Réttur - 01.05.1953, Qupperneq 15
RÉTTUR
103-
Til mæðra með 2 böm: kr. 2125 á ári
— — — 3 — — 4270 -------
— — 4 og fleiri:— 6400 - —
Mæðralaun greiðast auk barnalífeyris til ekkna, frá-
skildra kvenna og ógiftra mæðra.
Allar þessar tillögur voru ýmist felldar eða fengu enga
afgreiðslu á Alþingi. Stjórnarflokkarnir stóðu fast á móti.
Það þurfti víðtækasta verkfall, sem háð hefur verið á
íslandi til þess að fá nokkrar endurbætur á lögunum um
almannatryggingar á þessu þingi. Með samningum við
verkalýðsfélögin í desember 1952, skuldbatt ríkisstjórnin
sig til að leiða í lög fjölskyldubætur með öðru og þriðja
bami, en til þessa hafa þær aðeins verið greiddar, ef bömin
eru fjögur eða fleiri. Miðað við vísitöluna 157 eru árlegar
fjölskyldubætur með öðru barni kr. 628 og með þriðja
barni kr. 942.
1 lögum þessum eru f jölskyldubætur til ekkna og ein-
stæðra mæðra kallaðar mæðralaun. Tilgangurinn með
þessari nafngift er tvjþættur. 1 fyrsta lagi að kom-
ast hjá því að greiða f jölskyldubætur og barnalífeyri sam-
tímis. Fyrir bragðið fá t. d. öryrkjar, sem hafa börn á
framfæri sínu og njóta barnalífeyris, engar fjölskyldu-
bætur. 1 öðru lagi, að bægja frá kröfunni um mæðralaun
með því að gefa bótum, sem em alls annars eðlis, þetta
nafn. Að bætur þessar verðskulda illa nafnið mæðralaun,
sést á því, hversu smánarlega lágar þær eru, ef börnin era
færri en fjögur. Ef barnið er eitt greiðist ekkert, ef þau
eru tvö, aðeins 628 krónur, og ef þau era þrjú, aðeins 1570
krónur á ári. Eftir stendur því að fá raunveruleg mæðra-
laun tekin upp í lög.
Sósíalistar báru fram þá viðbótartill. við framvarpið, að
ellilaun og örorkubætur skyldu hækka um 10% og sömu-
leiðis að aðrar tekjur lífeyrisþega mættu vera helmingi
hærri en nú, áður en til skerðingar kemur á bótunum. Nú