Réttur - 01.05.1953, Side 42
130
RÉTTUR
þrátt fyrir harðvítuga baráttu Framsóknarflokksins og allra ann-
arra afturhaldsafla gegn því. En það hefði þurft að fá fram sömu
lágu vextina á reksturslánum, tryggingu fyrir því að nœg slík
lán fengust til úrvinnslu aflans og ríkissölu á olíunni til þess að
hindra arðrán olíuhringanna á útgerðinni. En það er ekki viðlit
að knýja slíkar breytingar fram, nema með því að gera Sósíal-
istaflokkinn miklu sterkari á þingi en hann nú er.
En nýsköpun togaraflotans fyrir forgöngu alþýðunnar og flokks
hennar, Sósíalistaflokksins, gerbreytti samt sem áður öllum við-
horfum alþýðunnar til atvinnulífsins og aðstöðunni í þeim bæjum,
sem fengu nýsköpunartogara, — og raunar líka í þeim, sem
þurfa enn að fá þá!
Við skulum athuga þetta nánar:
Af 42 nýsköpunartogurum er nú ýmist í útgerð bæjarfélaga
eða hlutafélaga, sem bæjarfélögin eru aðalhluthafar í, eftirfarandi
fjöldi togara (og raunverulega allir reknir fyrst og fremst til þess
að tryggja framleiðslu og vinnu, m. ö. orðum í sjálfsbjargar, en
ekki gróðaskyni):
Reykjavík . .. 8 togarar Seyðisfirði 1 togari
Hafnarfirði ... ... 3 ~ Norðfirði 2 —
Akranesi ...2 — Austfjörðum .. .. 1 —
ísafirði ...2 — Vestmannaeyjum 2 —
Siglufirði Akureyri ...2 — ...3 — Keflavík 1 —
Alls eru því 27 af þessum togurum, eða næstum % hlutar, í eign
bæjarfélaga eða hlutafélaga, sem þau geta ráðið, ef allt er með
felldu.
kaupir til landsins 30 togara, gerir hún það fyrir tniklu hærra verð cn nokk-
iur vitglóra var i, eftir því sem sumir segja ....
Og ástandið er þannig með þessi tæki að ríkisstjórnin er í vandræðum
með þau, enda ekki að furða.
Hún keypti skipin án þess að ráðfæra sig við nokkurn mann og hún
undirbýr framtíðina þannig að cnginn vill nærri þessum skipum koma sem
eitthvert fjármagn á. . . .
I’að hvílir þung ábyrgð á ríkisstjórninni í þessum efnum, því að hún hef-
ur algerlega vanrækt að festa í þessum kaupum þá aðila, sem átti að festa,
láta þá segja já eða nei og láta þá taka á sig ábyrgðina af því ef ekkert var
gert, og láta þá ekki sleppa úr þeirri sjálfheldu, sem þeir væru þá kornnir
í. En i staðinn fyrir þetta situr ríkisstjórnin uppi með allt gumsið og er í
vandræðum með það.“ .