Réttur - 01.06.1946, Síða 10
90
RÉTTUR
c) Á þeim stöðum, þar sem þegar hafa verið byggð hraðfrysti-
hús, án þess að komið hafi verið upp fiskimjölsverksmiðju
jafnframt til að vinna úr fiskúrgangi, skal eigendum
þeirra eða viðkomandi bæjar- eða sveitarfúlagi leiðbeint
um að koma henni upp og séð fyrir nægu lánsfé til þess
með það fyrir augum, að stefnt verði að því, að mögulegt
verði að vinna úr fiskúrgangi alls staðar, þar sem hrað-
frysting fer fram.
d) Ríkið og bæjar- cða sveitarfélög, sem til þess fá sérstök
leyfi, hafi einkaleyfi á rekstri síldarverksmiðja, þannig, að
ríkið kaupi eða taki eignarnámi allar síldarverksmiðjur
einstaklinga eða einkafélaga í landinu. Reistar verði tvær
7500 mála síldarverksmiðjur á svæðinu austan Rifstanga.
Byggðar verði smærri síldarverksmiðjur á þeim höfnum,
sem þörf krefur, til þess að þar geti farið fram söltun.
e) Hraðað verði sem mest byggingu lýsisherzluverksmiðjunn-
ar á Siglufirði. Stefnt verði að því með byggingu fleiri
slíkra verksmiðja, að hægt verði að herða allt síldarlýsi.
sem framleitt er í landinu og verði önnur slík verksmiðja
í röðinni reist á Akureyri. Skulu verksmiðjurnar reltnar
af ríkinu sem sérstakt fyrirtæki og hafa einkaleyfi til
þess atvinnurekstrar. Lögð verði á það áherzla, að koma
upp iðnaði í landinu, er byggi á hertu síldarlýsi sem hrá-
efni með útflutning fyrir augum, t. d. smjörlíkisfram-
leiðslu o. fl.
f) Ríkið taki að sér að kaldhreinsa og útbúa til útflutuings
fyrir kostnaðarverð meðalalýsi þeirra útgerðarmanna og
fiskimanna, er þess óska.
g) Ríkið aðstoðar bæjarstjórnir og hreppsnefndir, þar sem
heppilegt er, að koma upp síldarsöltunarstöðvum, til þess
að byggja fleiri söltunarstöðvar með það fyrir augum að
stórauka síldarsöltunina. Skal lögð á það áherzla að búa
stöðvarnar þannig út, að .söltun geti farið fram undir
þaki og unnt sé að geyma alla saltsíld innan húss. Ríkið
lætur reisa fyrirmyndar söltunarstöð, sem síldarútvegs-