.
Jennifer Anistion fer á kostum í þessari frábæru rómantísku gamanmynd.
Með Óskarsverðlauna hafanum Shirley MacLaine og Kevin Costner.
sýningartímar gilda fyrir 1-3 . janúar sýningartímar gilda fyrir 1-3 . janúar
C
K
JU
MORGUNBÍÓ
SAMBÍÓ ÁLFABAKKAHÁSKÓLABÍÓ
Í FYRRA var það Spaugstofan sem
réð ríkjum við gerð Áramóta-
skaupsins, nú var komið að húm-
oristum mestmegnis úr hópi
kvenna að setja mark sitt á þetta
vinsælasta sjónvarpsefni ársins.
Sem dæmi um mikilvægi þessarar
árlegu uppákomu má nefna að
þangað er farið að leita að tilnefn-
ingum og verðlaunahöfum í að-
algreinum sjálfra Edduverð-
launanna.
Ekki veit ég hvort leyndist ein-
hver hugsanlegur Edduþegi í
skaupinu 2005, en þar var einn
senuþjófur öðrum fremur og hann
er allavega Edduson. Björgvin
Franz Gíslason brá sér í allra söng-
fugla líki og stóð sig vel eins og
hann á kyn til í báða leggi.
Ferskir vindar eru nauðsynlegir
Áramótaskaupi, sem aldrei fyrr.
Lengi vel héngu menn yfir tækinu
og létu allt yfir sig ganga, innihald-
ið skipti ekki sköpum. Ein rás, einn
miðill og kylfa réð kasti um útkom-
una. Meðalskaup fær mann til að
brosa nokkrum sinnum, sjaldan til
að hlæja upphátt og þannig leið
uppákoman. Fyrir utan söngatriðin
hans Björgvins rann það óvenju há-
punktalaust hjá þó það væri sjald-
an beinlínis leiðinlegt. Það var af-
skaplega vel til fundið að setja það í
gjörgæslu kvennalandsliðsins sem
einnig myndaði rammann utan um
framvinduna. Þar með var tryggt
að yfirbragðið og húmorinn var á
öðrum nótum en oft áður.
Handritshöfundarnir héldu sig
efnislega við hefðbundna forskrift,
atburði ársins í spéspegli. Til allrar
guðs lukku hvíldu þeir áhorfendur
að mestu leyti á gömlu lummunum,
ríkisstjórninni, Bessastaðabónd-
anum og öðrum fastagestum, en
beindu spjótum sínum að öðrum
skotmörkum.
Mikið grín var gert að einhverju
sauðslegasta skemmtiefni sem sést
hefur á skjánum og nefndist við
hæfi „Íslenski batsjelorinn“. Hann
fékk þó allavega útreið þetta kvöld-
ið, þó rósirnar gengju ekki út.
Ædólið kom einnig talsvert við
sögu, þar sem Björgvin Franz fékk
að blómstra, sem fyrr greinir. Þá
var skopast lítillega að Markúsi
Erni (enda stafar lítil hætta af hon-
um lengur), Auðuni Georg (ef ein-
hver man hann). Hannesi Hólm-
steini og Jónínu Ben, Öllu í drasli
og ellilífeyrisþegum, fasteigna-
möngurum og lánastofnunum,
Oprah og Pétri Blöndal, og svo
mætti lengi telja. Minni frá liðna
árinu flugu hjá, hvert af öðru og
gleymdust yfirleitt jafnóðum.
Skaupið ’05 var ósköp smekklegt
(ef undan er skilið lánlítið skop um
færeyska gimsteininn Eivöru), satt
best að segja veit ég ekki hvort það
er lof eða last því það var jafnframt
heldur flatneskjulegt úr fjarlægð.
Eitt atriði fannst mér virka full-
komlega; bíóferð móðurinnar, kol-
ruglaðrar í skipulagshrærigraut
borgarinnar við sundin.
Glatt en frekar flatt
SJÓNVARP
RÚV
Leikstjóri: Edda Björgvinsdóttir. Handrit:
Björk Jakobsdóttir, Edda Björgvinsdóttir,
Halldóra Geirharðsdóttir, Hallgrímur
Helgason, Helga Braga Jónsdóttir, Hlín
Agnarsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Stefán Karl Stefánsson, Unnur Ösp Stef-
ánsdóttir. Stjórn upptöku: Kristín Jóns-
dóttir. Umsjónarmenn: Helga Braga Jóns-
dóttir, Kristín Pálsdóttir. Kvikmyndataka
Björn Helgason. Klipping og samsetning:
Kristín Pálsdóttir og Steinþór Birgisson.
Aðalleikarar: Björgvin Franz Gíslason,
Björk Jakobsdóttir, Edda Björgvinsdóttir,
Eggert Þorleifsson, Halldóra Geirharðs-
dóttir, Helga Braga Jónsdóttir, Hilmir
Snær Guðnason, Hjálmar Hjálmarsson,
Margrét Vilhjálmsdóttir, Ólafía Hrönn
Jónsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Unnur
Ösp Stefánsdóttir, Sólveig Arnarsdóttir,
Þórhallur Sigurðsson. Sjónvarpið 31.
des. 2005. Ísland 2005.
Áramótaskaupið Group 2005
„Meðalskaup fær mann til að brosa nokkrum sinnum, sjaldan til að hlæja
upphátt og þannig leið uppákoman,“ segir m.a. í dómi.
Sæbjörn Valdimarsson
Fáðu úrslitin
send í símann þinn