Réttur - 01.06.1946, Page 29
IÍROTTNAR ATVINNUUFSINS
FeiÉiliringuriiiii Fuilever
Með hverjum áratug, sem líður, eflast auðhringarnir æ meir
og gerast umsvifameiri í fjárhagslífi og stjórnmálum heims-
ins. Þeir telja sér óviðkomandi landamæri þjóða og ríkja og
halda áfram að spinna kóngulóarvef sinn um hnöttinn jafnt
í kreppum, styrjöldum og hungursneyð sem á velgengnistím-
um. Kreppur og styrjaldir eru þeim jafnvel að því leyti hag-
stæðari, að þá er auðveldara að ráða niðurlögum veikari
keppinauta eða knýja þá til samstarfs við hringavaldið. Sum-
ir auðhringanna eru orðnir sannkölluð heimsveldi, allsráð-
andi að heita má hver á sínu sviði í hinum kapítalska hluta
heimsins. Þessi heimsveldi eru ekki merkt á landabréfum, og
engir nema æðstu Stjórnendur þeirra kunna full skil á, hvar
þræðir þeirra liggja. Svo mikil leynd hvílir yfir starfsemi
hringanna. En það getur þó komið fyrir, að heilar þjóðir geri
sér skyndilega grein fyrir valdi þessara ósýnilegu heimsvelda,
þegar þær ætla að koma sér upp óháðri framleiðslu á ein-
hverju sviði, sem hringarnir hafa helgað sér, eða þjóðnýta
fyrirtæki, sem þeir hafa starfrækt. Þannig lagði Unilever við-
skiptabann, að því er matarolíur snertir, á Tékkóslóvakíu nú
eftir stríðið, vegna þess að Tékkar þjóðnýttu olíuherzluverk-
smiðjur hringsins þar í landi.
Einn af stærstu hringum heimsins er feitmetishringurinn,
sem almennt er kallaður Unilever, en heitir fullu nafni Lever
Brothers & Unilever Ltd. Hefur félagið aðalbækistöð sína í
London. Systurfélag þess samnefnt hefur aðsetur í Rotter-
dam í Hollandi. Þó að félögin séu að forminu til tvö, eru þau
í rauninni eitt og sama félagið, sem stjórnað er frá London.
Þessi hringur er mestu ráðandi um alla smjörlíkis- og sápu-
framleiðslu hins kapítalska heims, en starfsemi hans er þó
miklu fjölþættari. Hann framleiðir einnig gúmmí, pappír,
þvottaduft (t. d. Lux, Rinso), kópru (þurrkaða kókoshnetu-