Réttur


Réttur - 01.10.1933, Blaðsíða 15

Réttur - 01.10.1933, Blaðsíða 15
rentum til útlenda auðvaldsins (af 80 milj. kr. skuld- um sem jafngilda um helming ,,þjóðarauðsins“) nem- ur 250 kr. á meðal verkamannafjölskyldu árlega. — Skatturinn til ríkisins gegnum tollaránið nemur um 500 kr. á þá sömu. og þó er aðalatriðið eftir: Arðurinn af vinnu verkalýðsins, sem auðmannastétt- in rænir, — rentur af veðsettu jörðunum, sem bank- arnir og aðrir lánardrottnar taka, — það arðrán, sem eg ekki hefi tölur yfir. Og svo kveina þessir valdhafar og kvarta um tap af útgerðinni, tap á skuldum o. s. frv. En meðan sjó- mennirnir farast á fúnandi togurunum og engin ,,efni“ eru til að fá nýja í staðinn, — byggja togaraeigend- ur sér voldugustu skrauthýsin. O'g þúsundir verka- manna ganga atvinnulausar, óskandi einskiis frekar en að fá að nota' vinnuafl sitt, fá að þræla fyrir brauði sínu, — en Jónas Ifrá Hriflu hrópar til þeirra: ,,Hér er stórt land með miklum náttúrugæðum, sem standa þjóðinni opin til notkunar.“ — „Á íslandi hafa allir fullorðnir menn kosningarétt og rétt til hvaða atvinnu sem er.“ (Bls. 23). Og ef einhverjum kynni að finnast þetta full napurt háð, og þykja það „þunnar trakteringar“ að hafa „rétt“ til að vera t. d. togaraskipstjóri, en fá ekki einu sinni mótorbátispláss, — þá tilkynnir sami Jónas að lokum, að samvinnumönnum hafi loks tekist að stíga á einu sviði „hið fyrsta spor í rétta átt“, „með því að skapa öfluga lögreglu í bæjunum, til að geta haldið uppi friði og reglu, eins og samboðið er siðaðri þjóð.“ „Siðuð þjóð“ getur verið full þekkt fyrir að svelta atvinnuleysingja sína, hæðast að þeim með því að vísa þeim á „opin náttúrugæði" til að róta upp með hönd- unum og isegja þeim að þeir ha|fi rétt til að verða sam- vinnuskólastjórar eða dómsmálaráðherrar, — en að veita þeim atvinnuleysisstyrk til að lifa af — það getur hún ekki verið þekkt fyrir! Og ef þeir krefj- ast hans, þá er lögreglan til taks að svara, — og ef 207

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.