Réttur


Réttur - 01.06.1946, Side 57

Réttur - 01.06.1946, Side 57
HÉTTUR 137 klaufaleg og ósönn, en þó framar öðru brosleg, ákaflegri og grynnri en tilfinningar þeirra, þau voru nærri skopstælingar. Aðeins þögn- in og alger kyrrðin, sem er sterkara en nokkurt faðmlag, hefði átt við, en hvorugt átti þrótt til þess, og þau féllust i faöma. „Segðu mér — hvernig var það?“ spurði hún, þegar þau leystu faðmlagið. „Hræðilegt", sagði hann, annað ekki. Hann gældi við höfuð barnsins og fann hökuna litlu leita lófa hans. Hann þekkti varla drætti þessa barnsandlits. Það eina, sem hann mundi, voru svipbrigði þess, og láður en hann sá fyrsta bros þess, í’étt áður en hann fór, hafði tilvera barnsins ekki verið hon- um áþreifanlegur veruleiki. En barnið fyllti hann bjartsýni og von- um, en framar öllu mat hann það skiilyrðislausa frumstæða trausty sem barnið bar til hans. Dag einn er hann hafði slegið á fingur drengsins fyrir að hanga í hundinum, hafði hann leitað huggunar i faðmi föður síns. Þungt af svefni, með mjúka hökuna í lófa hans, virtist barnið tjá honum hve traust þess var algert, það næði einnig til drauma þess. Fyrir barnið var Kassncr óþrjótandi fagn- aðarefni. „1 gær, um þetta leyti....“ Kassner dró hægt til sín höndina og bar hana upp að augunum, svo hann sá fingurna í skimunni. Skyldu neglurnar hafa vaxið Þau fóru fram i fremra herbergið. Hún snéri sér að honum. „Tóku þeir gilt falska vegabréfið, þarna....“ Hann hafði kveikt. Ósjálfrátt heyktist hún í herðum; en létti. „Ég var svo hrædd um.......“ sagði hún. Við vindlingsglóðina hafði andlit lians sýnzt tært, en það var svo beinabert að það breyttist ekki mikið, þó hann legði af. En hún vissi 'fullvel um bréf frá konum fanga,_ sem þekktu ekki menn sína aftur; frá konum, sem voru beðnar að koma meö hrein nær- föt, af því að skyrtan sem maður honnar var i, var storkin í blóði....“ Hann hafði orðið svo ofsahræddur". „Tóku þeir gilt falska vegabréfið?" spurði hún ööru sinni. Hann fann að þessar spurningar komu aftur og aftur, þó hann væri kominn, eins og þær höfðu leitað á dag eftir dag meðan Anna var ein. „Nei, elcki fyrst. Seinna taldi annar maður þeim trú um að hann væri Kassner." Hún leit upp í svo mælahdi þögn, að hann gat svarað:

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.