Réttur


Réttur - 01.10.1933, Blaðsíða 14

Réttur - 01.10.1933, Blaðsíða 14
allra þeirra, sem barist hafa fyrir frelsi undirokaðra þjóða og stétta allt frá Bandaríkjunum til Búalands og frá Sidney til Manchester, — að þetta hervald skuli sent til að kæfa frelsisbaráttu íslenzkrar alþýðu í blóði undir grímu þess að vernda lýðræðið! En þessi hræsni verður skiljanlegri, þegar menn íhuga að sami maður kemur líka með það heillaráð í innanlandspóli- tík sinni að „vernda lýðræðið“ með því að framkvæma fasismann! Og svo móðgast J. J. stórlega yfir að vera talinn einn aðalfulltrúi erlenda bankaauðvaldsins á íslandi. Það hefir þó minnsta kosti enginn talað skýrar fyrir þess munn á sama tíma sem helmingur allra borgara- legra ríkja í Evrópu hættir greiðslu vaxta og afborg- ana af ríkisskuldum sínum. Þannig er þá ástandið í íslenzka þjóðfélaginu. Fá- menn klíka Reykjavíkurauðvaldsins — nátengd út- lendu auðmagni — drottnar ýmist yfir öllum auð- lindum landsins eða öllum tækjum til að nota þær, isem kemur út á eitt. — Hún á fulltrúa sína í bankaráðum og bankastjórnum allra bankanna, í stjórn íiskhringsins, í innflutnings- og gjaldeyris- nefnd, í stærstu togarafélögunum, í heildsöluhringn- um og S. í. S. Hjá bankaauðvaldinu koma allir þræð- irnir saman. Þar er miðstöð auðvaldsins í landinu. Til þess að útvegaReykjavíkurauðvaldinugróðasinn og gæðingum þess 10.00—60.000 kr. árstekjur verða tugir þúsunda verkamanna að sætta sig við árstekjur allt niður í 400 kr., verður fjöldi þeirra að ganga at- vinnulaus, verða þúsundir bænda að búa við árstekjur upp á 200—600 kr., verða hundruð „samvinnu“-sjó- manna og smáútvegsmanna að þræla baki brotnu fyrir lítið — máske ekkert, verða mörg hundruð hlutaráðn- ingarsjómenn að þræla í verstu vinnu, sem til er á Is- landi, og vera ekki matvinnungar. Aðeins arðurinn, sem píndur er út úr alþýðunni, í. 206

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.