Réttur


Réttur - 01.10.1933, Blaðsíða 20

Réttur - 01.10.1933, Blaðsíða 20
byltingu, og Kommúnistaflokkurinn vill byltingu, af því hann vill sosialismann og veit að honum verður ekki komið á öðruvísi — eins og reynslan í Rússlandi og Þýzkalandi bezt hefir sannað. Og hvaða heilvita manni getur líka dottið annað í hug, ef hann ‘hefir op- in augu fyrir þróun auðvaldsins á isíðustu árum? Þegar það þurfti að slá niður alla lögregluna í Reykjavík, til að hindra launalækkun í atvinnubóta- vinnunni, — þegar það þurfti að salfna mörg hundruð verkamanna varnarliði á Akureyri til að hindra kaup- lækkun við tunnugerðina, — hvað mun þá þurfa til að margfalda laun verkalýðsins og afnema að lokum launaþrældóminn, til að gefa verkalýðnum ,,villur“ burgeisanna, afnema atvinnuleyisið, margfalda iðnað- inn og útgerðina á grundvelli sósíalismans og upp- ræta síðustu leyfar af stétt Magnúsar Guðmundsson- ar, Eggerts Claessens og Héðins Valdemarssonar? Þegar burgeiisastéttin nú þegar vopnar lið í landinu með aðstoð Jónasar frá Hriflu og Héðins Vald., til þess að framfylgja hungurárásum sínum, — og otar blóðþyrstum hvítliðum, ásamt Ifasistiskum götuskríl yfirstéttarinnar gegn verkalýðnum við hvert tækifæri, — þá verður verkalýðurinn einnig að búa sig til vopn- aðrar uppreisnar, ef hann á að sigra. Að prédika yfir honum friðsamlega breytingu auðvaldjsskipulagsins, það er hlutverk þeirra manna, sem vilja teyma hann eins og lamb undir fallöxi fasismans. Það er stundum verkaskifting hinna opinberu og dulklæddu fasista að annar reiði blóðöxi fasismans til höggs, en hinn bindi fyrir augu ,,fórnardýrsins“ á meðan með friðarblæju lýðræðisins. Jónas frá Hriflu og krataforingjarnir leika tíðum hið síðara Ihlutverkið — en það er undir verka- lýð Og vinnandi stéttum íslands komið hvort þeim tekst að framkvæma það. En þess vegna beinir Komm- únistaflokkurinn aðalárás sinni að þessum mönnum í höfuðorustunni við auðvaldið, að fyrst verður hann að rífa blekkingarblæju lýðræðisins og hinnar friðsam- 212

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.