Réttur - 01.06.1946, Qupperneq 11
RÉTTUR
91
nefnd annast rekstur á, þar sem hægt er að reyna ýmsar
nýjungar á síldarsöltun og miðla reynslu til annarra salt-
enda.
h) Hraðað verði sem allra mest byggingu tunnuverksmiðja
þeirra, sem ákveðið hefur verið að reisa á Siglufirði og
Akureyri. Þá skulu og byggðar tunnuverksmiðjur, þar sem
söltun er svo mikil, að það teljist hagkvæmt og skal stefnt
að því, að allar síldarUmnur, sem notaðar eru hér á landi,
séu smíðaðar innan lands.
i) Hraðað verði sem allra mest byggingu síldarniðursuðu —
og niðurlagningarverksmiðju þeirrar, sem ákveðið hefur
verið að reisa á Siglufirði.
C. Hafnir og viðlegupláss fyrir bátaútveginn:
a) Lögð verði megináherzla á að hraða sem mest byggingu
hafna á þeim stöðum, sem hægt er að stunda vetrarver-
tíðarveiðar frá, með það fyrir augum, að allir bátar geti
farið á vetrarvertíð á fiskisælustu miðin.
1 þessu skyni skal og byggja við hafnir þessar verbúð-
ir og íbúðir, er fullnægi bátaflotanum, og skal annaðhvort
ríkið sjálft byggja þessi mannvirki eða viðkomandi hafnir
með aðstoð ríkisins.
b) Hraðað skal, svo sem frekast er unnt, byggingu landshafn-
ar í Njarðvík og Keflavík, svo sem ákveðið hefur verið,
c) Höfn í Hornafirði verði gerð að landshöfn og hafnarmann-
virki gerð þar og hafskipabryggja byggð.
d) Bætt verði úr hafnarþörf út-Snæfellsness með því að
byggja landshöfn á Rifi á Snæfellsnesi, og séu jafnframt
gerðir góðir vegir, er tengi Ólafsvík og Hellissand við
Rif og tengi Rif við þjóðvegakerfið utan við Jökul. Jafn-
framt verði komið upp verbúðum og mannaplássum fyrir
bátana og lagður grundvöllur að bæjarmyndun.
h