Réttur


Réttur - 01.10.1933, Blaðsíða 26

Réttur - 01.10.1933, Blaðsíða 26
.'sovéthersins í Kína voldugur undanfari sigursælla verklýðsbyltinga næstu ára og áratuga. Einnig hér á Islandi stendur fyrir dyrum baráttan um sigur sovétbyltingaidnnar eða áframhald og aukn- ingu auðvaldseymdarinnar. Undirbúningsskærur verk- iýðsbyltingarinnar fara fram í dægurbaráttunni, sem verkalýðurinn heyir gegn Ihungurárásum auðvaldsins og fasismanum. Hinir dulklæddu fylgjendur auðvalds- skipulagsins, Framsókn o'g Alþýðuflokkurinn, hafa þegar sýnt með afstöðu sinni í dægurbaráttunni, hvernig þeir berjast fyi’ir aukinni eymd, lækkuðum launum og vaxandi atvinnuleysi og hjálpa með allri pólitík sinni til að skapa fjöldagrundvöll fyrir fas- ismann. Jónas frá Hriflu hi’akyrðir í bækling sínum verka- menn þá, sem berjast fyrir að halda uppi taxtakaupi félaga sinna, — og telur launalækkun isjálfsagða. Og kratarnir framkvæma svo taxtabrotin í reyndinni — jafnvel með þátttöku í hvítliði eins og á Akureyri, ef á þarf að halda. Jónas frá Hriflu lofar hlutaráðninguna á hvert reipi, af því hún lækkar laun sjómanna, æsir þá upp gegn verkalýðnum í landi og myndar þannig grund- völl meðal þeirra fyrir blekkingar fasismans. J. J. reynir líka hvað eftir annað í þessum bækling að æsa sjómennina upp á þennan hátt með ósvífnustu blekk- ingum, um að það séu síldarstúlkurnar í landi isem arðræna þá, en ekki útgerðarmennirnir, síldarkaup- endurnir, olíuhringarnir, bankarnir og allir aðrir arð- ræningjar auðvaldsins. Og hverjir berjast skarpast fyrir hlutaráðningunni? Alþýðuflokkurinn! Um hluta- ráðninguna eru allir borgarafl. sammála á kreppu- tímum, allt frá Sigurjóni Ólafssyni til Ólafs Thors og Óskars Halldórssonar. En móti henni berpt Kommún- istaflokkurinn einn^en studdur af sívaxandi Ihluta sjó- mannastéttarinnar, sem lært hefir af reynslunni. J. J. reynir að blekkja verkalýðinn um þýðin'gu 218

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.