Réttur


Réttur - 01.10.1933, Blaðsíða 6

Réttur - 01.10.1933, Blaðsíða 6
hann heimtar í rauninni samskonar þakklæti „lánbeið- enda“ til bankanna eins og Mogginn vildi að „vinnu- þiggjendur" væri atvinnurekendanum þakklátir. (Hvort bankarnir eru í rauninni eignalausir kemur málinu ekki við. Þó bankarnir væru ,,bláfátækir“ geta þeir auðvitað eins kúgað, alveg eins og Kveldúlfur kúgar verkalýð og sjómenn, þó hann ef til vill eigi ekki fyrirskuldum). Það er engin tilviljun að báðir skuli nota sömu að- ferð, því eins og Mgbl. var einn aðalmálsvari einka- auðmagnsins, eins er J. J. tvímælalaust einn aðalmál- svari bankaauðvaldsins og velur þessa hlálegu leið til að verja það. Og nú skulum við rannsaka þá kúgun þess, sem J. J. ekki sér. Gagnvart verkamönnum og sjómönnum kemur kúg- un bankaauðvaldsins sérstaklega fram þannig að bankarnir eru bakhjarl útgerðarmanna í árásum á verkalýðinn. Eitt greinilegt dæmi þess var í Vest- mannaeyja-kaupdeilunni 1932. Þá neitaði Útvegs- bankinn að lána útvegsmönnum, nema þeir réðu ein- göngu upp á hlut. Hlutaráðningin þýddi stórkostlega kauplækkun fyrir sjómenn og varð til þess að fjöldi þeirra urðu ekki matvinnungar. En Útvegsbankinn stjórnaði þessari herferð gegn sjómönnunum, sem var í rauninni hungurárás bankaauðvaldsins á verkalýð- inn. Hlutaráðningin er einmitt aðferðin til að lækka kaupið og velta byrðum kreppunnar af auðvaldinu yf- ir á verkalýðinn. Og þess vegna er það heldur engin tilviljun að J. J. skuli hæla hlutaráðningunni á hvert reipi í bækling sínum og kratabroddarnir berjast fyr- ir henni í reyndinni með oddi og egg. — En J. J. og kratabroddarnir, sem sitja á hálaunum >hjá auðvaldi íslands, finst það auðvitað engin kúgun, þó fátækur sjómaður þræli baki brotnu og hætti lífi sínu í Vest- mannaeyjasjónum og beri ekki einu sinni nóg úr být- um til að fæða sig yfir vertíðina. Gagnvart smáútvegsmönnum kemur kúgun banka- 198

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.