Réttur - 01.06.1946, Blaðsíða 59
RÉTTUK
139
getið sér til tengslanna við sorg hennar sem orð hans báru í sér,
og ekkert sem tengdi þau olli henni þjáningar.
„Bara að ég gæti gefið þér gleði....“ sagði hún. Hún fann að
hann gat ekki fylgzt með henni, og hristi höfuðið raunamædd, svo
viðkvæmnisleg og feimin, að honum skildist enn einu sinni, hve
grófir karlmenn alltaf eru í ástamálum.
„Líf mitt er það sem það er. Ég hef sætt mig við það, og meir
að segja valið það.... Mig langaj' aðeins til að þú hafir örlítið
rúm fyrir mig í þínu lífi. En ég var að hugsa um dálítið, átti við
að mig langaði til að gefa þér meira en ég geri“.
Kona sem hún var kunnug, fékk mann sinn lieim úr fanga-
búðum. Hann vaknaði nærri á hverri nóttu, veinandi: „Sláið mig
ekki". Kassner hafði lokað augunum og önnu fannst hún mundi
ekki verða ólirædd þó hann svæfi.
„Þær stundir koma", hélt hún áfram,' „að mér finnst það ekki
þjáningin sem breytist, heldur vonin...."
Hún leit upp döpur, falin augun milli langra, dökkra fcránna,
og hrukkaði cnnið.
Við hvert svipbrigðið af öðru tók gáfulegt andlit hennar á sig
hinn þaulkunnuga skýrleik, það virtist vakna til vitundar. Nú
þekkti hann aftur þessar fáu, einföldu hreyfingar, sem eru leynd-
ardómur hvers andlits, þekkti tár þess, ást, nautnasvip þess; and-
litsdrættir hennar gátu oröið honum svipur gleðinnar sjálfrar.
Engum þeim auðmýkingum hefði hann getað orðið fyrir í fanga-
klefanum, að þcssi augu hefðu ekki tekiö þær á sig líka, ef þau
hefðu vitað. Þjáningardrættirnir hurfu smámsaman úr svip henn-
ar, er hún hélt áfram máli sínu.
„Ég hcf svo oft látizt tala við þig, að ég er enn hrædd um að
ég kunni að vakna af draumi. Ég hét því aö segja ekki eitt dap-
urlegt orð þegar þú kæmir. Gleðin í mór er ríkari en....“
Hún fann ekki orðið, cn handaði frá sér hcndinni og brosti i
fyrsta sinn ga.rnla, brosinu, sem sýndi faUegu t'ennu.rnar hennar,
Loks sagði hún, ekkí beizkjulaust.
..... en hún þorir ekki að láta á sér bæra," eins og hún væri
enn hrædd.
Hún hafði ekki þorað að segja þetta fyrr en nú; var það of
snemmt til þess að þó ekki væri nema hugmyndin um hamingju
yrði til með þeim? Lifið var að umlykja hann eins og armur hans