Morgunblaðið - 02.01.2006, Side 44

Morgunblaðið - 02.01.2006, Side 44
KARL Sigurbjörnsson, biskup Íslands, gerði hjónavígslu samkynhneigðra að umtalsefni í nýárspredikun sinni í gær. Hann sagði að Þjóð- kirkjan hlyti að hika við, engin kirkja hefði stig- ið slíkt skref. Hann sagðist treysta Alþingi og ríkisstjórninni til að fara með gát og leyfa hjónabandinu að njóta vafans. Biskup sagði í upphafi er hann vék að þessum málum að Þjóðkirkjan hefði lengi staðið fyrir samtali um málefni samkynhneigðra og fagnað réttarbótum þeim til handa. „Ég ítreka að Þjóð- kirkjan stendur heilshugar með samkyn- hneigðum sem einstaklingum og réttindum þeirra í samfélaginu,“ sagði hann. Hann sagði síðan að ýmsir kölluðu eftir nýrri skilgreiningu á hjúskap og hjónabandi, þar sem kyngreining skuli afnumin. „Þjóðkirkjan hlýtur að hika við gagnvart því að viðurkenndum grundvallarhugtökum og viðmiðum sé þannig breytt. Engin kirkja hefur stigið slíkt skref. Um þetta hefur verið deilt á vettvangi kirkj- unnar hér sem annars staðar.“ „Þjóðkirkjan hlýtur að hika við“ MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. DÆLUR FYRIR FISKELDI Sími 568 6625 FYRSTA barn ársins 2006 fæddist á Landspítalanum í Reykjavík 34 mínútum eftir miðnætti á gamlárs- kvöld. Foreldrarnir eru Jörgen Ívar Sigurðsson og Anna Lilja Stefánsdóttir. Þeim fæddist 16 marka drengur og gekk fæðingin vel að sögn móðurinnar. „Ég var komin á spítalann um þrjúleytið á gamlárs- dag og hann fæddist um hálfeitt um nóttina. Það eru allir hressir og allt í góðu,“ sagði Anna Lilja. „Það er ofsalega gaman að eiga fyrsta barn ársins. Mig grun- aði þó ekki að drengurinn kæmi á þessum tíma því ég reiknaði með að hann kæmi tveimur vikum fyrir tímann. Ég var sett þann þrítugasta desember og hann fæddist því á réttum tíma,“ sagði hún. Fyrir eiga Anna Lilja og Ívar soninn Júlían Vigni. Morgunblaðið/Ómar Fyrsta barn ársins 16 marka drengur 94 SJÚKLINGAR, sem lokið hafa meðferð á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi, eru enn inniliggjandi eða rúmlega 11% allra legusjúk- linga sem liggja að jafnaði inni á sjúkrahúsinu. Samtals hefur þessi hópur legið inni í um 12.000 daga að lokinni meðferð. Flestir eru aldrað- ir og bíða eftir hjúkrunarheimili eða 75 manns en yngri einstaklingar eru á annan tug og bíða eftir búsetuúr- ræði á vegum svæðisskrifstofa. Ekki er útlit fyrir að ástandið viðeigandi deildum og auk þess skapast vandamál við að sjúklingar fái ekki rúm á stofu og þurfa því að dvelja á göngum sjúkrahússins. En sjúklingar sem bíða útskriftar eiga auk þess rétt á annars konar aðbúnaði en þeir fá á sjúkrahúsinu. „Sjúklingur sem hefur lokið með- ferð á náttúrlega ekki að vera mán- uðum saman á bráðasjúkrahúsi, það er ekki góð þjónusta,“ segir Anna Lilja. „Þessir einstaklingar eiga rétt á að vera í heimilislegu umhverfi í ró og næði.“ unarheimili er u.þ.b. 14 þúsund kr. Samkvæmt upplýsingum frá LSH þarf rúmlega helmingur þess- ara sjúklinga að bíða í meira en 90 daga á stofnuninni að lokinni með- ferð. Ríkisendurskoðun segir í nýrri skýrslu sinni um starfsemi LSH á árunum 1999–2004, að sé gengið út frá að meðalbiðtími biðsjúklinganna sé 90 dagar sé kostnaður á hvern sjúkling á bilinu 2,7–4,5 m.kr. Fyrir 94 sjúklinga þýðir þetta því 254–423 m.kr. Að auki leiðir útskriftarvandinn til þess að sjúklingar sem bíða eftir þjónustu spítalans komast ekki að á breytist að neinu marki fyrr en nýtt hjúkrunarheimili verður tekið í notkun í Mörkinni árið 2007, sam- kvæmt upplýsingum Önnu Lilju Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra fjárreiðna og upplýsinga á LSH. Kostnaður á bilinu 250–420 milljónir króna Áhrifin af vandanum eru margs konar. Kostnaður meðallegudags á LSH er a.m.k. 2–3 sinnum meiri en t.d. meðaldaggjald á hjúkrunar- heimili. Áætlaður kostnaður hvers meðallegudags á LSH er 30–50 þús- und kr. en meðaldaggjald á hjúkr- Um 90 sjúklingar á LSH bíða eftir hjúkrunarrýmum og öðrum úrræðum Hafa legið inni í 12 þús- und daga eftir meðferð Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is  Um 11% | 10 ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði í nýársávarpi sínu að enn skorti verulega að bætt hefði verið úr brýnni þörf í dvalar- og hjúkrunarmálum aldraðra. Hann sagði að hér þyrftu allir að leggjast á árar, Alþingi og sveit- arstjórnir, hagsmunasamtök og atvinnulífið. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra gerði málefni aldraðra einnig að umtalsefni í ávarpi sínu á gamlársdag. Hann sagði m.a. að aldraðir ættu að geta notið ævikvöldsins með reisn og helst sem lengst á eigin heimili og meðan heilsan leyfði úti í atvinnulífinu. Ólafur Ragnar sagði að það væri til marks um siðmenningu hverrar þjóðar hvernig hún byggi öldruðum ævikvöldið og gerði þeim kleift að njóta áranna sem eftir væru. „Margt hefur vel verið gert á þessu sviði og við hjónin höfum í heimsóknum okkar víða um land séð glæsileg og vel búin húsakynni, hitt áhugasamt starfsfólk sem kappkostar að auðga líf heimilismanna. Engu að síður skortir enn verulega að bætt hafi verið úr brýnni þörf,“ sagði hann. Hann sagði að afkoma og aðbúnaður aldraðra þyrfti að færast einna fremst í forgangsröð. Nefnd fjalli um matvælaverð Halldór Ásgrímsson kom víða við í ávarpi sínu og sagði m.a. að ekki yrði við það unað til fram- tíðar að matvælaverð á Íslandi væri langt um- fram það sem væri í grannríkjunum. Því hefði hann ákveðið að setja á fót nefnd með fulltrúum stjórnvalda, aðilum vinnumarkaðarins og sam- tökum bænda til að skoða og skilgreina ástæður þessa og koma með tillögur um úrbætur. Þá kom fram í ávarpinu að hann hefði ákveðið, í tilefni 75 ára afmælis Þjóðgarðsins á Þingvöll- um, að efnt skuli til hugmyndasamkeppni á árinu um framtíð nánasta umhverfis Valhallar. Nýársávörp forsætisráðherra, forseta og nýárspredikun biskups Bætt verði úr brýnni þörf í málefnum aldraðra  Áramótaávörp | 21 og miðopna STARFSMENN á slysa- og bráðadeild Landspítalans í Fossvogi verða oftar en áður fyrir ógnunum og árásum af hálfu þeirra sem þangað leita. Í vaxandi mæli er um að ræða menn sem koma á slysa- deildina um helgar undir áhrifum örv- andi fíkniefna og þessum mönnum fjölgar eftir því sem lengra líður á nótt- ina. Kristín Sigurðardóttir, læknir og fræðslustjóri á slysadeild, telur að lengdur afgreiðslutími veitingastaða hafi meðal annars ýtt undir aukna fíkni- efnaneyslu og vill að hann verði styttur á nýjan leik. „Ég held því ekki fram að fíkniefna- vandinn sé til kominn vegna þess að af- greiðslutími veitingahúsa var lengdur. En með því að lengja afgreiðslutímann sendu borgaryfirvöld út þau skilaboð að það væri bara allt í lagi að drekka leng- ur og þar af leiðandi meira,“ segir Kristín. Lægra verð á áfengi fyrir miðnætti? Kristín segir að lenging afgreiðslu- tímans hafi haft ýmis neikvæð áhrif og því sé eðlilegt að huga að því að stytta hann á nýjan leik. „Það hafði sína galla að fá alla út á sama tíma en í staðinn fyrir að lengja afgreiðslutímann, mátti ekki frekar skipta veitingastöðum í flokka þannig að sumir loki klukkan eitt, aðrir klukk- an tvö og svo framvegis? Og má ekki kanna möguleika á því að lækka verð á áfengi fyrir miðnætti? Þetta þyrfti ekki endilega að vera dýrara fyrir veitinga- húsaeigendur því í staðinn gætu þeir lokað stöðunum fyrr,“ segir Kristín. Verða oft- ar fyrir ógnunum og árásum  Telur lengri | 12 Áhrif lengri afgreiðslu- tíma veitingahúsa GERT er ráð fyrir að um 800 íbúðir verði byggðar á líðandi áratug í Fjarðabyggð og hafa aldrei verið jafnmiklar bygging- arframkvæmdir á Austurlandi og um þessar mundir. Í aðalskipulagi Fjarðabyggðar fyrir árin 2000 til 2010 hefur ver- ið ráðstafað lóðum fyrir 798 íbúð- ir og hafa 220 þeirra þegar verið byggðar. Um er að ræða 159 íbúðir á Eskifirði, 79 í Neskaup- stað og 560 á Reyðarfirði, en þar rúmlega tvöfaldaðist íbúafjöldinn á liðnu ári með tilkomu starfs- manna við byggingu álversins. Auk mikillar uppsveiflu í íbúðabyggingum í sveitarfélaginu hafa verið byggð eða eru í byggingu iðnaðar- og þjónustu- hús í Fjarðabyggð á 35 lóðum, samtals rúmlega 32 þúsund fer- metrar. Aldrei meira byggt eystra  Fasteignablaðið Morgunblaðið/Ómar METÞÁTTTAKA var í Gamlárshlaupi ÍR að þessu sinni, en alls luku 439 hlauparar keppni. Orkuríkir drykkir eru hlaup- urunum nauðsyn á leiðinni og eins gott að hafa allt tilbúið þegar þeir hlaupa hjá. | Íþróttir Orka fyrir ára- mótahlaupara

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.